Kaup Landsbankans á TM
1 2 ›
Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur samþykkt samruna TM og Landsbankans. Í tilkynningu á vef bankans kemur fram að Fjármálaeftirlitið telji Landsbankann hæfan til að eiga virkan eignarhlut í TM tryggingum hf. Bankinn undirritaði samning um kaup á öllu hlutafé í TM í maí 2024. Viðskipti innlent 25.9.2024 17:14
Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Landsbankinn gekk frá samningi við Kviku banka um kaup á tryggingafélaginu TM fyrir 28,6 milljarða króna í dag. Kaupsamningur þeirra var skuldbindandi fyrir Landsbankann samkvæmt lögfræðiáliti sem nýtt bankaráðs bankans lét vinna. Viðskipti innlent 30.5.2024 19:04
Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Fráfarandi bankaráð Landsbankans segir hluthafa þurfa að breyta tilgangi félagsins ef hlutverk hans á ekki að vera að taka þátt í samkeppni á fjármálamarkaði. Kaup á TM hafi samræmst eigendastefnu ríkisins því þau hámari virði eignarhluts ríkisins. Viðskipti innlent 19.4.2024 21:09
Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Ný stjórn hefur verið kjörin í bankaráð Landsbankans. Jón Þ. Sigurgeirsson, ráðgjafi hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu er nýr formaður ráðsins og tekur við af Helgu Björk Eiríksdóttur sem hefur sinnt formannsstörfum síðustu átta ár. Viðskipti innlent 19.4.2024 18:15
Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Næsta föstudag, þann 19. apríl kl. 16.00 er aðalfundur Landsbanka Íslands og samkvæmt dagskrá fara þar fram venjuleg aðalfundastörf en í henni er ekki minnst einu orði á kaup Landsbankans á TM. Skoðun 18.4.2024 08:31
Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Ásakanir um að leiðin sem Landsbankinn fer til að fjármagna kaup á tryggingafélaginu TM hafi verið valin til að komast hjá því að leita samþykkis hluthafafundar eru aðdróttanir, að sögn bankaráðs Landsbankans. Bankinn sé langt yfir eiginfjárkröfum eftir kaupin. Viðskipti innlent 17.4.2024 12:24
Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Fjárlaganefnd hefur enn ekki fengið svör frá Fjármálaráðuneytinu um hver samskipti þess og Bankasýslu ríkisins voru í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM. Nefndarmaður er svartsýnn á að þau berist. Heildarmynd í málinu liggi enn ekki fyrir. Viðskipti innlent 15.4.2024 13:30
Landsbankinn ekki seldur á þessu kjörtímabili Forsætisráðherra sér ekki fram á að hlutir í Landsbankanum verði seldir á þessu kjörtímabili en það gæti þó orðið á því næsta. Þá hugnast honum ágætlega að Landsbankinn losi sig við tryggingarfélagið TM. Innlent 14.4.2024 13:40
Blekkingin um afskiptaleysi ráðherra af rekstri Landsbankans Bankasýslan var sett á stofn til að tryggja aðskilnað stjórnmála frá rekstrarákvörðunum banka í eigu ríkisins í kjölfar bankahrunsins 2008 (svokallað "armslengdar-fyrirkomulag"). Þetta var hugsað þannig að bankar í eigu ríkisins væru einfaldlega reknir á sömu forsendum og einkabankar og ættu að standa sig í samkeppninni á bankamarkaðinum - án afskipta stjórnmálamanna. Skoðun 14.4.2024 11:30
Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“ Formaður stjórnar Bankasýslunnar segir það „aumt“ hjá bankaráði Landsbankans að fullyrða í yfirlýsingu að henni hefði átt að vera fullkunnugt um áform bankans um að bjóða í TM. Skipta þurfi bankaráðinu út til þess að fara nánar yfir kaupin. Viðskipti innlent 12.4.2024 19:01
Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Stjórnarformaður Bankasýslunnnar segir alveg skýrt að frumkvæðisskyldan sé á Landsbankanum varðandi upplýsingagjöf. Það sé samningsbundið að Landsbankinn upplýsi Bankasýsluna með formlegum hætti um fyrirhugaða sölu. Viðskipti innlent 12.4.2024 16:40
Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25
Alvarlegur stjórnunarvandi við umsýslu ríkiseigna Enn horfum við upp á stjórnleysi og samskiptaleysi þegar kemur að umsýslu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, nú í tengslum við kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Skoðun 2.4.2024 10:15
Kaup Landsbankans á TM: Um banka og samfélagið Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM Tryggingum kom mörgum á óvart. Í kjölfar frétta af fyrirætlunum bankans fóru á flug gamalkunnugar yfirlýsingar um að ríkið eigi ekki að standa í fjármálastarfsemi – og sumir vilja alls ekki að fyrirtæki í eigu ríkisins auki við starfsemi sína. Einn ráðherra lýsti því yfir að verði af kaupunum þurfi að einkavæða Landsbankann, væntanlega í flýti. Skoðun 30.3.2024 22:31
„Einkafyrirtæki myndi ekki taka ákvarðanir sem gengu í berhögg við vilja eigenda“ Sérfræðingur í Evrópurétti telur að eftirlitsstofnun EFTA muni taka til skoðunar fyrirhuguð kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Slík skoðun gæti tekið langan tíma, en kaupin mættu ekki fara fram meðan á henni stæði. Innlent 30.3.2024 20:24
Fíll í postulínsbúð? Svigrúm ríkisins til athafna á samkeppnismarkaði Þegar ríkisfyrirtæki kaupir eignir eða rekstur þarf að sama skapi að sýna fram á að ákvörðun standist prófið um skynsamlega hegðun markaðsaðila. Ef leiða má að því líkur að eignarhald ríkisins feli í sér einhvers konar forskot, til dæmis að því er varðar fjármögnun kaupanna eða arðsemiskröfu, fellur ríkið á prófinu og þá er um ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins að ræða, að sögn lögmanns og sérfræðings í Evrópurétti. Umræðan 29.3.2024 11:15
Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Meirihluti þjóðarinnar er óánægður með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Þetta leiðir ný könnun Prósents í ljós. Viðskipti innlent 29.3.2024 09:40
Gætu orðið tafir á að „Kvika fái peningana sína“ vegna sölu á TM Yfirgnæfandi líkur eru á að sala Kviku á TM til Landsbankans gangi eftir en hins vegar gætu orðið tafir á sölunni og þar með að „Kvika fái peningana sína,“ að mati hlutabréfagreinenda. Hann reiknar með að Kvika hafi þurft að binda nokkrum milljörðum meira af eigin fé við að eiga tryggingafélagið og geta bankans til útlánavaxtar aukist því við söluna. Innherji 27.3.2024 12:51
Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Á undanförnum dögum hefur mikið verið rætt um kaup Landsbankans á TM tryggingum og miklu ryki þyrlað upp. Skoðun 27.3.2024 11:01
Fundar með Bankasýslunni í dag Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra segir næsta skref hjá sér, vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum, vera að funda með Bankasýslu ríkisins. Boðað hefur verið til fundar um málið í dag. Viðskipti innlent 26.3.2024 11:53
Bankasýslan þögul sem gröfin Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hyggst ekki veita viðtal um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Óljóst er hvort Bankasýslan fallist á frásögn formanns bankaráðs af símtali, þar sem hann segist hafa upplýst stjórnarformann Bankasýslunnar um óskuldbindandi tilboð bankans í TM. Viðskipti innlent 26.3.2024 10:54
Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Óljóst er hvort formaður bankaráðs Landsbankans hafi minnst á að óskuldbindandi kauptilboð hafi verið gert í TM tryggingar í símtali við stjórnarformann Bankasýslunnar í desember eða hvort tilefni símtalsins hafi verið að ræða tilboðið. Bankasýslan hefur ekki staðfest hvort tilboðið hafi verið rætt í símtalinu, sem formaður bankaráðs fullyrðir. Viðskipti innlent 26.3.2024 07:30
Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, ætlar ekki að tjá sig um kaup Landsbankans á TM fyrr en í fyrsta lagi í vikunni fyrir aðalfund Landsbankans. Misræmi hefur verið í frásögn Bankasýslunnar og Landsbankans af því hvert innihald símtals milli Tryggva og formanns bankaráðs Landsbankans í desember var. Viðskipti innlent 25.3.2024 14:16
Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands Allmikil umræða hefur skapast um vilja stjórnenda Landsbanka Íslands til að endurvekja Brunabótafélag Íslands í endurnýjaðri mynd með kaupum á Tryggingamiðstöðinni,TM. Eins og vant er hafa allir aðilar máls mundað fingurinn og benda sem ákafast hver á annan. Skoðun 25.3.2024 14:00
Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Formaður Bankaráðs Landsbankans segir ráðið telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýslu ríkisins um fyrirhuguð kaup á tryggingafélaginu TM. Bankasýslunni hafi fyrst verið greint frá áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum síðasta sumar. Hún hafi ekki á neinum tímapunkti óskað eftir viðbótarupplýsingum um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Viðskipti innlent 22.3.2024 19:30
Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt. Innherji 22.3.2024 18:53
Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Bankaráð Landsbankans segir Bankasýsluna hafa frá sumrinu 2023 hafa verið vel meðvitaða um áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum og eftir atvikum kaupum á tryggingafélaginu TM. Samskiptin hafi farið fram í tölvupóstum, á fundum og símtölum. Helsta óvissan virðist vera um það sem fram kom í óformlegu símtali formanns bankaráðs og stjórnarformanns Bankasýslunnar í desember. Viðskipti innlent 22.3.2024 12:48
Formlegheit eða skuggastjórnun? Til Bankasýslu ríkisins. Ráðherra/ráðuneytinu hefur borist sá orðrómur til eyrna að Landsbankinn sé í viðræðum við Kviku banka um kaup á TM. Viljið þið vinsamlegast athuga hvort að sá orðrómur eigi við rök að styðjast og vinsamlegast biðja bankaráð Landsbankans um að hætta þessum viðræðum strax. Skoðun 22.3.2024 12:31
Vill samskipti Bankasýslunnar og ráðuneytis upp á yfirborð Fjárlaganefnd ætlar að óska eftir upplýsingum frá Bankasýslunni um samskipti stofnunarinnar og fjármálaráðuneytisins vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingafélagi. Formaður nefndarinnar hefur efasemdir um kaupin en telur rétt að bíða eftir skýringum. Innlent 22.3.2024 11:51
Lýsti yfir andstöðu við kaup á TM á fundi með stjórnendum Landsbankans Á fundi með lykilstjórnendum Landsbankans örfáum vikum áður en bankinn gerði skuldbindandi tilboð í allt hlutafé TM hafði fjármála- og efnahagsráðherra komið á framfæri andstöðu sinni við að bankinn myndi ráðast í slík kaup. Ráðherra, sem hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki beint tilmælum til Bankasýslunnar áður en kaupin færu fram, hefur sagt það óviðunandi að bankaráð Landsbankans hafi ekki upplýst stofnunina með formlegum hætti um áform bankans. Innherji 22.3.2024 10:59