Bobby Fischer
1 2 3 4 5 … 5 ›
Fischersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda Fishersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda skákmanna um allan heim enda stöðugar heimsókn þeirra á safnið og að gröf Bobby Fischers, sem hvílir í Laugardælakirkjugarði rétt fyrir utan Selfoss. Lífið 1.4.2024 20:31
Leit við hjá Fischer og segir hann enn besta skákmeistara sögunnar Skákmeistarinn Hans Niemann stoppaði stutt á Íslandi um helgina og heimsótti gröf bandaríska stórmeistarans Bobby Fischer á afmælisdag þess síðarnefnda. Eins og frægt er bjó Fischer síðustu æviárin hér á landi og er jarðsettur á Selfossi. Lífið 11.3.2024 21:26
Bobby Fischer og Gunnar á Hlíðarenda „Bobby Fischer verður jafn frægur og Gunnar á Hlíðarenda eftir þúsund ár”, segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og áhugamaður um heimsmeistarann í skák, sem hvílir í Laugardælakirkjugarði í Flóanum. Þá er Fischersafn á Selfossi, sem fagnar tíu ára afmæli þessa dagana. Innlent 20.7.2023 09:31
Íslensk vegabréf Bobby Fischer fundust fyrir tilviljun Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra Íslands í Japan, afhenti Fischersetrinu á Selfossi tvö íslensk vegabréf skáksnillingsins Bobby Fischer sem gefin voru út árið 2005 þegar hann fékk ríkisborgararétt hér á landi. Vegabréfin voru týnd en fundust fyrir tilviljun, eitt í sendiráðinu í Japan og annað á skrifstofu utanríkisráðuneytisins. Lífið 11.7.2023 15:46
Spassky vill hvíla við hlið Fischers í Laugardælakirkjugarði Það var múgur og margmenni í Laugardælakirkjugarði í Flóahreppi í dag en ástæðan er sú að skákmeistararnir, sem eru nú að keppa í heimsmeistaramótinu í Slembiskák mættu þangað til að vitja leiðis Bobby Fischers, heimsmeistara í skák. Þar kom fram að Boris Spassky, sem tefldi á móti honum fyrir fimmtíu árum hefur óskað eftir því að fá í hvíla í garðinum eftir sinn dag með Fischer. Innlent 28.10.2022 20:08
Vill láta reisa styttu af Bobby Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarði Fimmtíu ár eru í sumar var skákeinvígi aldarinnar á milli Bobby Fischers og Boris Spasskís í Laugardalshöllinni. Verðlaunaféð á núvirði var um tvö hundruð milljónir króna. Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra vill láta reisa styttu af Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarð við Selfoss. Innlent 16.5.2022 21:05
Undirbúa hátíð vegna hálfrar aldar afmælis einvígis Fischers og Spasskís Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki. Innlent 5.4.2022 18:36
Merkilegt hvernig talan 64 markar örlög Fischers Skákmeistarinn Bobby Fischer var rangfeðraður og talan 64 reyndist undarleg örlagatala í öllu lífi hans. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók um skákeinvígið 1972, sem kom Reykjavík á spjöld sögunnar. Innlent 2.11.2020 22:12
Spasskí og Fischer á sviði í London með Guðmundi G. og Sæma Rokk Þeir Spasskí og Fischer eru aðalpersónurnar í nýju leikriti um skákeinvígi aldarinnar, sem frumsýnt hefur verið í London. Tveir Íslendingar eru persónur í leikritinu. Innlent 9.12.2019 22:30
Minningarorð Kasparov um Bobby Fischer: „Mesta goðsögn skáksögunnar“ Garry Kasparov hefði viljað hitta Bobb Fischer og vinna með honum í þágu leiksins sem þeir báðir elskuðu. Innlent 10.3.2014 14:02
Kasparov heimsækir leiði Fischers Fimmtugasta Reykjavíkurskákmótið hefst í Hörpu í dag og stendur yfir til 12. mars. Í tilefni afmælisins verða ýmsar uppákomur. Innlent 4.3.2014 07:00
Fischer-setrið líklegasta nafnið Það er unnið að fullu að undirbúningi, mikil fundarhöld og margir sem koma að þessu. Við erum með arkitekta, verkfræðinga, safnverði og fleira, segir Magnús Matthíasson formaður Skákfélags Selfoss. Innlent 28.2.2013 13:34
Munir úr einvígi aldarinnar til sýnis Stærsta einkasafn muna úr einvígi þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskí verður sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara. Innlent 1.6.2012 17:40
Fischer að skákborðinu að nýju Bobby Fischer sest að líkindum við skákborðið á ný á næstunni til þess að taka slembiskák við einn af sterkustu skákmönnum heims. Fornvinur Fischers, Borís Spasskí, kom ásamt rússneskum auðmanni hingað til lands til að sannfæra Fischer um ráðagerðina. Innlent 13.10.2005 19:16
Einvígi við heimsmeistarann? Vonir standa til að Bobby Fischer og núverandi heimsmeistari í skák heyi einvígi. Verði af því fer einvígið fram á Íslandi og Fischer teflir þá að sjálfsögðu sem Íslendingur. Innlent 13.10.2005 19:16
