
Hvalveiðar

„Þau verða bara að tala saman“
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún ætli að viðhalda veiðibanni á stórhvölum. Hún segist stefna á að taka ákvörðun sem fyrst en starfsmenn ráðuneytis hennar séu að vinna úr skýrslu sem birt var í gær um frávik við veiðar á hvölum.

Hvalveiðimenn reru á miðin
Áhöfn hvalveiðiskips Hvals hf. reri á miðin suður, suðvestur og vestur af landinu í morgun.

Þingflokksformaður vill geta horft í spegil
Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar virðast ekki útiloka stuðning við vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra, komi hún fram. Bæjarstjóri segir hvalveiðibannið risastórt mál í huga Sjálfstæðismanna og gerir fastlega ráð fyrir því að tillagan verði lögð fram ef athugun leiðir í ljós að stjórnsýslulög hafi verið brotin.

Segist voða lítið í „ef“ spurningum
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist ekki ætla að svara „ef“ spurningum um stuðning Framsóknar við Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, komi til þess að vantrausti verði lýst yfir á hendur ráðherranum og sú tillaga mögulega studd af Sjálfstæðismönnum.

Vandræðalegt fyrir Ísland
Mér finnst það að við stundum hvalveiðar fyrst og fremst vandræðalegt fyrir Ísland. Að hugsa til þess að við erum þessi litla þjóð enn að stunda hvalveiðar með tveim öðrum þjóðum sem hafa gert það í þúsundir ára eins og Noregur og Japan.

Leggja taugaóstyrkir Sjálfstæðismenn ef til vill sjálfir fram vantraust?
„Sjálfstæðisflokkurinn er farinn á taugum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar um stöðu stjórnarsamstarfsins. Tilefnið eru vangaveltur um mögulegt vantraust á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra.

Hvalveiðar, fyrir hvern?
Þegar eitthvað er svo hrópandi rangt fyrir framan mig, finn ég mig knúna til að setjast niður og skrifa nokkrar línur. Það svíður í hjartað hvað við erum komin langt af leið þegar kemur að siðferðilegu réttmæti í garð náttúrunnar.

DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið
Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag.

Elliði telur einsýnt að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, telur að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi Svavarsdóttur á haustþingi ef Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að hún hafi farið gegn lögum þegar hún frestaði hvalveiðum.

„Harðasta stjórnarandstaðan í landinu er inni í ríkisstjórninni“
Prófessor í stjórnmálafræði segir matvælaráðherra í mjög þröngri stöðu hvað varðar ákvörðun um hvalveiðar. Frestun á leyfi til hvalveiða rennur út á föstudag. Þá segir hann alvarlega bresti í ríkisstjórnarsamstarfinu komna í ljós.

Tillögur og úrbætur til þess fallnar að hafa áhrif á árangur hvalveiða
Starfshópur, sem matvælaráðherra skipaði í júní til að meta leiðir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum, telur mögulegt að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum. Hópurinn segir það þó utan verksviðs síns að meta hvort úrbætur væru til þess fallnar að færa velferð dýra við veiðar á stórhvölum í ásættanlegt horf út frá löggjöf sem um veiðarnar gilda.

Tímarnir breytast og mennirnir með
Aníta Briem leikkona fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Áframhaldandi bann hafi alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur einsýnt að matvælaráðherra leyfi hvalveiðar að nýju enda hafi hún brotið lög með því að banna þær. Verði það ekki niðurstaðan muni hafi það alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Von er á nýrri skýrslu um hvernig draga má úr frávikum við veiðar á langreyðum í dag.

Ályktanir VG: Fullur stuðningur við Svandísi og engar flóttamannabúðir
„Lokaðar flóttamannabúðir þar sem fólk er geymt þar til hægt er að senda það úr landi er ekki lausnin á þessari stöðu,“ segir í ályktun sem samþykkt var á flokksráðsfundi Vinstri grænna nú um helgina, um framkvæmd nýrra útlendingalaga.

Andstaðan eykst almennt og frekar hjá körlum
Andstaða við hvalveiðar hefur aukist á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. 42 prósent segjast nú mótfallin hvalveiðum, samanborið við 35 prósent í maí 2022.

