Innrás Rússa í Úkraínu
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 86 ›
Selenskí kominn til Japans Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, lenti í Japan í morgun þar sem hann mun sækja leiðtogafund G-7 ríkjanna. Þar hefur þegar verið ákveðið að herða viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Erlent 20.5.2023 10:29
Hafa gert umfangsmiklar breytingar á rússneska hernum Forsvarsmenn rússneska hersins hafa þurft að gera umfangsmiklar breytingar á heraflanum, sökum mikils mannfalls og annarra vandræða tengdum innrás Rússa í Úkraínu. Margar af þessum breytingum hafa reynst vel og er herinn betur fallinn að átökunum í austurhluta landsins. Erlent 20.5.2023 08:00
Stóraukið myndavélaeftirlit í miðborginni Myndavélar sem keyptar voru í tilefni leiðtogafundar Evrópuráðsins verða ekki fjarlægðar. 24 nýjar vélar voru keyptar að sögn upplýsingafulltrúa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins hefur miklar áhyggjur af auknu eftirliti. Innlent 19.5.2023 19:45
Hefði „að sjálfsögðu ekki“ átt að vera kuldalegri við Meloni Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins en búið er að selja fjölda lúxusbíla. Innlent 19.5.2023 18:46
Biden samþykkir þjálfun úkraínskra flugmanna Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði öðrum leiðtogum á leiðtogafundi G-7 ríkjanna að Bandaríkjamenn styddu alþjóðlegt verkefni sem snýr að því að þjálfa úkraínska flugmenn á vestrænar herþotur og þar á meðal F-16, sem Úkraínumenn hafa beðið um um nokkuð skeið. Erlent 19.5.2023 15:16
Selenski óvænt í Sádi-Arabíu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er staddur í Sádi-Arabíu en þangað virðist hann hafa farið á leiðinni til Japan, þar sem hann mun sækja G-7 fundinn. Í Sádi-Arabíu mun Selenskí funda með krónprinsinum Mohammed bin Salman og öðrum á leiðtogafundi Arababandalagsins. Erlent 19.5.2023 11:54
Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð og Ódessa-fylki Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð og aðra hluta Ódessa-fylkis í morgun. Að sögn Úkraínumanna lést einn í árásunum og voru flestar eldflauganna skotnar niður. Talið er að árásin sé hluti af stigmögnun fyrir yfirvofandi gagnsókn Úkraínu. Erlent 18.5.2023 07:48
Forsætisráðherra Úkraínu segir að sækja verði stríðsglæpamenn til saka Forsætisráðherra Úkraínu segir það mikilvægt fyrsta skref að Evrópuráðið hafi ákveðið í dag að hefja skipulega skráningu á því tjóni sem Rússar hafa valdið Úkraínu með innrás sinni í landið. Næsta skref sé að stofna bótasjóð og að lokum verði að sækja alla glæpamenn stríðsins til saka. Innlent 17.5.2023 20:59
Litlar skemmdir á loftvarnarkerfinu Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna í Kænugarði, skemmdist lítið í eld- og stýriflaugaárásum Rússa á aðfaranótt þriðjudags og virkar enn. Ratsjá kerfisins, sem er mikilvægasti hluti þess, skemmdist ekkert, og sérfræðingar telja að hægt verði að gera við skemmdirnar á staðnum. Erlent 17.5.2023 15:07
„Mér finnst Úkraínumenn þegar hafa unnið þetta stríð“ Utanríkisráðherra Lettlands segir að Úkraínumenn hafi þegar unnið stríðið sem Rússar hófu með innrásinni í Úkraínu í febrúar á síðasta ári. Erlent 17.5.2023 13:16
Undirrituðu yfirlýsingu um skráningu þess tjóns sem Rússar hafa valdið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu, undirrituðu í morgun yfirlýsingu um að Evrópuráðið skrásetji það tjón sem Rússar hafi valdið og eru að valda í Úkraínu. Innlent 17.5.2023 08:40
Kanna hvort Rússum hafi tekist að skemma loftvarnarkerfi Bandaríkjamenn kanna nú mögulegar skemmdir Rússa á háþróuðu loftvarnarkerfi Úkraínumanna, sem þeir fengu að gjöf, bæði frá Bandaríkjamönnum og annað frá Hollendingum og Þjóðverjum. Erlent 16.5.2023 20:09
Afríkuleiðtogar munu funda með Pútín og Selenskí Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, segir að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí, forsetar Rússlands og Úkraínu, hafi samþykkt að funda í sitthvoru lagi með sendinefnd skipaðri afrískum þjóðarleiðtogum um mögulegar leiðir til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 16.5.2023 16:29
Friður geti ekki verið án réttlætis Þær Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, funduðu saman í dag. Þær eru sammála því að ekki sé hægt að koma á friði í Úkraínu án þess að réttlætinu sé framfylgt. Innlent 16.5.2023 16:17
Tölvuþrjótarnir kalla Vesturlönd nasista Tölvuþrjótahópurinn NoName057(16) hefur lýst yfir ábyrgð á netárásum á íslenska vefi í dag að því fram kemur í tilkynningu frá CERT-IS, í henni er NoName057(16) kallaður ógnarhópur. Hópurinn er hliðhollur Rússlandi. Erlent 16.5.2023 12:27
