Gjaldþrot Skagans 3X
Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi. Auk þess munu þeir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir í því skyni að hefja þar aftur rekstur. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaupin, en það er nýtt félag, KAPP Skaginn ehf., sem er kaupandi. Viðskipti innlent 14.10.2024 10:31
Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Blandaður hópur fjárfesta og sérfræðinga hefur sýnt áhuga á að kaupa eignir Skagans 3X á Akranesi úr þrotabúi og hefja aftur starfsemi í bænum. Viðskipti innlent 4.10.2024 07:26
Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Gerðar hafa verið kröfur í þrotabú Skagans 3X sem nema um þrettán milljörðum króna. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Stærstu kröfurnar í búið eru almennar kröfur sem nema um níu milljörðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Frestur til að lýsa kröfu í búið rann út á mánudag í þessari viku. Viðskipti innlent 14.9.2024 07:29
Tilboð berast í eignir þrotabúsins: „Alltaf með símann opinn ef menn hafa áhuga“ Borist hafa nokkur tilboð í ýmsar eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi sem verið er að yfirfara og bera saman. Ekkert nýtt tilboð hefur borist í allar eignir þrotabúsins í heilu lagi síðan ljóst varð að slíkt tilboð sem var til skoðunar næði ekki fram að ganga. Skiptastjóri segir fasteignirnar sem hýst hafi starfsemi fyrirtækisins vera þrotabúinu óviðkomandi þótt þær hafi verið forsenda í tilboðinu sem ekki varð að veruleika. Viðskipti innlent 28.8.2024 21:57
Bæjarstjórn hefur ekki gefið upp von um endurreisn Skagans 3X Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir yfir miklum harmi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í máli Skagans 3X en hún hefur þó ekki gefið upp alla von um endurreista starfsemi fyrirtækisins á Akranesi. Innlent 19.8.2024 18:18
Enginn byggi upp fyrirtæki til að standa í veg fyrir endurreisn þess Grenjar ehf., sem er eigandi fasteigna á Akranesi sem félagið Skaginn 3X leigði fyrir starfsemi sína, hafna því að endurreisn síðarnefnda félagsins hafi ekki náð fram að ganga vegna þess að ekki náðist samkomulag við félagið. Sárt sé að sitja undir „uppspuna og óhróðri“ um slíkt. Viðskipti innlent 17.8.2024 13:29
„Þetta var bara okkar líf og nú er það farið“ Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum. Innlent 16.8.2024 19:01
Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir fyrrum eigendur fyrirtækisins Skagans 3X skulda Skagamönnum skýringar á því hvað hafi komið í veg fyrir að hægt væri að semja um sölu á eignum til aðila sem voru áhugasamir um að halda starfseminni áfram. Viðskipti innlent 16.8.2024 14:36
Gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir sjávarútveg að Skaginn 3X lifi Gjaldþrot Skagans 3X á Akranesi hefur gríðarleg áhrif á sjávarútveg hér á landi og mikilvægt að fyrirtækið verði endurreist að sögn fyrrverandi verkstjóra. Það þurfi að hafa hraðar hendur svo sérhæfing glutrist ekki niður. Skiptastjóri segir horft til tilboðs sem feli það í sér en fleiri en hann þurfi að samþykkja það. Innlent 23.7.2024 19:00
Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum. Innlent 17.7.2024 08:50
Annað tilboð borist í Skagann 3X Tvö tilboð hafa nú borist í rekstur og eignir úr þrotabúi Skagans 3X á Akranesi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Helgi Jóhannesson skiptastjóri fundaði með Íslandsbanka í gær varðandi áður komið tilboð. Viðskipti innlent 16.7.2024 13:29
Búið að bjóða í Skagann 3X Formlegt tilboð barst í þrotibú Skagans 3X í gærkvöldi. Þetta staðfestir Helgi Jóhannesson skiptastjóri í þrotabúsins í samtali við fréttastofu, en Skessuhorn greindi fyrst frá. Viðskipti innlent 13.7.2024 14:36
Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Helgi Jóhannesson, skiptastjóri þrotabúsins Skagans 3X, segir að mikill áhugi sé á fyrirtækinu. Margir hafi sett sig í samband við hann og viðrað verðhugmyndir og önnur tilboð. Tilboð hafa borist í hluta eignanna, en ekki hefur borist heildartilboð í allar eignirnar og reksturinn. Viðskipti innlent 8.7.2024 14:21
Segir Akranes verða svefnbæ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir nánast alla atvinnustarfsemi á Akranesi vera farna og að stefni í að bærinn verði aðeins náttstaður íbúa. Rúmur fjórðungur Skagamanna sæki þegar atvinnu til Reykjavíkur og þörf sé á aðgerðum til að sporna við þessari þróun. Innlent 7.7.2024 14:15
Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Næstum hundrað og þrjátíu manns misstu vinnuna hjá fyrirtækinu Skaganum 3x, sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. Uppsagnirnar eru áfall fyrir Akranesbæ segir bæjarstjórinn en starfsmaður segir fréttirnar hafa komið flatt upp á sig þegar hann vaknaði í morgun. Innlent 4.7.2024 19:16
Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Haraldur Benediktsson segir gjaldþrot Skagans 3X sem sagði upp öllum 128 starfsmönnum sínum í morgun vera mikið áfall, ekki bara fyrir bæinn heldur íslenskan sjávarútveg í heild sinni. Viðskipti innlent 4.7.2024 12:33
Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Öllum 128 starfsmönnum Skagans 3x var sagt upp í dag. Skaginn 3x er hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki fyrir matvælaframleiðslu aðallega í sjávarútvegi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness, segir ekkert sveitarfélag hafa orðið fyrir jafnmiklum hamförum í atvinnumálum undanfarið, að Grindvíkingum undanskildum. Viðskipti innlent 4.7.2024 11:01
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent