Betri helmingurinn með Ása
1 2 ›
Tók eftir undarlegri hegðun í aðdraganda bónorðsins Leikaraparið Ebba Katrín og Oddur kynntist innan veggja Þjóðleikhússins fyrir fjórum árum síðan. Oddur heillaðist af Ebbu en hún var enn í leiklistarnámi sem átti hug hennar allan og hafði hún því lítinn tíma fyrir stefnumótalíf. Oddur gafst þó ekki upp og sýndi Ebbu ómælda þolinmæði og eru þau trúlofuð í dag. Lífið 3.2.2022 22:01
Féll fyrir henni þegar hann sá hana á sviðinu Þau Addi og Ellen voru búin að taka eftir hvort öðru á göngum Borgarleikhússins þegar Addi ákvað að laumast inn á æfingu hjá Íslenska dansflokknum til þess að horfa á Ellen. Hann heillaðist strax af útgeislun hennar og ákvað að hringja í hana og bjóða henni á stefnumót. Þau byrjuðu fljótlega saman og eiga þau í dag fjögurra ára gamlan son. Lífið 27.1.2022 21:00
„Þetta er náttúrlega hræðileg hugmynd, að byrja með besta vini sínum og samstarfsfélaga“ Þau Edda Sif og Vilhjálmur kynntust innan veggja RÚV og urðu þau fljótt góðir vinir. Á þeim tímapunkti áttu þau bæði maka og voru þau meira að segja öll saman í matarklúbbi. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar, þegar þau voru bæði orðin einhleyp að þau fóru að þróa tilfinningar í garð hvors annars. Lífið 20.1.2022 22:00
Saman síðan á unglingsárum: „Ég tilkynnti honum að hann væri númer tvö, því fótboltinn væri númer eitt“ „Við hugsuðum bara: Prófum þetta bara! Ef þetta gengur ekki þá bara hættum við saman en ef þetta gengur þá kannski verðum við bara alltaf saman,“ segir landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir. Hún og eiginmaður hennar, Ómar Páll Sigurbjartsson hafa verið saman síðan þau voru unglingar en þau voru í fjarsambandi í sex og hálft ár vegna fótboltaferils Dagnýjar. Lífið 12.1.2022 22:15
Ástfangin í ellefu ár þrátt fyrir þrettán ára aldursmun Snæbjörn og Agnes kynntust þegar hann var að leikstýra henni í skólaleikriti í Framhaldsskólanum á Húsavík. Það var þó ekki fyrr en nokkrum árum seinna sem Agnesi dreymdi draum sem varð til þess að Snæbjörn sendi henni skilaboð og þau fóru í kjölfarið að stinga saman nefjum. Í dag eru þau gift, eiga saman tvö börn og ellefu ára samband að baki. Lífið 5.1.2022 22:00
Bauð henni í mat en fékk að vita það mörgum árum seinna að maturinn hafi verið hræðilegur Þau Ágústa og Guðlaugur Þór höfðu þekkst í þónokkur ár áður en þau fóru að vera saman. Guðlaugur segist hafa verið útsjónarsamur og fundið sér hin ýmsu tilefni til þess að sýna Ágústu áhuga. Þegar hann bauð henni loks heim í mat eldaði hann ungverska gúllassúpu sem Ágústu þótti hræðileg á bragðið. Þrátt fyrir súpuna hræðilegu eiga þau að baki 20 ára hjónaband og stóra fjölskyldu. Lífið 29.12.2021 22:00
„Hef aldrei viljað gefast upp þrátt fyrir miklar mótbárur og stóra veggi“ Þegar Íris sá Bjössa fyrst á skemmtistaðnum Gauknum fyrir tuttugu árum síðan vissi hún strax að þarna hefði hún séð manninn sinn. Það tók hana hins vegar sex mánuði að hafa upp á honum aftur og þá veitti Bjössi henni enga athygli. Það hafði einfaldlega ekki hvarflað að honum að hann ætti séns í þessa gullfallegu stúlku. Lífið 22.12.2021 22:00
Fékk símreikning upp á hundrað þúsund nokkrum vikum eftir að hann hitti Ingu Inga sá Góa fyrst þegar hann birtist í stefnumótaþættinum Djúpu lauginni árið 2003. Hún fékk númerið hans hjá sameiginlegum vini og fóru þau að skiptast á SMS-skilaboðum. Þegar þau ákváðu loks að hittast hafði Gói aldrei litið Ingu augum, en féll þó fyrir henni í gegnum símann þegar hann heyrði að hún kynni að meta slátur og saltkjöt. Lífið 15.12.2021 22:01