Saga fyrrverandi hvalskurðarmanns
Ég átti margar ógleymanlegar stundir í Hvalfirði að skera hval. Kynntist góðum vinum, var með frábærann yfirmann og fékk ágætis laun og hafði meira að segja gaman að vinnunni. Svona að mestu leyti.

Hvetur Íslendinga til að framlengja hvalveiðibannið
Bandaríski stórleikarinn Jason Momoa hvetur íslensk stjórnvöld til þess að framlengja veiðibann á stórhvelum og hætta hvalveiði alfarið. Hann segir Íslendinga hugrakka að hafa bannað hvalveiðar í sumar.

Það er ekkert sem réttlætir dýraníð
Edda Falak skrifar um hvalveiðar Íslendinga.

Sigur fyrir hvalina, fyrir Ísland og fyrir mannkynið
Til hamingju Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Ísland fyrir að stöðva hvalveiðar í sumar og koma þannig í veg fyrir dráp á 150 langreyðum. Með þessari ákvörðun tekur þjóðin afstöðu með umhverfinu. Ekki er einungis um að ræða sigur fyrir hvalina, heldur fyrir hafið, fyrir umhverfið, fyrir baráttuna gegn loftslagsbreytingum og mannkynið allt.

Svandís hafi gerst sek um valdníðslu í hvalveiðimálinu
Þingmenn í atvinnuveganefnd eru ekki par sáttir við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um stöðvun hvalveiða skömmu fyrir vertíð. Ný skýrsla um efnahagsleg áhrif breyti engu þar um.

Fleiri hvalir, fleiri fiskar
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í sjálfbærnivísindum, fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Ímynd Íslands og viðskiptatengsl eru í hættu
Ég hef djúpar áhyggjur af fjárhagslegum afleiðingum þess að leyfa áframhaldandi veiðar á langreyðum. Fyrirtæki og neytendur hafa val og geta valið að versla frekar við önnur ríki vegna hvalveiða Íslendinga.

Svandís svarar umboðsmanni: Ekki unnt að ná markmiðum með öðru en frestun
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur svarað bréfi umboðsmanns Alþingis þar sem óskað er eftir svörum vegna ákvörðunar ráðherra um að banna hvalveiðar tímabundið. Í svörunum segir meðal annars að ekki hafi verið talið unnt að ná markmiðum um dýravelferð með öðrum hætti en frestun upphafs veiðitímabils.

„Það er ekkert nýtt í þessu“
„Það er ekkert nýtt í þessu,“ segir Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf. um nýja skýrslu ráðgjafafyrirtækisins Intellecon um efnahagsleg áhrif hvalveiða, sem unnin var að ósk matvælaráðherra.

Dýralæknir með einkaleyfi á skutlum ráðgjafi stjórnvalda
Norskur dýralæknir, Egil Ole Øen, ráðlagði íslensku ríkisstjórninni varðandi hvalveiðar á sama tíma og hann hagnaðist á einkaleyfi sprengiskutuls. Dýraverndarsamtök gagnrýna aðkomu læknisins.

Sýni að hvalveiðar séu sóun fjármuna og tímabært að hætta þeim alfarið
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir nýja skýrslu um hvalveiðar sýna að þær séu sóun fjármuna fyrir ríkið og ekki síst fyrir fyrirtækið Hval hf. Í skýrslunni kemur fram að bein efnahagsleg áhrif hvalveiða á þjóðarbúið eru lítil. Andstaða gagnvart veiðunum erlendis virðist ekki hafa efnahagsleg áhrif hér á landi.

Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða lítil og greinin ekki arðbær síðustu ár
Bein efnahagsleg áhrif hvalveiða á Íslandi eru ekki mikil í þjóðhagslegu samhengi. Þá verður ekki séð að hvalveiðar hafi verið arðbær atvinnugrein á síðustu árum. Þrátt fyrir mikla andstöðu gagnvart hvalveiðum meðal almennings erlendis virðist það ekki hafa efnahagsleg áhrif á Ísland.

Fagna því að 150 hvalir eru enn á lífi
Svokallað hvalagala er haldin á Hvalasafninu á Granda í kvöld. Þar er því fagnað að í sumar fengu 150 hvalir að lifa sem hefðu verið drepnir ef ekki væri fyrir hvalveiðibann.

Við þurfum ekki á hvalveiðum að halda
Hera Hilmarsdóttir leikkona fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Bubbi Morthens fjallar um hvalveiðar Íslendinga.