Skotárás á Silfratjörn
Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Shokri Keryo hefur hlotið þriggja og hálfs árs fangelsidóm fyrir skotárás sem átti sér stað í Úlfarsárdal í nóvember í fyrra, þegar hann skaut fjórum skotum að fjórum mönnum. Innlent 18.4.2024 09:57
Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Ungur karlmaður sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðasta árs þvertók fyrir að hafa beitt skotvopni í árásinni. Sá sem varð fyrir skoti í árásinni kvaðst ekkert muna eftir árásinni. Innlent 18.3.2024 18:29
Neitar að hafa reynt að drepa fólk í Silfratjörn Shokri Keryo, tvítugur karlmaður, neitaði sök þegar ákæra á hendur honum fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal var þingfest í dag. Innlent 6.2.2024 14:10
Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið. Innlent 5.2.2024 09:58
Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. Innlent 31.1.2024 09:43
Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi. Innlent 22.11.2023 17:01
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar í Úlfarsárdal Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu rannsóknar lögreglu á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík í byrjun mánaðarins. Innlent 17.11.2023 17:03
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum, sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni að Silfratjörn í Úlfarsárdal þann 2. nóvember síðastliðinn, rennur út í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm. Innlent 17.11.2023 11:09
Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Innlent 10.11.2023 11:01
Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi. Innlent 7.11.2023 14:43
Skotin höfnuðu á fjórum stöðum Sex hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í fyrrinótt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Dómsmálaráðherra er gríðarlega brugðið yfir málinu. Nauðsynlegt sé að bregðast við. Innlent 3.11.2023 19:00
Vilja sex í varðhald vegna skotárásar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerir kröfu um að sex einstaklingar sæti gæsluvarðhaldi í allt að eina viku í tengslum við rannsókn embættisins á skotárás í Úlfarsárdal aðfaranótt fimmtudag. Innlent 3.11.2023 16:36
„Gríðarlega brugðið eins og allri þjóðinni“ Dómsmálaráðherra segist slegin vegna skotárásar sem átti sér stað í Úlfársárdal í gærnótt. Ofbeldisárásir virðist vera að færast upp á næsta stig og nauðsynlegt sé að bregðast við. Frumvarp um breytingar á lögreglulögum sé tilraun til þess. Innlent 3.11.2023 13:48
Tveir urðu fyrir skoti í árásinni við Silfratjörn Tveir ungir menn urðu fyrir skotum í skotárásinni í Úlfarsáradal í gær, annar særðist en hinn fékk skrámu. Um er að ræða deilur milli tveggja hópa sem ólíklegt er að sjái fyrir endann á. Lögregla kannar hvort auka þurfi viðbúnað í höfuðborginni vegna málsins. Innlent 3.11.2023 11:50
Yfirheyrslur yfir sjömenningum framundan Yfirheyrslur yfir mönnunum sjö sem handteknir voru vegna skotárásar í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal munu fara fram í dag. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um mennina að svo stöddu. Innlent 3.11.2023 09:29
Hafa handtekið alla sjö sem taldir eru tengjast árásinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið sjö í tengslum við skotárásina í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Það eru allir sem taldir eru hafa komið að árásinni Innlent 2.11.2023 21:41
„Allt starfsfólk meðvitað um þennan harmleik“ Mikill viðbúnaður hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna leitar að manni sem er grunaður um skotárás við fjölbýlishús í nótt þar sem einn særðist. Líðan hins særða er sögð góð eftir atvikum en hann er ekki í lífshættu. Í árásinni var einnig skotið á nærliggjandi hús og bíl. Lögreglan telur atlöguna tengjast útistöðum tveggja hópa. Innlent 2.11.2023 19:31
Lögregla gefur ekkert upp um þá handteknu Þrír hafa verið handteknir vegna skotárásar í fjölbýli í Úlfarsárdal í nótt. Einn særðist en líðan hans er sögð góð eftir atvikum. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í dag vegna málsins. Lögregla gefur ekki upp hver aðild þeirra handteknu að málinu er. Innlent 2.11.2023 18:47
Stendur ekki til að lýsa eftir byssumanni Grímur Grímsson segir alvarlegt mál að maður sem hafi hleypt af skotum í íbúðarhverfi gangi laus. Hann telur almenning þó ekki í mikilli hættu. Allt kapp sé lagt á að hafa hendur í hári mannsins. Ekki standi þó til að lýsa eftir honum. Innlent 2.11.2023 15:07
Fjögurra og átta ára vöknuðu við lögreglu í heimsókn Kona sem býr í íbúðinni sem skotið var á í skotárás í Úlfarsárdal í morgun, segist í áfalli og enn vera að melta það sem hafi gerst. Skotið var á vegg við hliðina á barnaherbergi þar sem átta og fjögurra ára dætur hennar voru sofandi. Innlent 2.11.2023 14:38
Vaktin: Lögregla leitar logandi ljósi að byssumanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar byssumanns eftir að maður var skotinn fyrir utan fjölbýlishús í Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Vísir fylgist með nýjustu vendingum í málinu. Innlent 2.11.2023 14:27
Áhyggjufullur nágranni lýsir stöðugu partýstandi Íbúi í fjölbýlishúsi við Silfratjörn í Úlfarsárdal segir mikið partýstand hafa verið í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss þar sem maður var skotinn um fimmleytið í nótt. Íbúðin er í eigu Félagsbústaða. Innlent 2.11.2023 13:49
Leita byssumanns eftir skotárás í Úlfarsárdal Lögregla leitar byssumanns sem grunaður er um að hafa skotið karlmann við fjölbýlishús í Úlfarsárdal í nótt. Hinn særði er ekki í lífshættu. Mörg börn vöknuðu upp við skothvelli. Yfirlögregluþjónn segir vettvang árásarinnar hafa verið utandyra. Lögregla sé með aukið viðbragð vegna málsins til að tryggja öryggi almennings um borgina. Innlent 2.11.2023 11:31
Íbúar heyrðu skothvelli í Úlfarsárdal Lögregla verst allra frétta af meiriháttar líkamsárás í Úlfarsárdal í nótt. Að sögn íbúa heyrðust skothvellir í hverfinu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út vegna málsins. Innlent 2.11.2023 10:42
Meiriháttar líkamsárás og fjórir handteknir fyrir húsbrot Lögreglu barst tilkynning um meiriháttar líkamsárás í póstnúmerinu 113 rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar segir að málið sé í rannsókn. Innlent 2.11.2023 06:28
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent