Salan á Mílu
1 2 3 … 3 ›
Furðar sig á ákvörðun Seðlabankans Orri Hauksson forstjóri Símans furðar sig á ákvörðun fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands sem sektaði félagið um 76,5 milljónir króna í vikunni. Hann segir félagið hafa birt allar upplýsingar sem beri að birta samkvæmt lögum. Síminn ætlar að skjóta ákvörðuninni til dómstóla. Viðskipti innlent 4.11.2023 17:49
Síminn sektaður um 76 milljónir Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands hefur sektað símann um 76,5 milljónir. Síminn þótti ekki hafa birt ætlaðar innherjaupplýsingar eða ákvörðun um frestun þeirra í tengslum við söluna á Mílu. Síminn mun skjóta málinu til dómstóla Viðskipti innlent 3.11.2023 19:09
Marinó tekur við Mílu af Marion Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 26.10.2023 09:10
Samkeppniseftirlitið vill ekki fella niður sátt við Símann Samkeppniseftirlitið telur ekki að sala Símans á Mílu og breyttar markaðsaðstæður Símans réttlæti það að sátt, sem gerð var árið 2013 verði felld úr gildi. Sáttin felur meðal annars í sér aðskilnað heild- og smásölu Símans og bann við samkeppnishamlandi samningum. Viðskipti innlent 7.7.2023 08:56
Hlutafjárútboð Ljósleiðarans bjóði hættunni heim Meirihluti rýnihóps borgarráðs hefur gefið Ljósleiðaranum græna ljósið til að ráðast í hlutafjárútboð um allt að ellefu milljarða króna. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands vill að fjarskiptainnviðir séu í eigu almennings og gefur lítið fyrir varnagla meirihlutans um að halda meirihlutastjórn í fyrirtækinu. Innlent 17.4.2023 13:35
Ardian: Auðveldara að fjárfesta á Íslandi ef samkeppnislögin eru eins og í Evrópu Fjárfestingarstjóri hjá Ardian, sem stóð að stærstu erlendu fjárfestingunni hér á landi í meira en áratug með kaupunum á Mílu í lok síðasta árs, segir að fyrir erlenda langtímafjárfesta sé mikilvægt að þeir upplifi það að vera meðhöndlaðir af hálfu stjórnvalda með sama hætti og innlendir fjárfestar. Afar erfitt sé hins vegar að eiga við þá áhættu sem tengist vaxtastiginu og flökti í gengi krónunnar. Innherji 5.2.2023 13:56
Ardian opið fyrir frekari fjárfestingu á Íslandi Franska sjóðstýringarfyrirtækið Ardian, sem gekk nýverið frá kaupunum á Mílu, er opið fyrir því að fjárfesta í fleiri innviðum hér á landi ef slík tækifæri bjóðast, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Nýr innviðasjóður Ardian var kynntur fyrir innlendum lífeyrissjóðum undir lok síðasta árs. Innherji 19.1.2023 07:01
Ráðinn forstjóri Mílu eftir tíu ár hjá Símanum Míla hf. hefur ráðið Erik Figueras Torras sem nýjan forstjóra og mun hann taka við stöðunni frá og með 1. desember 2022. Viðskipti innlent 8.11.2022 11:59
Voru „ekki augljós tækifæri“ að nýta söluhagnað Mílu í fjárfestingar erlendis Forstjóri Símans segir að það hafi verið kannað gaumgæfilega hvort það væru fyrir hendi ákjósanlegir fjárfestingarkostir erlendis til að nýta að hluta þá miklu fjármuni sem félagið fékk við söluna á Mílu. Svo hafi ekki verið og því ákveðið að greiða þá alla út til hluthafa en félagið hafi ekki viljað vera „yfirfjármagnað“ nema að fyrir lægju skýr markmið um hvað ætti að gera við þá fjármuni. Innherji 26.10.2022 16:40
Ný stjórn Mílu tekur á sig mynd eftir kaup Ardian Stjórnarmönnum í Mílu hefur fjölgað úr þremur í fimm eftir að eignarhaldið á félaginu færðist í hendur franska sjóðastýringarfélagsins Ardian en á meðal þeirra sem koma inn í stjórn innviðafyrirtækisins er fyrrverandi forstjóri stærsta farsímaturnafélags Ítalíu. Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa yfir að ráða einum stjórnarmanni í krafti samtals tíu prósenta eignarhlutar í félaginu. Innherji 20.10.2022 09:32
