Stj.mál
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 187 ›
Betri nýting á fjármunum í forvarnastarfi Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að fela félagsmálaráðherra að leiða samstarf þeirra aðila sem starfa að forvörnum hér á landi og móta heildstæða forvarnastefnu sem byggi á betri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar er veitt í verkefni á þessu sviði. Innlent 18.7.2006 18:54
Samgönguráðherra beitir sér ekki fyrir breytingu vaktakerfis Samgönguráðherra hyggst ekki beita sér fyrir því að vaktakerfi flugumferðarstjóra verði breytt, enda sé dómur Félagsdóms í málinu endanlegur. Innlent 18.7.2006 17:07
Molbúaháttur einkennir fjárveitingar til Landspítalans Molbúaháttur ræður för þegar stjórnvöld ákveða fjárframlög til Landspítalans. Þetta segir formaður stjórnarnefndar spítalans. Innlent 11.7.2006 12:07
Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis. Innlent 7.7.2006 16:57
Grétar Már ráðuneytisstjóri Grétar Már Sigurðsson skrifstofustjóri á viðskiptaskrifstofu tekur við stöðu ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu 21. júlí. Grétar Már tekur við af Gunnari Snorra Gunnarssyni, sem verið hefur ráðuneytisstjóri undanfarin fjögur ár. Gunnar Snorri flyst í haust til starfa erlendis fyrir utanríkisþjónustuna. Innlent 5.7.2006 17:34
Ríkisstjórnin bakkar ekki segir samgönguráðherra Ríkisstjórnin ætlar ekki að bakka með frestun vegaframkvæmda ef það verður til þess að verðbólgan fari af stað. Þetta segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Innlent 4.7.2006 17:45
Nýtt vefsetur fastanefndar Íslands hjá NATO Opnað hefur verið nýtt vefsetur fastanefndar Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu (NATO) í Brussel, Belgíu. Vefsetrið er á tveimur tungumálum - ensku og íslensku - og hefur að geyma gagnlegar upplýsingar um starfsemi fastanefndarinnar auk mikils upplýsingaefnis um Ísland. Innlent 3.7.2006 10:56
Breytingar bitni á þeim sem minnst mega sín Breytingar á hámarkslánum og lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs eiga eftir að koma verst við þá sem minnst mega sín, að mati Elnu Sigrúnar Sigurðardóttur hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Hún segir að aðrar leiðir séu þó vandfundnar til að slá á þensluna á húsnæðismarkaði. Innlent 30.6.2006 20:05
Skorað á stjórnvöld að hætta við niðurskurð á framkvæmdum Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps skorar á stjórnvöld að hætta við áform sín um niðurskurð á þessum framkvæmdum á Norðausturlandi þar sem þensluáhrifa gætir ekki. Innlent 30.6.2006 18:18
Telja að hætta beri við Norðlingaölduveitu Þingflokkur Samfylkingarinnar telur að hætta beri við Norðlingaölduveitu í kjölfar úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um framkvæmdina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Innlent 30.6.2006 17:33
Guðni enn óákveðinn um formannsframboð Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hefur ekki enn ákveðið hvort hann ætlar að sækjast eftir formannsstöðu í flokknum. Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknar, sem styður Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, til formennsku íhugar að gefa kost á sér til varaformennsku, og virðist því ekki reikna með Guðna í æðstu stöður flokksins. Innlent 29.6.2006 12:18
Breytingar á reglum bitni á tekjuminni og landsbyggð Framkvæmdastjóri Íbúðarlánasjóðs segir breytingar á útlánareglum sjóðsins, sem ríkisstjórnin kynnti í gær, hafa áhrif á þá tekjuminni og fólk úti á landi. Þá segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, breytingarnar skaða allmannahagsmuni. Innlent 28.6.2006 22:14
Jón Sigurðsson í formannsslag í Framsóknarflokknum Jón Sigurðsson viðskipta-og iðnaðarráðherra ætlar að gefa kost á sér til formanns Framsóknarflokksins og vonast eftir heiðarlegri og vinsamlegri baráttu um formannssætið. Innlent 28.6.2006 08:11
Fagna hugmyndum um að draga úr þenslu Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands fagna hugmyndum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að draga úr þengslu í þjóðfélaginu. Þeir telja þó að von sé á fleiri skrefum af hálfu ríkisstjórnarinnar til að vinna bug á verðbólgunni. Innlent 27.6.2006 18:00
Ríkisstjórnin ákveður aðgerðir til að draga úr verðbólgu Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka lánshlutfall Íbúaðaláasjóðs tímabundið úr 90% í 80% og hámarkslán úr 18 milljónum króna í 17 milljónir króna. Þetta er meðal aðgerða sem ríkisstjórnin hefur fallist á til að stuðla að því markmiði að hjöðnun verðbólgu gangi eftir sem fyrst. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru ákveðnar á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag. Innlent 27.6.2006 11:14
