Vistheimili

Fréttamynd

Kerfið mikið breytt frá því að Barna­verndar­stofa var lögð niður

Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, segir ekki sjálfgefið að mál á borð við Bakkakotsmálið myndi berast inn á sitt borð. Barnaverndarþjónustan, sem hefur eftirlit með börnum í fóstri, ætti hins vegar að bregðast við og málið að rata til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Innlent
Fréttamynd

Vist­menn á Hjalt­eyri krefjast bóta sem þeim var lofað

Lögmaður vistmanna sem dvöldu á barnaheimilinu við Hjalteyri á áttunda áratugnum hefur gert kröfu um bætur fyrir tjón og miska af völdum rekstraraðila barnaheimilisins á hendur íslenska ríkinu og send forsætisráðherra til meðferðar og lúkninga. Vinnsla málsins hafi strandað í forsætisráðuneytinu í tíð Katrínar Jakobsdóttur.

Innlent
Fréttamynd

„Við þurfum að horfast í augu við þessa for­tíð“

Framkvæmdastýra Rótarinnar segir nauðsynlegt fyrir framtíð barnaverndar- og meðferðakerfisisins alls að allur starfstími Barnaverndarstofu, frá 1995 til 2021, verði gerður upp. Tilefnið er umfjöllun um ofbeldi á börnum á Bakkakoti á Rangárvöllum á árunum 1975 til 2002. 

Innlent
Fréttamynd

„Síminn stoppar ekki“

Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku.

Innlent
Fréttamynd

For­dæmdu börnin

Í Kveik í gær birtust enn á ný frásagnir sem eiga aldrei að þurfa að heyrast í nútímasamfélagi.

Skoðun
Fréttamynd

Mun hærri dánar­tíðni og meiri ör­orka hjá fyrrum vöggu­stofu­börnum

Dánartíðni er hærri og örorka meiri meðal þeirra sem dvöldu á vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á áttunda áratug síðustu aldar en jafnaldra þeirra. Samkvæmt vöggustofunefnd er ekki hægt að slá því föstu að börnin hafi sætt illri meðferð þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið ábótavant. Borgarstjóri ætlar að bregðast við tillögum nefndarinnar um úrbætur.

Innlent
Fréttamynd

Vildi að sonurinn hefði aldrei farið á Stuðla

Móðir drengs sem svipti sig lífi eftir margra ára baráttu við fíknivanda segir meðferðarheimili Stuðla hafa gert illt verra og að sonur sinn hafi orðið fyrir ofbeldi innan heimilisins. Úrræðaleysi og afskiptaleysi taki við eftir átján ára aldur.

Innlent
Fréttamynd

„Þessi mál hafa verið ó­lestri í allt­of, allt­of langan tíma“

Mennta- og barnamálaráðherra segir meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni hafa verið í ólestri alltof lengi. Hann leggur áherslu á að klára endurskoðun á slíkri starfsemi sem allra fyrst og hefur heimsótt nokkur meðferðarheimili nú þegar. Heilbrigðisráðuneytið er haft með í ráðum.

Innlent
Fréttamynd

Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum

Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir alltaf hægt að gera betur í starfsemi meðferðarheimila, eftir að starfsmenn og skjólstæðingar á meðferðarheimilinu Bjargey lýstu brestum á starfinu. Hún segir meðferðar heimilið nýtt og því eðlilegt að enn sé verið að móta starfið.

Innlent
Fréttamynd

Börnin bíða meðan lausnin stendur auð

Það ríkir neyðarástand í málefnum barna og unglinga sem glíma við alvarlegan hegðunar- og geðrænan vanda hérlendis. Í dag eru Stuðlar eina vistunarúrræðið sem stendur til boða fyrir börn í slíkri stöðu og þar eru einungis örfá rými.

Skoðun
Fréttamynd

Býst við kol­svartri skýrslu

Formaður rannsóknarnefndar um Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á áttunda áratugnum segist hafa fengið afar jákvæð viðbrögð við beiðni um að fólk lýsi reynslu sinni af starfsemi stofnunarinnar. Talsmaður fólks á Vöggustofum býst við jafn kolsvartri skýrslu um þetta tímabil og önnur sem hafa þegar verið rannsökuð.

