Eldgos og jarðhræringar
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 133 ›
Telur að Grindvíkingar ættu að sofa annars staðar en heima hjá sér Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir að réttast væri að rýma Grindavík eins og hægt sé. Hann segir jafnframt að ekki sé seinna vænna að koma upp varnargörðum til að verja bæinn. Innlent 9.11.2023 12:26
„Nóttin var vægast sagt hræðileg“ Hljóðbrot sem Lilja Ósk Sigmarsdóttir, íbúi í Grindavík náði þegar stór skjálfti reið yfir í nótt, sýnir raunveruleikann sem íbúar búa við þessa dagana. Hún segir nóttina hafa verið hræðilega og taugakerfið orðið ansi marið. Innlent 9.11.2023 12:09
Tómlegt í Bláa lóninu og ferðamenn missvekktir Tómlegt er um að litast í Bláa lóninu í dag á fyrsta degi lokunar. Ferðamenn sem fréttastofa ræddi við höfðu ekki fengið veður af lokuninni og voru missvekktir. Innlent 9.11.2023 12:04
Afpanta aðföng um óákveðinn tíma Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að afpanta öll aðföng sem keypt höfðu verið af birgjum. Staðan verður tekin aftur eftir helgi. Viðskipti innlent 9.11.2023 09:07
Bláa lóninu lokað í viku en starfsmenn fá greitt og gestir endurgreitt Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið. Innlent 9.11.2023 07:23
„Vill einhver kaupa hús hérna í Eyjabyggðinni? Er að spyrja fyrir vin“ Alls hafa 24 skjálftar mælst yfir 3 að stærð frá miðnætti, allir í nágrenni við Þorbjörn, þar sem vel er fylgst með kvikuinnskoti í Reykjaness-Svartsengis eldstöðvakerfinu. Innlent 9.11.2023 06:30
Skelkaðir hótelgestir við Bláa lónið láti sækja sig vegna skjálftanna Leigubílstjórar á Reykjanesskaga ferja nú gesti af hóteli Bláa lónsins sem eru óttaslegnir vegna stórra jarðskjálfta á svæðinu, sem fóru að gera vart við sig upp úr miðnætti. Innlent 9.11.2023 01:50
Sá stærsti 5,0 að stærð Fjöldi kröftugra jarðskjálfta með upptök á Reykjanesskaga hefur riðið yfir nú eftir miðnætti í kvöld. Klukkan 01:24 reið yfir skjálfti sem mældist 4,7 að stærð samkvæmt Veðurstofunni. Sá átti upptök sín um þrjá kílómetra norður af Grindavík, en fjöldi skjálfta hefur mælst við Grindavík í nótt. Innlent 9.11.2023 00:08
„Það er líklegra en ekki að það verði ekki svarta myndin“ Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, sagði mikilvægt að muna að svartasta sviðsmyndin væri ekki sú líklegasta, þegar hann ræddi jarðhræringar á Reykjanesskaga á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Innlent 8.11.2023 21:38
Bein útsending: Upplýsingafundur í Stapa vegna jarðhræringa Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi verður haldinn í Stapa Hljómahöll klukkan 20 í kvöld. Fylgjast má með fundinu í beinni hér á Vísi. Innlent 8.11.2023 19:00
Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga. Innlent 8.11.2023 18:55
Fimm rúmmetrar streyma í sylluna á hverri sekúndu Um það bil 1200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólahring, flestir á svæðinu milli Þorbjörns og Sýlingarfells svipað og daginn áður. Stærsti skjálftinn var 3,4 að stærð klukkan 00:31 í nótt skammt sunnan við Þorbjörn. Innlent 8.11.2023 14:55
Upplýsingafundur um jarðhræringarnar í Hljómahöll í kvöld Í hinu sögufræga félagsheimili Stapa, stærsta sal Hljómahallar, verður haldinn upplýsingafundur vegna jarðhræringa og landriss við Grindavík. Fundurinn hefst klukkan átta en einnig verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á fréttavef okkar Vísi og í sjónvarpinu á stöð 2 Vísi. Innlent 8.11.2023 13:40
Flúði skjálftana og komin í hjólhýsi í Árbænum Sigríður Jónasdóttir, íbúi í Grindavík, hefur fengið sig fullsadda af skjálftahrinunni á Reykjanesi og er flutt í borgina. Þar býr hún nú í hjólhýsi í garðinum hjá tengdaforeldrum dóttur sinnar. Innlent 8.11.2023 09:00
