Bandaríkin
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Hunter Biden breytir afstöðu í skattsvikamáli Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, ætlar að breyta afstöðu sinni til sakarefnis í skattsvikamáli gegn honum í dag. Hann hafði áður lýst yfir sakleysi sínu og heldur því í raun áfram en segist ætla að gangast við þeirri refsingu sem dómarinn telur að hann eigi að hljóta. Erlent 5.9.2024 16:45
Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu. Erlent 5.9.2024 14:06
Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas. Erlent 5.9.2024 07:56
Segja yfirburði Bandaríkjanna ógn við stöðugleika í heiminum Tveir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum segja hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna og bandamanna þeirra gagnvart Kína og Rússland mögulega ógn við stöðugleika í heiminum. Erlent 5.9.2024 07:08
Utanríkismálin meira áberandi og Pennsylvanía í brennidepli „Við sem erum í alþjóðastjórnmálum erum yfirleitt mjög sár yfir því að fólk kýs ekki út á utanríkismál,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, í umræðum um forsetakosningarnar vestanhafs í nýjum þætti af Baráttan um Bandaríkin. Erlent 4.9.2024 19:53
Minnst fjórir látnir eftir skotárás í menntaskóla Í það minnsta fjórir eru látnir eftir að skotárás var framin í menntaskóla í Georgíuríki í Bandaríkjunum í dag. Auk hinna fjögurra látnu eru fleiri tugir særðir. Erlent 4.9.2024 18:24
Skipstjóri rekinn eftir vandræðalega myndatöku Skipstjóri tundurspillisins John McCain var nýverið rekinn af yfirmönnum sínum í sjóher Bandaríkjanna. Það var gert fjórum mánuðum eftir að mynd af honum sem þótti vandræðaleg var birt á samfélagsmiðlum sjóhersins. Erlent 4.9.2024 16:09
Svikakvendið ætlar að dansa með stjörnunum Rússneska svikakvendið Anna Sorokin, öðru nafni Anna Delvey, mun keppa í 33. þáttaröð af bandarísku dansþættinum Dancing with the stars. Dansfélagi hennar verður atvinnudansarinn Ezra Sosa. Lífið 4.9.2024 15:27
Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni. Erlent 4.9.2024 14:24
Svanhildur boðin velkomin Svanhildur Hólm Valsdóttir er tekin við sem sendiherra Íslands í Washington í Bandaríkjunum. Hún er boðin velkomin til starfa á samfélagsmiðlum sendiráðsins. Innlent 4.9.2024 14:07
Ákæra leiðtoga Hamas vegna árásanna 7. október Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna opinberuðu í gær ákærur á hendur Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas, og annarra leiðtoga samtakanna. Er það vegna árásanna á Ísrael þann 7. október í fyrra en ákærurnar snúast meðal annars að morðum, mannránum og hryðjuverkastarfsemi. Erlent 4.9.2024 09:32
Vill rétta Musk niðurskurðarhnífinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, er sagður hafa um nokkuð skeið rætt við ráðgjafa sína um að skipa auðjöfra og þekkta forstjóra í starfshóp sem finna á leiðir til niðurskurðar hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, er meðal þeirra sem gæti setið í starfshópnum og hefur hann lýst því yfir að hann sé tilbúinn til starfa. Erlent 3.9.2024 09:35
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. Innlent 2.9.2024 23:02
Lögðu hald á einkaþotu Venesúelaforseta Bandarísk yfirvöld lögðu hald á einkaþotu sem Nicolas Maduro forseti Venesúela hefur nýverið flogið með í Dóminíska lýðveldinu í dag. Flugvélinni var í framhaldinu flogið til Flórída en bandamenn Maduro eru grunaðir um að hafa fest kaup á henni með ólögmætum hætti. Erlent 2.9.2024 21:11
Geimfarið snýr aftur til jarðar en geimfararnir verða eftir Starliner geimfari Boeing verður flogið aftur til jarðar á föstudaginn en geimfararnir sem fóru með því til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í júní verða eftir. Upprunalega átti geimferð þeirra Butch Wilmore og Suni Williams eingöngu að taka átta daga en vonast er til að þau geti snúið aftur til jarðar í febrúar. Erlent 2.9.2024 11:13
Lana Del Rey og krókódílamaður vekja athygli Söngkonan Lana Del Rey virðist vera að slá sér upp með nýjum gaur ef marka má myndir sem náðust af henni um helgina. Sá heppni heitir Jeremy Dufrene og er skipstjóri frá Louisiana sem sem sérhæfir sig í krókódílatúrum. Lífið 1.9.2024 15:09
Sex gíslar fundust látnir Sex einstaklingar sem voru teknir í gíslingu Hamas 7. október fundust látnir á Gasaströndinni í gær. Ísraelski herinn sagðist hafa fundið líkin í hernaðaraðgerð í neðanjarðargöngum í Rafah. Erlent 1.9.2024 08:39