Innlent
Fréttamynd

Segja á­sakanir „upp­spuna frá rótum“ og „efni í hryllings­mynd“

Hjónin fyrrverandi sem veittu meðferðarheimilunum að Varpholti og Laugalandi forstöðu á árunum 1997 til 2007 segjast hafa mátt sæta ærumeiðingum og rógburði í fleiri ár. Þau segja að enginn fótur sé fyrir ásökunum fyrrum skjólstæðinga um meint andlegt og líkamlegt ofbeldi, skort á eftirliti, ógnarstjórnun og ásökunum um félagslega einangrun og niðurbrot. Þá hafi ríkisvaldið tekið þátt í „rógsherferð“ sem staðið hafi yfir í á fjórða ár gegn hjónunum.

Innlent
Fréttamynd

Biðla til stjórn­valda að klára málið

Konur segja stjórnvöld hafa sýnt þeim algjört tómlæti í næstum tvö ár þrátt fyrir að opinber greinargerð sýni að þær voru beittar alvarlegu ofbeldi á meðferðarstofnun sem unglingar. Þær segja að vistin þar hafi skilið eftir djúp sár og margar þeirra glími enn við afleiðingarnar. Stjórnvöld þurfi að viðurkenna mistökin og bera ábyrgð.

Innlent
Fréttamynd

Al­manna­hags­munir að slíkar upp­lýsingar séu opin­berar

Forstjóri Gæða-og eftirlitsstofnunar velferðarmála segir úrskurð Persónuverndar um greinargerð um meðferðarheimilið Laugaland/Varpholt hafa komið á óvart. Í honum fólst að fjarlægja þurfti greinargerð af vef stofnunarinnar. Slík mál eigi erindi við almenning og eigi ekki við um úttektir sem stofnunin vinnur að í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Furða sig á að starfs­fólkið þegi enn­þá

Konur sem segjast sem unglingar hafa orðið fyrir miklu ofbeldi af hálfu stjórnenda á meðferðarheimili á Laugalandi áður Varpholti, furða sig á þögn annarra starfsmanna. Þá er fyrrverandi forstjóri Barnarverndarstofu sakaður um að hafa reynt að hafa áhrif á vitnisburð um heimilið fyrir opinberri nefnd.

Innlent
Fréttamynd

„Mér fannst skömmin vera svo mikil“

Maður sem var fjórtán ára vistaður á Unglingaheimili ríkisins 1979 segir að forstöðumaður heimilisins hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi í tvígang. Hann og aðrir segja að skelfilegt ofbeldi hafa átt sér stað af hálfu nokkurra starfsmanna meðan þeir dvöldu þar.

Innlent
Fréttamynd

Vítisvist á Ung­linga­heimili ríkisins

Maður sem var sem unglingur vistaður á Unglingaheimili ríkisins í Kópavogi lýsir  vítisvist. Innilokunum, barsmíðum og kynferðislegu ofbeldi. Tveir starfsmenn hafi sparkað úr honum tennurnar þegar þeim mistókst að koma fram vilja sínum.  Sanngirnisbætur sem hann fékk á sínum tíma hafi ekki einu sinni dugað fyrir tannlækniskostnaði. 

Innlent
Fréttamynd

Sat sak­­laus í ung­lingafangelsi í tvö ár

Sjónskertur maður var sem drengur sóttur af lögreglu og lokaður inni á Níunni sem tilheyrði Unglingaheimili ríkisins í tvö ár á áttunda áratug síðustu aldar. Tildrög vistunnar hans eru alls óljós og honum gafst ekki kostur á skólagöngu meðan á dvölinni stóð.

Innlent
Fréttamynd

Hið opin­bera skuldi sér og öðrum mæðrum af­sökunar­beiðni

Kona sem missti barn sitt á Vöggustofu vegna veikinda og var þar neitað um að umgangast það fer fram á að Reykjavíkurborg og aðrir opinberir aðilar sem komu að málinu biðji sig afsökunar. Fátækar, einstæðar og veikar mæður sem hafi misst börnin sína á slíkar stofnanir eigi inni afsökunarbeiðni frá hinu opinbera.

Innlent
Fréttamynd

Vaknaði og barnið var horfið

Kona sem þurfti vegna alvarlegs heimilisofbeldis að gangast undir aðgerð á Landakotsspítala segir að stjórnendur þar hafi ákveðið án samráðs að taka af henni kornabarn og vista á vöggustofu. Áður hafði henni verið sagt að barnið, sem var á brjósti, fengi að vera hjá henni meðan hún væri að jafna sig.

Innlent