Landslið kvenna í fótbolta

„Erum að spila æfingaleiki og maður má misstíga sig í þeim“
Ísland tapaði 1-2 gegn Finnlandi í vináttulandsleik. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, var svekkt með frammistöðuna í kvöld.

„Ég læri af þessum mistökum“
Berglin Rós Ágústsdóttir skoraði eina mark Íslands er liðið mátti þola 2-1 tap gegn Finnlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Hún segist hafa séð margt jákvætt í leik íslenska liðsins sem hægt sé að taka með sér í næsta leik.

Umfjöllun: Ísland - Finnland 1-2 | Tap í fyrsta heimaleik ársins
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir.

Sif og Söndru þakkað fyrir á Laugardalsvellinum í kvöld
Tvær öflugar knattspyrnukonur sem hafa gefið íslenska kvennafótboltanum mikið í gegnum árin verða heiðraðar í kvöld.

„Fannst frábært að vera atvinnukona og spila út um allan heim“
Anna Björk Kristjánsdóttir er kominn heim í landsliðsverkefni en hún er einnig á tímamótum. Anna Björk er nefnilega að flytja heim frá Ítalíu og ætlar að klára tímabilið með Val í Bestu deildinni.

„Ótrúlega mikill heiður að hafa fengið að spila hundrað leiki fyrir landið sitt“
„Ég er mjög spennt fyrir þessum leik og vonandi verður fullur völlur, frábær stemning og góður fótbolti,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu fyrir leik liðsins gegn Finnlandi sem fram fer í kvöld.

„Tekur því verkefni sem kemur og gerir það eins vel og maður getur“
Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg og íslenska landsliðsins, er spennt fyrir komandi verkefni með landsliðinu þar sem íslensku stelpurnar taka á móti Finnum annað kvöld og heimsækja svo Austurríki næstkomandi þriðjudag.

Dagný og Glódís Perla búnar að fá málverkin sín
Tvær landsliðskonur fengu afhent málverk eftir Tolla í landsliðsverkefninu sem stendur nú yfir hjá kvennalandsliðinu.

Langmarkahæst í deildinni en ekki pláss fyrir hana í íslenska landsliðinu
Valskonan Bryndís Arna Níelsdóttir er ekki í íslenska landsliðshópnum sem undirbýr sig nú fyrir tvo vináttulandsleiki á móti Finnlandi og Austurríki.

Segir mikla viðurkenningu að vera kallaða í íslenska landsliðið
„Við eigum alveg skilið að vera hérna,“ segir Sunneva Hrönn, leikmaður FH. Arna Eiríksdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir voru kallaðar inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Finnlandi og Austuríki í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum.

Sunneva kemur inn fyrir Áslaugu Mundu
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur gert þriðju breytinguna á landsliðshópnum síðan hann var kynntur á dögunum. Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kemur inn í hópinn fyrir Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur.

Arna Eiríks kölluð inn í A-landsliðið
Arna Eiríksdóttir hefur staðið sig frábærlega með FH í Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar og nú hefur hún spilað sig inn í íslenska landsliðið með góðri frammistöðu sinni.

Anna Björk í landsliðið eftir tveggja ára bið
Anna Björk Kristjánsdóttir, nýjasti liðsmaður Vals, hefur fengið sæti í íslenska landsliðshópnum í fótbolta en hún kemur inn vegna meiðsla Ástu Eirar Árnadóttur, fyrirliða Breiðabliks.

Margt hafi gerst á bakvið tjöldin: „Ég var hissa en samt ekki að sjá hann fara“
Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United á Englandi, segir síðasta tímabil hafa verið sitt besta hjá félaginu. Gengi liðsins hafi hins vegar mátt vera betra en það endaði með því að þjálfari þess hafi verið látinn fara.

Hópurinn gegn Finnlandi og Austurríki: Sú markahæsta ekki með
Dagný Brynjarsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir eru á meðal þeirra fimm leikmanna sem ekki eru í nýjasta landsliðshópi Íslands í fótbolta, fyrir komandi vináttulandsleiki við Finnland og Austurríki í júlí, en voru í síðasta hópi.