Hneig niður á miðjum tónleikum Bandaríski rapparinn Fatman Scoop er látinn, 53 ára að aldri. Scoop hneig niður á sviði á miðjum tónleikum sínum í Conneticut í Bandaríkjunum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl á nærliggjandi sjúkrahús og síðar úrskurðaður látinn. Erlent 31.8.2024 17:33
„Fína konan“ skyndilega umkringd fyllibyttum Jóhanna Guðmundsdóttir var þriggja barna útivinnandi móðir og eiginkona í Bandaríkjunum þegar hún vaknaði upp við vondan draum. Eftir áralanga áfengisneyslu sem hafði undið upp á sig var hún komin á róandi lyf og hrædd um að missa börnin. Í dag leikur lífið við hana. Lífið 31.8.2024 09:10
Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunarrofs Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, segist ætla að greiða atkvæði gegn breytingu á stjórnarskrá Flórída sem tryggði konum rétt til þungunarrofs. Nýleg lög þar leggja bann við þungunarrofi áður en margar konur vita að þær eigi von á sér. Erlent 30.8.2024 23:13
Útgáfufyrirtækin höfða mál gegn Flórída vegna bókalaga Penguin Random House, stærsta útgáfufyrirtæki Bandaríkjanna, og fleiri útgefendur hafa höfðað mál á hendur menntamálayfirvöldum í Flórída vegna laga sem banna kynferðislegt efni á skólabókasöfnum. Erlent 30.8.2024 11:09
Starfsmaður Wells Fargo sat látinn við skrifborð sitt í fjóra daga Rannsókn stendur yfir á andláti starfsmanns Wells Fargo í Arizona, sem mætti til vinnu klukkan sjö á föstudagsmorgni og fannst látinn við skrifborðið sitt fjórum dögum síðar. Erlent 30.8.2024 06:59
Ætlar að skipa repúblikana í ráðuneyti sitt Kamala Harris sagðist ætla að skipa repúblikana í ríkisstjórn sína næði hún kjöri sem forseti í fyrsta meiriháttar fjölmiðlaviðtali sínu eftir að hún varð forsetaframbjóðandi demókrata. Hún lét aðdróttanir Trump um kynþátt hennar sem vind um eyru þjóta. Erlent 29.8.2024 23:51
Fulltrúar Trump hrintu starfsmanni hermannagrafreits Starfsmaður forsetaframboðs Donalds Trump hrinti fulltrúa Bandaríkjahers þegar sá síðarnefndi brýndi fyrir honum reglur sem banna stjórnmálastarf í grafreit fallinna hermanna í vikunni. Framboðið sakaði starfsmann grafreitsins um að vera veikan á geði. Erlent 29.8.2024 19:29
Ætluðu sér að myrða tugþúsundir á tónleikum Swift Mennirnir sem voru handteknir í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg ætluðu sér að myrða tugþúsundir, að sögn aðstoðarforstjóra CIA. Erlent 29.8.2024 11:18
„Ég horfði á stykkið og sólina baka það“ Birgir Þór Júlíusson kom að bandaríska manninum sem lést í slysi á Breiðamerkurjökli á sunnudag. Hann reyndi endurlífgun en án árangurs. Birgir Þór er einn eigenda ferðaþjónustufyrirtækisins Niflheima sem skipuleggur íshellaskoðun í jöklinum. Birgir var í hellinum rétt áður en hann hrundi og varaði annan leiðsögumanninn sem var á leið inn við því að stykki í hellinum gæti hrunið. Innlent 28.8.2024 23:38
Veita fjölskyldunni alla viðeigandi aðstoð Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi veitir fjölskyldu karlmannsins sem lést í slysi á Breiðamerkurjökli á sunnudaginn alla viðeigandi ræðisaðstoð. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá sendiráðinu. Innlent 28.8.2024 13:43
Harris og Walz veita loks viðtal Kamala Harris og Tim Walz, forseta- og varaforsetaefni Demókrataflokksins, hafa samþykkt að veita fyrsta sameiginlega viðtalið frá því að kosningabarátta þeirra hófst. Erlent 28.8.2024 07:15
Ný sérsniðin ákæra á hendur Trump Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur lagt fram nýja ákæru á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Ákæran er sérsniðin að þeim kröfum sem fram komu í dómi Hæstaréttar Bandaríkjanna sem veitti Trump friðhelgi að hluta í sumar. Erlent 27.8.2024 22:09
Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Mark Zuckerberg forstjóri Meta segist sjá eftir því að hafa látið undan þrýstingi ríkisstjórnar Joe Biden um að ritskoða upplýsingar á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Efnið sem hann var beðinn um að fjarlægja voru það sem stjórnvöld kölluðu misvísandi upplýsingar um ýmislegt tengt Covid-19, og fréttir um upplýsingar á fartölvu Hunter Biden, sonar Joe Biden Bandaríkjaforseta. Viðskipti erlent 27.8.2024 18:47