
Gríski boltinn

„Nýja hetjan“ Benóný Breki tryggði sigurinn með sínum fyrstu mörkum
Framherjinn Benóný Breki Andrésson er kominn á blað í ensku C-deildinni. Hann kom inn af bekknum og skoraði bæði mörk Stockport County í 2-1 sigri á Blackpool. Miðvörðurinn Hjörtur Hermannsson var einnig á skotskónum í Grikklandi.

Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum
Panathinaikos tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu grísku deildarinnar í knattspyrnu í dag. Liðið sló Víkinga út úr Sambandsdeild Evrópu á fimmtudaginn.

Víkingar sáu Sverri Inga skora í sigri
Samkvæmt heimildum Vísis var lið Víkings á vellinum þegar Sverrir Ingi Ingason skoraði í 2-1 sigri Panathinaikos á Hirti Hermannssyni og félögum í Volos.

Elvar sló stoðsendingamet grísku úrvalsdeildarinnar
Elvar Már Friðriksson sló stoðsendingamet grísku úrvalsdeildarinnar þegar hann gaf sautján stoðsendingar í 94-92 tapi Maroussi gegn Lavrio.

Panathinaikos mætir Víkingum með tvo tapleiki á bakinu
Panathinaikos tapaði 2-0 gegn Aris á útivelli í grísku úrvalsdeildinni. Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörninni, líkt og í bikarleiknum fyrr í vikunni sem tapaðist 1-0 gegn Olympiacos. Panathinaikos mætir Víkingi í umspili Sambandsdeildarinnar á fimmtudag.

Duttu út úr bikarnum á sigurmarki í uppbótatíma
Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í Panathinaikos duttu á grátlegan hátt út úr gríska bikarnum í kvöld.

Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi
Eftir þrjú og hálft ár á Ítalíu er landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson mættur til Grikklands og orðinn leikmaður Volos.

Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum
Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Maroussi verða í fallsæti yfir jólin eftir tap í dag.

Mikael og félagar úr leik í bikarnum
Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði liðs AGF sem tapaði 4-2 gegn Bröndby í danska bikarnum í dag. Þá var Sverrir Ingason í liði Panathinaikos sem er í toppbaráttu í Grikklandi.

Sverrir og félagar að blanda sér í toppbaráttuna
Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos sem sótti sætan 1-0 sigur á útivelli gegn Asteras.

Albert sneri aftur og skoraði í vítakeppninni
Eftir að hafa verið frá í nokkrar vikur vegna meiðsla sneri Albert Guðmundsson aftur í lið Fiorentina þegar liðið tapaði fyrir Empoli, 3-4, eftir vítaspyrnukeppni í ítölsku bikarkeppninni í kvöld.

Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri
Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í fótbolta, mun ekki geta spilað að nýju fyrr en næsta vor en þá verður eitt og hálft ár liðið síðan að hann sleit krossband í hné.

Sverrir fékk uppáhalds úrslit miðvarðarins
Miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað í vörn Panathinaikos í dag þegar liðið vann sigur á Volos í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars
Elvar Már Friðriksson lék með Maroussi í 80-81 tapi gegn sínu gamla liði PAOK í fimmtu umferð grísku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Minnist Baldocks með hlýju: „Honum þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar“
Fyrrverandi samherji Georges Baldock hjá ÍBV minnist hans með hlýhug. Hann segir að hann hafi verið mjög vinnusamur og smellpassað inn í samfélagið í Vestmannaeyjum. Baldock fannst látinn á heimili sínu í Grikklandi í fyrradag, aðeins 31 árs.

Sverrir Ingi minnist Baldocks: „Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar“
Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason minntist samherja síns hjá Panathinaikos, Georges Baldock, í færslu á Instagram. Hann segir að sorgin vegna fráfalls hans sé óbærileg.

Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn
George Baldock, fyrrum leikmaður Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni, fannst í dag látinn í sundlaug við heimili sitt í Grikklandi. Baldock lék á sínum tíma með ÍBV í efstu deild hér á landi.

Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum
Sverrir Ingi Ingason stóð í vörn Panathinaikos í kvöld þegar liðið mætti AEK Aþenu á útivelli í höfuðborgarslag í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Pellistri verður samherji Sverris og Harðar
Manchester United hefur selt úrúgvæska landsliðsmanninn Facundo Pellistri til Panathinaikos.

Félagaskipti Sverris staðfest
Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmaður í fótbolta, er genginn í raðir Panathinaikos frá Danmerkurmeisturum Midtjylland.

Sverrir Ingi sagður á leið aftur til Grikklands
Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður Midtjylland, er sagður á leið til gríska félagsins Panathinaikos.

Yfirgefur Krít og segir laun ekki alltaf hafa skilað sér á réttum tíma
Guðmundur Þórarinsson verður ekki áfram í herbúðum gríska úrvalsdeildarfélagsins OFI Crete. Hann hefur spilað með félaginu undanfarin tvö tímabil.

Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki
Fiorentina rétt marði 3-2 sigur gegn Club Brugge og Aston Villa tapaði 2-4 á heimavelli gegn Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu.

Landsliðsmenn í eldlínunni í Evrópu
Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Pisa sem vann 2-0 sigur á Sampdoria á Ítalíu í dag. Jón Dagur Þorsteinsson og Guðmundur Þórarinsson máttu hins vegar sætta sig við töp.

Misjöfn uppskera hjá Íslendingaliðunum
Alfreð Finnbogason og Guðlaugur Victor Pálsson voru báðir í byrjunarliði Eupen sem tapaði í mikilvægum leik í belgísku deildinni í kvöld. Lið Jóns Dags Þorsteinssonar vann hins vegar góðan sigur.

Samúel fór meiddur af velli en Atromitos hélt uppteknum hætti
Samúel Karl Friðjónsson fór meiddur af velli í 2-1 sigri Atromitos gegn Volos. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Atromitos nú spilað 11 leiki í röð án taps.

Guðmundur bjargaði stigi á Krít
Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson skoraði eina löglega mark OFI Crete er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Volos í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Bras hjá Íslendingum í Evrópu
Fjórir Íslendingar komu við sögu hjá liðum sínum í belgísku og grísku deildunum í knattspyrnu í dag. Guðlaugur Victor Pálsson og Alfreð Finnbogason þurftu að sætta sig við tap með Eupen.

Samúel skoraði fyrir framan líklegan kaupanda félagsins
Samúel Kári Friðjónsson gekk í augun á líklegum kaupanda Atromitos þegar hann skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu fyrir liðið í 3-1 sigri á Aris. Atromitos sótti þar sinn annan sigur í röð eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Leik erkifjendanna hætt eftir að flugeld var kastað í leikmann
Ekki náðist að ljúka leik erkifjendanna í Grikklandi, Olympiacos og Panathinaikos, þar sem flugeld var kastað í leikmann.