Eldgos á Reykjanesskaga
69 70 71 72 73 74 75 76 77 … 84 ›
Rigning, hvasst og slæmt skyggni á gossvæðinu í dag Ekki viðrar vel fyrir gönguferðir að gossvæðinu á Reykjanesi í dag. Spáð er suðaustan 10-18 metrum á sekúndu með rigningu og slæmu skyggni. Á Norðurlandi gæti hitinn náð allt að tuttugu stigum um helgina. Innlent 5.6.2021 08:25
Hraun komið yfir gönguleiðina upp á útsýnishólinn Hraun er komið yfir gönguleiðina upp á hól sem nýst hefur sem útsýnisstaður við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Innlent 4.6.2021 11:12
„Hann hoppaði upp á þennan stall með glóandi hraunið undir sér“ Hermann Helguson, leiðsögumaður og ljósmyndari, var staddur við gosstöðvarnar í Geldingadal rétt fyrir klukkan hálf tvö í nótt þegar hann varð vitni að því að karlmaður steig upp á hraunið sem vall úr eldfjallinu. Undir storknuðum pallinum, sem maðurinn stóð á, má sjá glóandi hraun vella fram. Innlent 3.6.2021 18:16
Gefast upp á dónalegum og óhlýðnum ferðamönnum Björgunarsveitarfólk við gosstöðvarnar á Reykjanesi mætir nokkrum dónaskap þegar það reynir að leiðbeina fólki um hvar sé óhætt að vera á gosstöðvunum. Innlent 3.6.2021 11:43
Segir gosið malla áfram líkt og síðustu vikur Ekki hafa orðið miklar breytingar á gosinu í Fagradalsfjalli og er bæði virknin og óróinn svipuð og verið hefur síðustu daga og vikur. „Þetta mallar bara áfram.“ Innlent 1.6.2021 08:17
Stórbrotnar myndir af æfingu Gæslunnar á Reykjanesi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfði fjallabjörgun í nágrenni eldgossins í Geldingadal á dögunum. Lífið 31.5.2021 15:10
Hætta á að hraun loki fólk inni Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað endanum á gönguleið A að gosinu í Geldingadölum vegna hættu á að fólk lokist inni þegar hraun renni yfir gönguleiðina en fyrirséð er að það muni gerast á næstunni. Vettvangsstjóri segir fólk hunsa lokunarborða. Innlent 31.5.2021 11:49
Sú fyrsta í heiminum sem hefur stundað ísklifur í geimbúningi „Ástríða mín fyrir vísindum og náttúru spratt ansi snemma,“ segir Helga Kristín Torfadóttir eldfjallafræðingur og doktorsnemi. Hún er nú að klára doktorsnám í eldfjalla- og bergfræði þar sem hún rannsakar risann Öræfajökul að innan. Lífið 30.5.2021 07:01
Ekki hægt að setja verðmiða á umfjöllun 60 mínútna Umfjöllun erlendra fjölmiðla um eldgosið í Geldingadölum hefur reynst Íslendingum ómetanleg, að mati Íslandsstofu. Bjart sé yfir ferðaþjónustunni á næstu misserum en mikilvægt að halda rétt á spilunum. Viðskipti innlent 28.5.2021 20:31
Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum. Innlent 27.5.2021 23:13
Kannski ætti fólkið líka að hafa tilverurétt, ekki bara náttúran Formaður Landeigendafélags Ísólfsskála óttast að umræða um náttúrurask verði til þess að yfirvöld heykist á því að verja jörðina með varnargörðum og segir mannfólkið einnig hafa tilverurétt. Innlent 26.5.2021 20:10
„Við höfum smá tíma“ Hraun úr eldgosinu í Fagradalsfjalli stefnir niður að sjó og yfir Suðurstrandarveg ef gosið heldur áfram um óákveðinn tíma. Hvort það byrji að gerast eftir tvær vikur eða fleiri mánuði er enn óljóst. Innlent 26.5.2021 10:00
Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum. Innlent 25.5.2021 22:44
Geldingadalir gætu fyllst og hraunið leitað niður gönguleiðina Óvíst er hvenær hraun nær Suðurstrandarvegi; sumir telja að það gæti orðið eftir vikur en aðrir mánuði. Kannað verður á næstu dögum hvort reisa eigi leiðigarða við gosið. Innlent 24.5.2021 19:18
Dolfallinn yfir gosinu í 60 Minutes Fréttamaðurinn Bill Whitaker fjallar um eldgosið í Geldingadölum í nýju innslagi í 60 Minutes eftir að hafa gert sér sérstaka ferð til landsins til að kynna sér eldsumbrotin. Kunnugleg andlit eru í innslaginu, til að mynda okkar helstu jarð- og eldfjallafræðingar. Erlent 24.5.2021 13:17
Telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum. Hann segir skynsamlegt að ráðist verði í varnir í Nátthaga til að þrengja för hraunsins í átt að veginum og út í sjó svo sem minnst tjón verði. Innlent 23.5.2021 17:17