„Ógnvekjandi að finna sprengjuhvellina fara í gegnum mann“ Borgarbúar í Kænugarði vöknuðu upp með andfælum í nótt við einstaklega umfangsmikla eldflaugaárás Rússa en loftvarnakerfi Úkraínumanna skaut niður sex ofurhljóðfráar flaugar. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari segir það hafa verið ógnvekjandi að finna sprengjuhvellina fara í gegnum sig. Erlent 16.5.2023 12:06
„Við leiddum óvininn í Bakhmut-gildru“ Rússneskir hermenn og málaliðar Wagner hafa náð tökum á stærstum hluta Bakhmut í austurhluta Úkraínu. Úkraínskir hermenn eru sagðir halda til í nokkrum fjölbýlishúsum í vesturhluta bæjarins en þeir hafa gert vel heppnaðar en umfangslitlar gagnárásir á jaðri Bakhmut. Erlent 16.5.2023 11:21
Stöðvið stríðið í Úkraínu strax - semjið um frið og samvinnu í Evrópu Við undirritaðir friðarsinnar á Íslandi skorum á leiðtoga evrópskra ríkja að stöðva stríðið í Úkraínu nú þegar og vinna í kjölfarið að friði og samvinnu í Evrópu. Skoðun 16.5.2023 11:01
Ein umfangsmesta árásin á Kænugarð hingað til Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt eina hörðustu loftárásina á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, til þessa. Þetta er í áttunda sinn í þessum mánuði sem flaugum er skotið á borgina og drónum beitt en yfirmaður hersins í Kænugarði, Serhiy Popko, segir að í þetta sinn hafi árásin verið afar hörð. Erlent 16.5.2023 06:32
Senda Úkraínumönnum einnig langdræga dróna Bretar ætla að útvega Úkraínumönnum hundruð langdrægra sjálfsprengidróna og þjálfa úkraínska flugmenn á F-16 orrustuþotur. Þetta er í kjölfar þess að Bretar byrjuðu að senda stýriflaugar til Úkraínu en Úkraínumenn eru þegar byrjaðir að nota þær til árása gegn Rússum í austurhluta landsins og Rússar segjast hafa skotið eina niður. Erlent 15.5.2023 16:24
Ísland ætlar að gefa Úkraínu færanlegt neyðarsjúkrahús Formenn allra flokka á Alþingi hafa samþykkt að gefa Úkraínu færanlegt sjúkrahús. Þetta staðfestir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við fréttastofu. Innlent 15.5.2023 15:05
Bauðst til að benda á rússneska hermenn í skiptum fyrir Bakhmut Yevgeniy Prigozhin, rússneskur auðjöfur sem rekur málaliðahóp sem kallast Wagner Group, er sagður hafa boðið úkraínska hernum að segja þeim hvar rússneska hermenn mætti finna. Í skiptum vildi hann að Úkraínumenn hörfuðu frá bænum Bakhmut, sem Wagner hefur reynt að hernema frá síðasta sumri. Erlent 15.5.2023 10:11
Selenskí í óvæntri heimsókn á Bretlandseyjum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti heldur áfram ferðalagi sínu og í morgun mætti hann í óvænta heimsókn til Bretlands, þar sem hann mun funda með forsætisráðherranum Rishi Sunak. Erlent 15.5.2023 07:03
Ræðir vopn og nánara samstarf við þýska leiðtoga Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er nú í Þýskalandi í fyrsta skipti frá því að Rússar réðust inn í heimaland hans í fyrra. Hann segist ætla að ræða hernaðaraðstoð og aðild að Evrópusambandinu og NATO í heimsókninni. Ítalskir leiðtogar hétu honum áframhaldandi stuðningi í Róm í gær. Erlent 14.5.2023 07:57
Selenskíj til fundar við páfa Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, kom til Rómarborgar í morgun en hann hygst funda með Frans páfa og ítölskum ráðamönnum. Páfi heldur því fram að Páfagarður vinni að því að koma á friði í Úkraínu á bak við tjöldin. Erlent 13.5.2023 10:00
Konur berjast við Rússa á öllum vígstöðvum í Úkraínu Þingkona frá Úkraínu segir konur ekki vera fórnarlömb innrásar Rússa í Úkraínu fremur en karla og börn því þær taki þátt í að verja landið á öllum vígstöðvum. Mikilvægast af öllu væri að frelsa fólk á herteknum svæðum og draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi þeirra. Innlent 12.5.2023 19:30
Enginn friður án kvenna, ekkert kvenfrelsi án fjölbreytni Árið 2000 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðirnar ályktun nr. 1325 sem viðurkenndi í fyrsta sinn sérstöðu kvenna á átakasvæðum og mikilvægi framlags kvenna til friðar. Í ályktuninni er lögð áhersla á aðkomu kvenna að öllum ákvarðanatökum til að koma á friði. Skoðun 12.5.2023 11:01
Selenskí fær ekki að ávarpa Eurovision annað árið í röð Volodomír Selenskí forseti Úkraínu fær ekki að halda ávarp í úrslitum Eurovision söngvakeppninnar sem fer fram um helgina. Þetta er annað árið í röð sem forsetinn leitast eftir því að ávarpa söngvakeppnina án árangurs. Erlent 12.5.2023 09:06
Úkraínumenn sagðir hafa sótt fram yfir varnarlínur við Bakhmut Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur séð sig tilneytt til að gefa út yfirlýsingu þess efnis að það sé ekkert til í fregnum um að Úkraínumönnum hafi tekist að rjúfa varnarlínur Rússa umhverfis Bakhmut. Erlent 12.5.2023 07:12
Breskar stýriflaugar fluttar til Úkraínu Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, staðfesti í dag að Bretar ætla að útvega Úkraínumönnum stýriflaugar sem þeir hafa verið að kalla eftir í marga mánuði. Úkraínumenn hafa skuldbundið sig til að nota flaugarnar ekki til árása innan landamæra Rússlands. Erlent 11.5.2023 13:31