Fóru á rúntinn á fimmtudegi og voru flutt inn saman á laugardegi „Ég gaf henni gjöf strax þegar við hittumst fyrst. Það var svona Darth Vader stressbolti og þar sýndi ég henni bara strax hvað ég væri mikill lúði. Þannig hún hefði bara getað skilað honum og farið út strax,“ segir tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann um það þegar hann hitti Kristínu í fyrsta sinn, konuna sem lagið hans Þig ég elska fjallar um. Lífið 8.12.2021 20:00
Eldaði hafragraut á fyrsta stefnumóti: „Þetta var það síðasta sem mig langaði í“ Á skömmum tíma hafa þau Metta og Áki stimplað sig inn í íslenskan veitingabransa með keðjunni Maikai sem hófst sem ástríðuverkefni í eldhúsinu heima. Þau eru þó ekki einungis viðskiptafélagar, heldur eru þau einnig par. Ástarsaga þeirra byrjaði eins og margar nútíma ástarsögur, með „followi“ á Instagram. Lífið 24.11.2021 22:00
Endaði með matareitrun á bifvélaverkstæði í Queens Hermann kom auga á Alexöndru þegar hún fór að vinna í sömu byggingu og hann. Hún var fallegasta manneskja sem hann hafði nokkurn tímann augum litið og því gerði hann sér upp ýmsar afsakanir til þess að heimsækja verslunina sem hún var að vinna í. Þegar hann ákvað loks að taka af skarið og hringja í hana, var Alexandra viss um að um símaat væri að ræða. Lífið 17.11.2021 12:50
Saman í fimmtán ár og hafa aldrei rifist Þau Birkir Már og Stebba kynntust í íþróttafræðinámi á Laugarvatni. Stebbu leist hins vegar ekki á blikuna í fyrstu þegar Birkir gerði henni ljóst hvaða tilfinningar hann bæri til hennar. Hún var tveggja barna móðir og hann þremur árum yngri. Þau smullu þó fljótlega saman og voru flutt inn saman nokkrum mánuðum síðar. Lífið 10.11.2021 14:31
Voru ennþá með útivistartíma þegar þau byrjuðu saman Elísabet og Gunnar kynntust í grunnskóla. Þau voru sætisfélagar í ensku og þurfti kennarinn stöðugt að hafa afskipti af þeim þar sem þau gátu ekki hætt að tala saman. Í 10. bekk varð vinskapurinn loks að ástarsambandi en það hafði tekið þau langan tíma að viðurkenna að þau væru kærustupar. Í dag eiga þau tvö börn saman og eru að hreiðra um sig á Íslandi eftir að hafa verið á faraldsfæti síðustu 12 ár. Lífið 3.11.2021 16:14
Ætti að vera bannað að skilja á meðan börnin eru lítil Þau Hjálmar Örn og Ljósa hittust fyrst á tvöföldu stefnumóti sem skólasystir Ljósu plataði hana á. Eftir stefnumótið sagðist Hjálmar gjarnan vilja hitta Ljósu aftur en tilkynnti henni þó að hann ætti stefnumót við aðra dömu daginn eftir. Ljósa var því óviss hvort hún myndi nokkurn tíman heyra frá Hjálmari aftur. Hann var hins vegar fljótur að átta sig á því að hann vildi kynnast Ljósu betur. Lífið 27.10.2021 13:30
Voru nálægt hjónaskilnaði eftir tangónámskeið Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona og Reynir Lyngdal kvikmyndagerðarmaður kynntust fyrst þegar þau unnu saman á kaffihúsi en voru þá bæði í sambandi og byrjuðu því ekki að deita fyrr en síðar. Lífið 22.10.2021 07:00
Féll fyrir æskuástinni á fermingarmyndinni Þau Björgvin Páll og Karen kynntust þegar þau voru unglingar. Björgvin var staddur í strákapartýi hjá bróður Karenar þegar hann sá fermingarmynd af henni uppi á vegg og ákvað að biðja um númerið hennar. Það vatt heldur betur upp á sig og hafa þau nú verið gift í tíu ár og eiga saman fjögur börn. Lífið 13.10.2021 22:00