Svona rann hraun niður í Nátthaga Hraun fór að flæða niður í Nátthaga eftir hádegi í dag. Varnargarðar voru settir upp til að reyna að hindra það að hraun myndi flæða niður í Nátthaga og yfir Suðurstrandarveg. Innlent 22.5.2021 14:19
Hraun flæðir niður í Nátthaga „Það er víst. Hraunið er farið að renna niður í Nátthaga,“ segir Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjörns þegar fréttastofa hafði samband við hann. Mbl.is greindi fyrst frá. Innlent 22.5.2021 13:08
Ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga Umhverfis- og byggingaverkfræðingur ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga þar sem líkur eru á að hraun fari fljótlega að renna niður brekkuna og ofan í Nátthaga. Innlent 22.5.2021 10:37
Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið. Innlent 21.5.2021 18:01
Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. Innlent 20.5.2021 22:31
Vara við mengun af völdum brennisteinsdíoxíðs Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar við því að líkur séu á mengun í borginni í dag og næstu daga af völdum brennisteinsdíoxíðs. Hækkuð gildi hafi mælst síðastliðinn sólarhring. Innlent 20.5.2021 13:51
Ýttu upp neyðargörðum fram á nótt til að verjast hraunrennsli Stíflugerðarmenn á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli stóðu í æsispennandi kapphlaupi í gærkvöldi og fram á nótt við að ryðja upp neyðargörðum þegar hraunrennsli stefndi á eystri varnargarðinn ofan Nátthaga. Búið er að bæta við annarri jarðýtu til að hraða styrkingu varnargarðanna. Innlent 20.5.2021 13:25
Heilmikil hrauná við eystri varnargarðinn Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands vekur athygli á því að í hádeginu hafi opnast heilmikil hrauná rétt aftan við eystri varnargarðinn á Fagradalsfjalli. Þykir ljóst að farvegir neðanjarðar séu að veita bráð að jaðri hraunbreiðunnar úr tjörninni ofar í hrauninu. Innlent 20.5.2021 13:04
Telur tíu til tuttugu eldgos geta fylgt í kjölfarið á Reykjanesskaga Landsmenn þurfa að vera viðbúnir tíu til tuttugu eldgosum á Reykjanesskaga á næstu tveimur til þremur öldum, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Gera verði ráð fyrir mun myndarlegri hraungosum en því sem nú stendur yfir. Innlent 19.5.2021 22:44
Náttúruspjöll við Geldingadali Eldgos eru einhverjar alstórfenglegustu náttúruhamfarir sem verða á jörðinni. Íslendingar hafa frá upphafi byggðar þurft að takast á við þessi öfl náttúrunnar, og oft á tíðum orðið fyrir miklum búsifjum af völdum jarðelda. Síðari ár höfum við þó einnig notið fegurðar þeirra og margbreytileika. Skoðun 19.5.2021 16:32
Guðni á gosstöðvunum: „Ólýsanleg og ógleymanleg stund“ „Þetta var ólýsanleg og ógleymanleg stund sem ég var þess heiðurs aðnjótandi að eiga í gærkvöldi,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem fór að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær. Hann segir gosið nánast vera eins og gjöf til þjóðarinnar frá æðri máttarvöldum – leið til að kynna land og þjóð nú þegar verið er að opna á ferðalög á ný. Lífið 19.5.2021 14:30
Hraunrennslið óbreytt og engin leið að vita hve lengi gosið varir Hraunflæðismælingar benda til að gosið í Fagradalsfjalli hafi verið tvöfalt öflugra síðustu tvær vikur en það var að jafnaði fram að því. Samkvæmt mælingum sem gerðar voru í gær var meðalhraunrennslið 11 rúmmetrar á sekúndu daganna 11. til 18. maí, sem er aðeins minna en í vikunni á undan. Innlent 19.5.2021 12:20
Kostar 1.000 krónur frá og með deginum í dag að leggja við gosstöðvarnar Von er á tilkynningu frá Landeigendafélagi Hrauns sf. í dag, þar sem tilkynnt verður um gjaldtöku á bílastæðunum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Nú þegar er hægt að greiða fyrir að leggja bílnum í Parka-smáforritinu. Innlent 19.5.2021 06:27
Segir sóun að ætla að stöðva hraunið með varnargörðum Hafist var handa í dag við að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð eftir að ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja tuttugu milljónum króna til verksins. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur þetta sóun, engin leið sé að stöðva hraunið með varnargörðum. Innlent 18.5.2021 22:44