Stjórn Símans vill greiða nær allt söluandvirði Mílu út til hluthafa Á hluthafafundi sem stjórn Símans hefur boðið til verður lögð fram tillaga um lækkun hlutafjár félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna, sem nánast allt reiðuféð sem fjarskiptafélagið fékk fyrir söluna á Mílu. Jafnframt er til skoðunar að selja eða greiða út til hluthafa 17,5 milljarða króna skuldabréf sem var hluti af sölunni. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Innherji 30.9.2022 12:48
Lífeyrissjóðir með helmingi minni hlut í Mílu en þeim stóð til boða að kaupa Takmörkuð aðkoma sumra af stærstu lífeyrissjóðum landsins við kaup á hlutum í Mílu í samfloti með franska sjóðastýringarfélaginu Ardian þýðir að samanlagður eignarhlutur sjóðanna í fjarskiptafyrirtækinu verður talsvert minni en áður var áætlað. Íslensku lífeyrissjóðirnir munu tilnefna fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Símanum sem fulltrúa sinn í stjórn Mílu eftir að viðskiptin klárast. Innherji 29.9.2022 07:01
Salan á Mílu stóð tæpt eftir óvænt útspil Í byrjun september leit út fyrir að kaup franska sjóðastýringarfélagsins Ardian á Mílu, sem Samkeppniseftirlitið blessaði í síðustu viku eftir undirritun sáttar við Ardian, myndu renna út í sandinn. Klinkið 19.9.2022 10:53
Biðstaða á meðan fjárfestar bíða eftir planinu hjá stjórn Símans Efnahagsreikningur Símans tekur stakkaskiptum núna þegar loksins er orðið ljóst að salan á Mílu fyrir tæplega 70 milljarða króna gengur í gegn. Stóra spurningin, sem ætti að opinberast á allra næsta vikum, er hvað félagið hyggst gera við það mikla reiðufé sem það situr á eftir söluna. Flestir eiga von á því að þeir fjármunir verði meira eða minna allir greiddir út til hluthafa. Klinkið 18.9.2022 13:20
Forstjóri Símans: Hefðum aldrei sætt okkur við þetta söluverð í fyrra Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir fyrirtækið öðlast „langþráð athafnafrelsi“ með því að ljúka sölunni á dótturfyrirtækinu Mílu. Það var besti kosturinn í stöðunni, að hans sögn, þrátt fyrir að söluverðið hefði lækkað um alls 8,5 milljarða króna vegna þeirra kvaða sem settar eru á innviðafyrirtækið. Sú afstaða helgast meðal annars af því að efnahagsumhverfið er gjörbreytt frá því að skrifað var undir kaupsamninginn í fyrra. Innherji 16.9.2022 07:01
Telur söluna á Mílu skapa aukna njósnahættu Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir sölu Símans á Mílu til fransks félags skapa njósnahættu. Full ástæða sé til að óttast að erlend njósnastarfsemi muni fylgja sölunni og huga þurfi því betur að öryggismálum. Innlent 16.9.2022 06:58
SKE samþykkir söluna á Mílu og kaupverðið lækkar í 69,5 milljarða Samkeppniseftirlitið og sjóðastýringarfyrirtækið Ardian hafa náð samkomulagi um þau skilyrði sem verða sett við kaupin á Mílu en erfiðar viðræður hafa staðið yfir milli eftirlitsins og franska félagsins allt frá því í júlí. Forstjóri Símans segist „afskaplega ánægður“ með að söluferlið hafi loksins klárast. Innherji 15.9.2022 08:53
Innviðakaup Ljósleiðarans kunna að vekja blendnar tilfinningar hjá Ardian Sýn og Ljósleiðarinn tilkynntu í gær um að náðst hefði samkomulag um einkaviðræður sem lúta að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3 milljarðar króna og gert er ráð fyrir 10 ára þjónustusamningi á milli fyrirtækjanna. Klinkið 6.9.2022 14:21
Síminn gerir ekki ráð fyrir að frekari breytingum á söluverði Mílu Orri Hauksson, forstjóri Símans, segist gera ráð fyrir því að salan á Mílu klárist án þess að frekari breytingar verði á kaupsamningnum. Þetta kom fram í máli Orra á uppgjörsfundi Símans í morgun. Innherji 24.8.2022 09:37