Hlakkaði í Margréti að heyra: „Hún fékk starfið út af því að hún er kona“
Þjálfarinn Margrét Magnúsdóttir segir það hafa gefið sér kraft að heyra af efasemdum fólks um að hún ætti skilið að taka við U19-landsliði kvenna í fótbolta. Eftir eitt og hálft ár í starfi er hún á leið með liðið í sjálfa lokakeppni EM í næsta mánuði.

Mark Ingibjargar dugði ekki til sigurs
Íslensku landsliðskonurnar Ingibjörg Sigurðardóttir og Selma Sól Magnússdóttir léku með liðum sínum í norska boltanum fyrr í dag.

Lék á EM í fyrra en spriklar nú í strákabolta fyrir vestan
Knattspyrnukonan fyrrverandi, Elín Metta Jensen, var hluti af íslenska landsliðinu sem tók þátt á EM í Englandi síðasta sumar. Hún lagði hins vegar skóna á hilluna í október á síðasta ári aðeins 27 ára gömul, en hefur þó ekki alveg sagt skilið við fótboltann.

Karólína Lea mætir á Heimavöllinn: „Getur ekki átt fyrirmynd sem þú hefur aldrei séð“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins í fótbolta, verður í Heimavellinum frá 18.00 til 19.30 að árita hluti fyrir gesti og gangandi. Ef tekið er þátt í leiknum hér að neðan getur þú getur áritaða treyju, stuttbuxur og takkaskó.

HM-sætið hefði skilað stelpunum okkar að minnsta kosti fjórum milljónum á mann
Í fyrsta sinn í sögunni fá leikmenn á HM kvenna í knattspyrnu, sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í sumar, greitt beint frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu hefðu þannig fengið að minnsta kosti fjórar milljónir króna á mann.

Stelpurnar okkar mæta Austurríki í júlí
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því austurríska í vináttulandsleik á Wiener Neustadt ERGO leikvanginum í Austurríki þann 18.júlí seinna á þessu ári.

Gunnhildur Yrsa komin í starf hjá KSÍ
Hundrað landsleikjakonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin í starf hjá Knattspyrnusambandi Íslands en KSÍ tilkynnti um tvo nýja starfsmenn í gær.

Spila íslensku fótboltalandsliðin heimaleiki sína á Tene?
Íslensku landsliðin í fótboltanum gætu þurft að spila heimaleiki sína yfir vetrarmánuðina utan Íslands. Þetta segir framkvæmdastjóri KSÍ en hún segir jafnframt að mögulega fari leikirnir fram á Tenerife eða annars staðar í Evrópu.

Allt öðruvísi leið fyrir stelpurnar okkar á næsta stórmót
Nú þegar dregið hefur verið í riðla í fyrstu útgáfu Þjóðadeildar kvenna í fótbolta, sem leikin verður í haust, er orðið skýrara hvað Ísland þarf að gera til að komast aftur á stórmót.

Mæta Þýskalandi og Danmörku í nýju Þjóðadeildinni
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í riðli með Þýskalandi, Danmörku og Wales í haust á fyrstu leiktíðinni í Þjóðadeildinni.

Finnar mæta á Laugardalsvöll í júlí
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun leika vináttuleik gegn Finnlandi á Laugardalsvelli þann 14. júlí næstkomandi. Frá þessu greindi Knattspyrnusamband Íslands í dag.

Sveindís tryggði stelpunum okkar sigur í Sviss
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann góðan 1-2 útisigur er liðið mætti Sviss í æfingaleik ytra í dag. Þetta var seinni leikur liðsins í yfirstandandi landsliðsglugga en liðið gerði jafntefli við Nýja-Sjáland fyrir helgi.

EM-fararnir enduðu á jafntefli við Úkraínu
Íslensku stelpurnar í U19-landsliðinu í fótbolta höfðu þegar tryggt sér sæti í lokakeppni EM þegar þær mættu Úkraínu í lokaleik sínum í milliriðlakeppninni í Danmörku í dag. Liðin gerðu 2-2 jafntefli.

„Ekki nógu góður leikur hjá okkur“
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, var ekki ánægður með frammistöðu liðsins gegn Nýja-Sjálandi í vináttuleik í Tyrklandi í dag.

Aftur gerði Dagný Nýja-Sjálandi grikk
Dagný Brynjarsdóttir skoraði mark íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta þegar liðið gerði 1-1 jafntefli í vináttulandsleik gegn Nýja-Sjálandi sem spilaður var í Atsu í Tyrklandi í dag.