Krefjast þess að Guantanamo verði lokað Hópur mótmælenda kom saman í gær fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York til að krefjast þess að Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu verði lokað. Erlent 27.6.2006 08:44
Golfvöllur og vatnsverksmiðja stóriðjan í Þorlákshöfn Hafist verður handa við nýjan strandgolfvöll við Þorlákshöfn á næstu mánuðum þar sem hönnun hans er lokið. Bæjarstjóri Ölfuss segir völlinn og fyrirhugaða vatnsverksmiðju stóriðju Þorlákshafnarbúa sem geti skapað hátt í hundrað störf. Innlent 27.6.2006 00:21
Skortur á lagaramma um eldri námur Skortur á lagaramma um eldri námur, eins og Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli, varð til þess að bæjarstjórn Ölfus ákvað að leyfa efnistöku á brún Ingólfsfjalls. Bæjarstjóri Ölfuss kallar eftir lagasetningu um námurnar. Innlent 27.6.2006 00:13
Valgerður ræður aðstoðarmann Sigfús Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Hann starfaði áður í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu en tekur til starfa í utanríkisráðuneytinu á næstu dögum. Innlent 23.6.2006 14:38
Mæðraeftirlit endurskipulagt vegna flutninga í Mjódd Endurskipuleggja þarf mæðraeftirlit á höfuðborgarsvæðinu vegna flutnings á Miðstöð mæðraverndar frá Barnónsstíg og upp í Mjódd, segir sviðsstjóri lækninga á kvennasviði Landspítalans. Hann tekur undir kröfur starfsmanna Heilsverndarstöðvarinnar á Barónsstíg um að ríkið reyni að eignast húsið aftur. Innlent 22.6.2006 14:50
ESA athugar ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. EFTA-dómstóllinn ógilti í apríl þá niðurstöðu eftirlitsstofnunarinnar að ríkisaðstoðin væri þjónuta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Innlent 22.6.2006 13:25
Einar Sveinbjörnsson aðstoðarmaður Jónínu Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur verði ráðinn aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra og hóf hann störf í ráðuneytinu í dag. Innlent 22.6.2006 11:12
Útilokar ekki að leita til ríkissaksóknara Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að hún leiti til ríkissaksóknara vegna málalykta í kæru hennar á hendur fjórum umhverfisverndunarsinnum sem hún taldi hafa hótað sér ofbeldi. Mótmælendurnir báru spjald sem á stóð: „Drekkjum Valgerði, ekki Íslandi“ í göngu Íslandsvina á dögunum. Innlent 22.6.2006 07:20
Vill hefja lóðaúthlutun á Geldinganesi á næsta ári Meirihlutinn í borgarstjórn vill hefja úthlutun lóða á Geldinganesi strax á næsta ári. Borgarfulltrúi Samfylkingar segir þetta róttækt afturhvarf frá fyrri stefnu skipulagsráðs borgarinnar. Innlent 21.6.2006 17:45
Orkuveitan verður ekki seld Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekaði það á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fyrirtækið yrði ekki selt. Alfreð Þorsteinsson, sem lét af störfum sem stjórnarformaður Orkuveitunnar eftir 12 ára starf, segir hins vegar að góð staða fyrirtækisins gefi borginni færi á að selja hlut sinn í Landsvirkjun. Innlent 21.6.2006 15:26
Rannsókn hætt á meintri ofbeldishótun Lögreglan í Reykjavík hefur hætt rannsókn á meintri hótun um ofbeldi á hendur Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í göngu Íslandsvina í lok maí. Innlent 21.6.2006 12:19
Forsendur fyrir áframhaldandi viðræðum ekki fyrir hendi nú Forsendur fyrir því að halda viðræðum áfram við stjórnvöld í tengslum við endurskoðun kjarasamninga er ekki fyrir hendi eins og staðan er nú, segir aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Hann segir boltann hjá ríkisstjórninni og viðbrögð hennar við kröfum ASÍ ráði úrslitum í viðræðunum. Innlent 21.6.2006 12:13
Útspil ríkistjórnarinnar hafi valdið vonbrigðum Útspil ríkisstjórnarinnar í gær, til samkomulags á vinnumarkaði, olli forystu ASÍ miklum vonbrigðum og telja menn þar á bæ að afturkippur sé kominn í málið. Innlent 21.6.2006 07:17
Mislæg gatnamót líklega boðin út fyrir áramót Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar verða að öllum líkindum boðin út fyrir áramót. Til stendur að leggja báðar brautirnar í stokk og leggja hringtorg ofan á, - í svokallaðri þriggja hæða lausn. Málið eru í algerum forgangi hjá nýjum meirihluta í Reykjavík, segir formaður samgöngu- og umhverfisráðs. Innlent 18.6.2006 12:17
Átök og innbyrðis deilur meðal ástæðna afsagnar Átök og innbyrðis deilur í Framsóknarflokknum eru meðal ástæðna þess að Halldór Ásgrímsson hættir í pólitík að mati Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi aðstoðamanns hans. Innlent 17.6.2006 16:24