Húnabyggð
1 2 3 4 … 4 ›
Akureyringar á leið heim eftir Evrópuferð í rútunni sem valt Rúta sem valt skammt sunnan við Blönduós á sjötta tímanum í morgun var að ferja 23 Akureyringa til síns heima frá Keflavíkurflugvelli. Sjö voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík. Aðrir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri. Enginn lést í slysinu og ekki vitað til þess að nokkur sé í lífshættu. Innlent 8.9.2023 10:12
Þrír fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur og fjórir með sjúkraflugi Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys skammt frá Blönduósi. Nokkrir aðrir voru fluttir með sjúkrabifreiðum til Akureyrar en þar voru fjórir settir í sjúkraflug til Reykjavíkur og nokkrir lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Innlent 8.9.2023 09:04
Þrír fluttir á sjúkrahús með þyrlu Gæslunnar eftir alvarlegt slys Þyrla Landhelgisgæslunnar og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir út rétt eftir klukkan fimm í morgun eftir að tilkynning barst um mjög alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum sunnan við Blönduós. Innlent 8.9.2023 06:39
Gamli bærinn á Blönduósi hefur tekið lygilegum breytingum Þeir sem fara um og skoða sig í gamla bænum á Blönduósi þekkja varla gamla bæinn lengur því það er búið að gera upp og endurbyggja svo mikið af húsum á staðnum. Kirkjunni hefur til dæmis verið breytt í glæsilega hótesvítu. Lífið 23.8.2023 13:42
Þingmaður á rangri leið Þann 2.ágúst sl. birtist á visir.is grein sem Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður skrifar undir. Greinin, sem ber undarlegt heiti innan gæsalappa, fjallar í stuttu máli um að þingmaðurinn telji það afar mikilvægt að þjóðvegurinn verði styttur. Sami þingmaður fékk birta grein sem hann skrifar líka undir í Vikublaðinu þann 18. apríl sl. þar sem hann, sem fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem lögð var fram á Alþingi, vildi ráðast í endurnýjun vegarins yfir Kjöl og það í einkaframkvæmd. Þær hugmyndir eru útaf fyrir sig ágætar, með upphaf og endi í núverandi mynd. Skoðun 4.8.2023 11:01
Bíll valt í Langadal Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði þjóðvegi númer 1 um Langadal um stund í aðra áttina í kvöld vegna bílslyss. Búið er að opna veginn að nýju. Innlent 31.7.2023 23:20
Deila magnaðist þegar spennistöðin hvarf Landeiganda í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu brá heldur í brún þegar heil spennistöð hvarf skyndilega af landi hennar fyrr í mánuðinum. Málið tengist langvarandi deilum um jörðina Stekkjarlæk en hún sakar nágranna sína á bænum Bergsstöðum um að eiga hlut að máli. Hún segist langþreytt á stöðunni og íhuga að krefjast nálgunarbanns. Innlent 28.7.2023 15:38
Prjónar það sem henni er sagt að prjóna Fullkomnasta prjónavél landsins er á Blönduósi en hún er stafræn, sem þýðir að hún prjónar það sem henni er sagt að gera þegar búið er að vinna prjónaverkefnið í gegnum tölvuforrit. “Þetta er mjög skemmtileg tækni, sem opnar marga möguleika,” segir Margrét Katrín Guttormsdóttir, umsjónarmaður vélarinnar á Blönduósi Innlent 26.7.2023 20:30
Endurgreiða fyrsta skemmda ísinn í sögu Ísbílsins Ísbíllinn endurgreiðir 34 ístegundir sem seldar voru í Eyjafirði, Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu 8. til 10. júlí síðastliðinn. Vegna mistaka hjá Samskipum hálfþiðnaði ís á leið til Akureyrar. Eigandi Ísbílsins segir um að ræða í fyrsta sinn sem slík mistök verði, það sé mikil vinna að verða við öllum endurgreiðslubeiðnunum. Neytendur 25.7.2023 15:54
Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi. Tónlist 18.7.2023 11:06
Svíta fyrir ferðamenn í gömlu kirkjunni á Blönduósi Kirkjan í gamla bænum á Blönduósi hefur fengið nýtt hlutverk en hún er nú notuð, sem svíta fyrir ferðamenn, sem vilja prófa að gista í kirkju. Innlent 17.7.2023 20:30
Sérstakt Eric Clapton herbergi á Hótel Blönduósi Heilmikið líf er að kvikna í gamla bænum á Blönduósi því þar er búið að vera að gera upp gömul hús og koma þeim í rekstur, meðal annars Hótel Blönduósi þar sem Eric Clapton á sitt eigið herbergi. Innlent 26.6.2023 20:49
Spenna magnast vegna Prjónagleðinnar á Blönduósi Mikil spenna og eftirvænting er á Blönduósi fyrir Prjónahátíð, sem haldin verður þar aðra helgina í júní þar sem prjónafólk af öllu landinu mun sameinast til að prjóna og miðla prjónasögum. Sveitarstjóri Húnabyggðar hefur skráð sig á námskeiðið „Karlar prjóna“ á hátíðinni. Innlent 31.5.2023 21:03
Stjórnvöld verði að breyta sínum áherslum í riðumálum Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að sauðfjárbændur í Austur Húnavatnssýslu séu á nálum yfir því að riða getið komi upp á svæði þeirra eftir að riða kom upp á tveimur bæjum í Vestur Húnavatnssýslu í vor. Innlent 27.5.2023 15:04
Biðlar til ökumanna að stoppa á Blönduósi Sveitarstjóri Húnabyggðar biðlar til ferðamanna um að þeir stoppi á Blönduósi þegar þeir keyra í gegnum bæjarfélagið, ekki bara að stoppa til að fara á salerni eða að fá sér pylsu. Um sjö hundruð þúsund bílar keyra í gegnum Blönduós árlega og stoppa fæstir þeirra á staðnum. Innlent 26.5.2023 21:05
Feðgarnir á Blönduósi verða ekki ákærðir Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða karlmanns sem varð konu að bana á Blönduósi í ágúst í fyrra. Þetta staðfestir verjandi í málinu við fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá. Innlent 15.5.2023 14:53
Næturgisting í kirkju í boði á Blönduósi Hótel Blönduós verður opnað með pompi og prakt eftir glænýjar endurbætur um helgina. Stórri svítu hefur verið bætt við í sjálfri gömlu kirkjunni á Blönduósi og gefst gestum og gangandi kostur á að skoða nýjan hluta af hótelinu um helgina, þó það opni ekki formlega fyrr en á mánudag. Myndasyrpu frá Blönduósi má skoða neðst í fréttinni. Lífið 13.5.2023 08:00
Tilgangur kærunnar í Blönduósmálinu ekki að koma höggi á aðra aðstandendur Fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, mannsins sem varð Evu Hrund Pétursdóttur að bana á Blönduósi í ágúst á síðasta ári, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar sinnar um að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á máli hans. Brynjar Þór lést eftir árásina. Fjölskyldan vill að allt verði gert til að varpa ljósi á málið og segir ætlunina ekki vera að koma höggi á aðra sem eigi um sárt að binda vegna málsins. Innlent 17.4.2023 18:19
Ákvörðun um að gefa ekki út kæru vegna dauða árásarmannsins kærð Ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða mannsins sem varð konu að bana á Blönduósi hefur verið kærð til ríkissaksóknara. Aðstandendur mannsins kærðu ákvörðunina. Innlent 14.4.2023 12:23
Blönduós orðinn þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að Blönduós sé orðið þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu vegna starfsemi Textílmiðstöðvar Íslands á staðnum. Prjónahátíðin á Blönduósi er hluti af starfsemi textílmiðstöðvarinnar en verður haldin 9. til 11. júní í sumar á Blönduósi. Innlent 12.3.2023 14:05
Segir enga peninga að fá nema í gegnum kunningsskap Sveitarstjóri Húnabyggðar segir það sæta furðu að ekkert gerist í forgangsröðun á fjármunum ríkisins til svæða eins og Húnabyggðar nema í gegnum kunningsskap og útdeilingar úr nefndum þar sem ekkert gagnsæi ríki. Innlent 4.3.2023 15:06
Blönduósmálið fellt niður á grundvelli neyðarvarnar Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í rannsókn á manndrápi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Talið var að sakborningar í málinu hefðu ekki farið út fyrir takmörk sín til leyfilegrar neyðarvarnar. Málið hefði ekki verið líklegt til sakfellis. Innlent 1.3.2023 11:36
Brúin skemmdist minna í krapaflóðinu en á horfðist Starfsmenn Vegagerðarinnar luku við að lagfæra brú að bænum Barkarstöðum í Svartárdal í dag. Brúin skemmdist minna en á horfðist í miklu krapaflóði í Svartá á mánudagskvöld en miklar viðgerðir þarf á veginum um dalinn. Innlent 17.2.2023 17:20
Fjölskylda og skólabíllinn innlyksa eftir krapaflóð í Svartárdal Sex manna fjölskylda á bænum Barkarstöðum í Svartárdal er innlyksa á bænum eftir að krapaflóð eyðilagði brúna að honum í gærkvöldi. Skólabíll sveitarinnar er einnig fastur. Gríðarlegar skemmdir urðu á túnum og girðingum bænda í dalnum, að sögn bónda þar. Innlent 14.2.2023 21:05
Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang. Innlent 10.2.2023 17:23
Líklegt að tvö hundruð svín hafi drepist í eldsvoða Allt tiltækt lið Brunavarna Austur-Húnvetninga var kallað í morgun vegna elds í svínabúi við Skriðuland í Langadal. Talið er að rúmlega tvö hundruð svín hafi drepist í brunanum en þó er útlit fyrir að tekist hafi að bjarga fimm til sex hundruð svínum. Innlent 6.2.2023 10:12
Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér. Lífið 2.1.2023 21:42
Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð. Lífið 2.1.2023 11:55
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. Innlent 12.11.2022 23:11
Fjórða kæran í ferli vegna meintra kynferðisafbrota sama einstaklings Enn ein konan hefur stigið fram vegna karlmanns sem hefur þegar verið kærður í þrígang fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Málin þrjú eru fyrnd en ekki mál konunnar sem nú stígur fram. Innlent 27.10.2022 09:01