Skiptir mestu að „fá botn í söluna á Mílu,“ segir stjórnarformaður Símans Það sem skiptir mestu í rekstri Símans þessi misserin er að „fá botn í söluna á Mílu,“ segir stjórnarformaður og stærsti hluthafi fjarskiptafélagsins. Gangi viðskiptin eftir má vænta þess að boðað verði til hluthafafundar í haust þar sem sagt verði frá því hvernig til standi að ráðstafa söluandvirðinu á Mílu sem hefur nú þegar lækkað um fimm milljarða frá því sem fyrst var samið um við franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian. Innherji 15.8.2022 09:57
Áframhaldandi sáttaviðræður milli Ardian og Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur fallist á ósk Ardian um framlengdan frest á rannsókn samruna Ardian og Mílu. Fresturinn var framlengdur um tuttugu daga og rennur því út þann 15. september næstkomandi. Viðskipti innlent 11.8.2022 19:33
Markaðsvirði Símans hefur lækkað um 12,4 milljarða frá tilkynningu SKE Markaðsvirði Símans hefur minnkað um 12,4 milljarða króna frá hádegi í gær þegar Samkeppniseftirlitið birti umsagnir keppinauta fjarskiptafyrirtækisins um söluna á Mílu til franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian. Innherji 10.8.2022 16:30
Ekki hlutverk eftirlitsins að vernda Ljósleiðarann, segir Ardian Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian og Síminn telja ljóst af umsögn Ljósleiðarans um söluna á Mílu að innviðafyrirtækið, sem er í opinberri eigu, vilji atbeina Samkeppniseftirlitsins til þess að takmarka samkeppni og verja „markaðsráðandi stöðu sína“. Þetta kemur ítrekað fram í athugasemdum fyrirtækjanna tveggja um umsögn Ljósleiðarans. Innherji 10.8.2022 10:55
Stærsta innviðasala Íslandssögunnar hangir á bláþræði Kaupin á Mílu eru um margt prófsteinn á það hvort erlendir langtímafjárfestar megi – hafi þeir á annað borð áhuga á með hliðsjón af flækjustiginu sem því oft fylgir – eiga í alvöru viðskiptum hér á landi þar sem ekki er verið að tjalda til einnar nætur, heldur áratuga, líkt og er ætlun Ardian. Þessa dagana erum við fá að svarið við þeirri spurningu. Umræðan 9.8.2022 15:47
Keppinautar vilja skerða einkakaup milli Símans og Mílu til muna Keppinautar Símasamstæðunnar telja að fyrirhugaður einkakaupasamningur á milli Símans og Mílu til 17 ára hafi skaðleg áhrif á samkeppni á íslenskum fjarskiptamarkaði og því þurfi að stytta lengd samningsins til muna. Þetta kemur fram í umsögnum fjarskiptafyrirtækja um tillögur franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian um skilyrði vegna kaupanna á Mílu. Innherji 9.8.2022 12:57
Ardian borgar fimm milljörðum minna fyrir Mílu Síminn og Ardian náðu í dag samkomulagi um breytingar á kaupsamningi Ardian á Mílu ehf.. Meðal breytinanna sem samþykktar voru er að Ardian borgi 73 milljarða króna í staðinn fyrir 78 milljarða líkt og var fyrst samið um. Viðskipti innlent 22.7.2022 21:14
Salan á Mílu eykur fjárfestingar og lækkar verð, segir leiðandi ráðgjafi Analysys Mason, virt ráðgjafastofa á sviði fjarskipta sem hefur fleiri hundruð ráðgjafa á sínum snærum, telur að salan á Mílu muni stuðla að aukinni fjárfestingu í innlendum fjarskiptainnviðum og lægra verði á fjarskiptaþjónustu. Þetta kemur fram í greiningu sem ráðgjafastofan útbjó að beiðni Ardian. Innherji 22.7.2022 12:54
Ardian ósammála Samkeppniseftirlitinu í öllum efnisþáttum Fjárfestingarsjóðurinn Ardian lýsir sig ósammála öllum efnisþáttum í frummati Samkeppniseftirlitsins á kaupum sjóðsins á Mílu frá Símanum. Í frummatinu segir að það sé hætta á að keppinautum í innviðastarfsemi fækki og að viðskiptavinir Símans geti orðið af verðlækkunum. Viðskipti innlent 22.7.2022 12:27
„Þá erum við í vondum málum, íslenskt samfélag“ Þingmaður segir það mun skaðlegra fyrir orðspor Íslands ef slegið yrði af kröfum um eftirlit með samkeppni, heldur en ef kaup fransks fjárfestingasjóðs á Mílu ná ekki fram að ganga. Samkeppniseftirlitið verði að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Viðskipti innlent 21.7.2022 12:00
Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið. Viðskipti innlent 19.7.2022 06:32