Lögsækir ekki Bandaríkjamenn Bobby Fischer hefur fallið frá lögsókn á hendur bandarískum stjórnvöldum sem þingfest var fyrir hann í San Diego í Bandaríkjunum daginn sem hann var látinn laus í Japan og hélt til Íslands. Erlent 13.10.2005 19:02
Rangt að veita ríkisborgararéttinn Meirihluti landsmanna telur það hafa verið ranga ákvörðun hjá stjórnvöldum að veita Bobby Fischer íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt nýrri skoaðnakönnun Gallups. Fjórðungur aðspurðra tekur ekki afstöðu en 40 prósent telja þessa ákvörðun vera ranga og 35 prósent að hún hafi verið rétt. Innlent 13.10.2005 19:00
Útvegaði fulltrúanum skírteini Yfirmenn japanska fjölmiðlafyrirtækisins Mainichi hafa leyst ritstjóra ensku vefsíðu fyrirtækisins frá störfum tímabundið eftir að hann varð uppvís að því að hafa útvegað fulltrúa Bobbys Fischers fréttamannaskírteini til þess að komast á fölskum forsendum inn á öryggissvæði á Narita-flugvelli þegar Fischer var á leið til Íslands. Innlent 13.10.2005 18:59
Fischer: Interpol sendi erindi Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri segir að Interpol í Washington hafi sent embættinu erindi á Skírdag um að Bobby Fischer væri eftirlýstur fyrir að hafa rofið viðskiptabann. Jafnframt var beðið staðfestingar um veru Fischers hér á landi. Innlent 13.10.2005 18:58
Vilja vita ef Fischer fer úr landi Bandaríkjamenn vilja vera látnir vita ef Bobby Fischer ferðast frá Íslandi en hafa ekki ákveðið hvort þeir muni fara fram á framsal hans. Engar líkur eru á að orðið verði við því. Davíð Oddsson segir að Bandaríkjamenn viti vel að samkvæmt íslenskum lögum megi ekki framselja íslenska ríkisborgara. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:58
Fischer ekki framseldur Bobby Fischer verður ekki framseldur segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Sendiherra Bandaríkjanna segir enn litið á Fischer sem flóttamann frá bandarísku réttarkerfi. Innlent 13.10.2005 18:58
Fjallað um ákvörðun Íslands í WP Það var sorgardagur þegar Alþingi Íslendinga veitti Bobby Fischer ríkisborgararrétt, segir í ritstjórnargrein <em>Washington Post</em> í dag. Erlent 13.10.2005 18:58
Fischer verði sviptur ríkisfanginu Símon Wiesenthal stofnunin í Jerúsalem skorar í dag á íslensk stjórnvöld að svipta Bobby Fischer íslenskum ríkisborgararétti vegna andúðar hans á gyðingum og yfirlýsingum um að Helförin sé uppspuni. Forstöðumaður stofnunarinnar segir Ísland halda uppteknum hætti að veita alræmdum gyðingahöturum hæli. Innlent 13.10.2005 15:33
Fischer fór mikinn um gyðinga Bobby Fischer fór mikinn um gyðinga á blaðamannafundinum í gær. Framkvæmdastjóri og lögfræðingur Alþjóðahúss segja það stefnu hússins að tjá sig ekkert um Fischer að svo stöddu. Innlent 13.10.2005 18:58
Ummæli Fischers verði rannsökuð Íslenskur fornleifafræðingur í Danmörku hefur óskað eftir því að ríkissaksóknari hefji opinbera rannsókn á ummælum Bobbys Fischers um gyðinga. Ríkislögreglustjórinn og allsherjarnefnd hafa einnig fengið erindi frá honum vegna málsins. Innlent 13.10.2005 18:58
Fischer stefnir stjórnvöldum Bobby Fischer hefur stefnt bandarískum stjórnvöldum fyrir ólöglega frelsissviptingu vegna níu mánaða varðhaldsvistar í Japan. Í kærunni segir að japönsk stjórnvöld hafi að undirlægi bandarískra stjórnvalda haldið skákmeistaranum í slæmum aðbúnaði þar til hann samþykkti að snúa aftur til Bandaríkjanna. Innlent 13.10.2005 18:57
Fischer tók daginn snemma Bobby Fischer tók daginn snemma og fór í gönguferð, þrátt fyrir að hann væri örþreyttur eftir langt ferðalag frá Japan, en hann kom loksins til landsins með íslenskt vegabréf og íslenskt ríkisfang seint í gærkvöld. Innlent 13.10.2005 18:57
Íslendingar algerlega skákóðir Erlendir fjölmiðlar leita ákaft svara við því hvers vegna Íslendingar eru svona hrifnir af hinum umdeilda Bobby Fischer. Niðurstaðan virðist aðallega á einn veg: Íslendingar eru upp til hópa þakklátir Fischer, gestrisnir og algerlega skákóðir. Innlent 13.10.2005 18:57
Af hverju þessi áhugi á Fischer? Af hverju eru Íslendingar svona hrifnir af Bobby Fischer? Erlendir fjölmiðlar hafa margir hverjir beint sjónum sínum að þessari óskiljanlegu ráðgátu. Innlent 13.10.2005 18:57
Stýrði ekki atburðarásinni Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirlýsinga og umræðna sem tengjast framgöngu Stöðvar 2 við komu Bobbys Fischers til Íslands í gærkvöldi. Þar neitar hann að hafa stýrt atburðarásinni á Reykjavíkurflugvelli. Þá segir Páll í hlutarins eðli að Stöð 2 hafi reynt eftir fremsta megni að tryggja sér sem bestan aðgang að Fischer. Innlent 13.10.2005 18:57