Töluðu saman í hálft ár áður en þau hittust loksins Þau Sylvía og Emil höfðu verið að tala saman í hálft ár þegar Emil ákvað að láta til skarar skríða og biðja Sylvíu um að hitta sig. En þegar Sylvía var rétt ókomin heim til hans hætti Emil skyndilega við. Síðar kom þó í ljós að hann hafi einfaldlega verið stressaður. Í dag eiga þau tvo syni, fyrirtæki og níu ára samband að baki. Lífið 11.10.2021 14:01
Herra Hnetusmjör fann ástina í meðferð Herra Hnetusmjör kynntist ástinni lífi sínu, Söru Linneth, í meðferð á Vogi. Þau segjast bæði hafa verið á versta tímapunkti í sínu lífi og hafði þeim verið ráðlagt frá því að vera að stinga saman nefjum. Unga parið lét þó ekki segjast og hafa í dag tekið edrúmennskuna föstum tökum og eiga von á sínu öðru barni saman. Lífið 30.9.2021 06:01
„Þarna fékk ég mjög bólgið nef, glóðurauga á öðru og það var blóð út um allt“ Þau Rakel og Rannver eru „Covid-par“ að eigin sögn. Þökk sé heimsfaraldrinum höfðu þau nægan tíma til þess að kynnast. Vinnustöðum þeirra var lokað og gátu þau því eytt öllum stundum saman á sínu bleika skýi. Bleika skýið var þó ekki svo bleikt lengur þegar óhapp í svefnherberginu varð til þess að Rakel endaði með glóðurauga og blóðnasir. Lífið 23.9.2021 06:01
Sagði nei þegar Bjarni bað hana um að byrja með sér Þau Bjarni Benediktsson og Þóra Margrét Baldvinsdóttir byrjuðu saman þegar þau voru táningar. Þóru leist þó ekki alveg nógu vel á Bjarna í fyrstu og sagði nei þegar hann bað hana fyrst um að byrja með sér. Í dag eiga þau þó yfir þrjátíu ára samband að baki, þótt Bjarni viðurkenni að þau séu vissulega þrjú í sambandinu; Þóra, Bjarni og farsíminn hans. Lífið 16.9.2021 06:00
„Maður ræður ekki hvenær ástin bankar upp á“ Ástarsaga þeirra Þorgerðar Katrínar og Kristjáns spannar nærri því fjörutíu ár og má segja að þau eigi handboltanum það að þakka. Foreldrum Þorgerðar fannst hún þó heldur ung þegar þau fóru að vera saman en hún segir að maður hafi enga stjórn á því hvenær ástin bankar upp á. Lífið 8.9.2021 22:01
Hittust fyrst á bókasafni Samtakanna 78: „Ég hélt hann ætlaði aldrei að hringja“ Þeir Felix og Baldur voru báðir tiltölulega nýkomnir út úr skápnum á fullorðinsaldri þegar þeir litu hvorn annan augum á bókasafni Samtakanna 78 árið 1996. Það var þó ekki fyrr en Baldur elti Felix uppi á skemmtistað mánuði síðar sem þeir fóru að stinga saman nefjum og þá var ekki aftur snúið. Lífið 6.9.2021 12:31
Fann ástina fjórtán ára gömul í fermingarveislu Þau Arna Petra Sverrisdóttir og Tómas Ingi Gunnarsson byrjuðu saman þegar þau voru aðeins fjórtán ára gömul. Arna kom auga á Tómas í fermingarveislu hjá sameiginlegum vin sem varð til þess að hún pókaði hann á Facebook. Í dag eiga þau níu ára samband að baki og hafa upplifað hin ýmsu ævintýri saman. Lífið 25.8.2021 20:06
Rómantísk sigling tók óvæntan snúning: „Ég hoppaði út í vatnið og reyndi að kúka í sjóinn“ Listaparið Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson höfðu verið vinir frá því í grunnskóla þegar þau loksins byrjuðu saman árið 2015. Þá höfðu þau verið að stinga saman nefjum í tvö ár en það var eiginkona afa Blævar sem tilkynnti það í fjölskylduboði að þau væru kærustupar og var þá ekki aftur snúið. Lífið 20.8.2021 20:01