Fjörutíu skjálftar í nótt á Reykjanesinu Fremur rólegt er á um að litast á skjálftatöflum Veðurstofunnar þennan morguninn. Innlent 8.11.2023 07:12
„Miklu hraðara innflæði og hraðara landris“ Land heldur áfram að rísa við Þorbjörn. Fagstjóri náttúruvöktunar segir ástandið núna öðruvísi en undanfarin ár þegar gosið hefur á Reykjanesi. Nú flæði kvika mun hraðar og landris sé hraðara. Innlent 7.11.2023 19:36
Skoða hvort þörf sé á fleiri mælum við Þorbjörn Sérfræðingar Veðurstofunnar funduðu með lögreglu, almannavörnum og öðrum hagsmunaaðilum vegna stöðunnar við Svartsengi vegna mögulegs eldgoss. Engar stórar breytingar eru frá því í gær. Innlent 7.11.2023 12:45
Upplýsum ferðamenn Á heimasíðu Bláa lónsins kemur í dag fram að óvissustigi hafi verið lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þar kemur einnig fram að allar byggingar á svæðinu eigi að þola jarðskjálfta. Á heimasíðunni er ekkert minnst á hættu á eldgosi. Skoðun 7.11.2023 09:01
Kynnisferðir hætta ferðum í Bláa lónið Forsvarsmenn Kynnisferða hafa ákveðið að hætta ferðum í Bláa lónið frá og með hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri segir það gert með öryggi starfsmanna og gesta að leiðarljósi. Staðan verður endurmetin eftir þrjá daga. Innlent 6.11.2023 20:46
Varaaflsvélar komnar til Grindavíkur Fyrstu tvær varaaflsvélarnar eru komnar til Grindavíkur. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir þær hluta af undirbúning fyrir verstu sviðsmyndina ef til eldgoss kæmi og ekkert rafmagn né hiti kæmi frá Svartsengi. Innlent 6.11.2023 20:06
Finnur fyrir óöryggi hjá starfsfólki Bláa lónsins Framkvæmdastjóri Bláa lónsins telur að hægt væri að rýma svæðið innan klukkustundar ef til þess kæmi. Þessa dagana er gestafjöldi yfir tvö þúsund manns á hverjum degi. Mikil áhersla er lögð á að undirbúa starfsfólk fyrir mismunandi sviðsmyndir, en lóninu hefur verið skipt upp í tíu rýmingarsvæði. Innlent 6.11.2023 18:12
Svona var upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa Almannavarnir boða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð klukkan 15 vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu. Innlent 6.11.2023 14:01
Land risið um sjö sentimetra Frá 27. október hefur land risið um sjö sentimetra samkvæmt GPS-mælistöð á fjallinu Þorbirni. Aflögunin verður vegna kvikusöfnunar í syllu á um fimm kílómetra dýpi. Innlent 6.11.2023 13:39
Varar við því að ala óþarflega á ótta vegna mögulegs eldgoss Formaður Landsbjargar varar við því að ala of á ótta íbúa í Grindavík. Ástandið sé alvarlegt en viðbragðsaðila tilbúna og sérfræðinga fylgjast vel með stöðunni allan sólarhringinn. Skjálftavirkni er stöðug við Þorbjörn og landris sömuleiðis. Innlent 6.11.2023 13:01
Rólegt yfir skjálftamælum í nótt Vakthafandi náttúrúvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir að nóttin hafi verið róleg þegar kemur að skjálftavirkninni á Reykjanesi, í það minnsta miðað við síðustu nætur. Innlent 6.11.2023 06:47
Rýmingaráætlun fyrir Grindavík komin út Rýmingaráætlun fyrir Grindavík hefur verið birt á vefsíðu bæjarfélagsins. Þar er tilmælum komið á framfæri til bæjarbúa varðandi mögulega rýmingu kæmi til eldgoss sem myndi ógna byggð í Grindavík. Áætlunin hefur verið birt á íslensku, ensku, og pólsku. Innlent 5.11.2023 18:33
„Þetta er kvikusöfnun á fárra kílómetra dýpi, það er ekkert grín“ „Staðan er ekki góð. Nú er annað eldstöðvakerfi komið í gang en það sem var fyrrum. Það er svolítið ólíkt því sem var á miðöldum, þá leið lengra á milli þess að eldstöðvakerfin hrukku í gang. Þetta er kvikusöfnun á fárra kílómetra dýpi, það er ekkert grín. Þannig að ég lít svo á að staðan sé erfið. Það getur brugðið til beggja vona,“ segir Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur um jarðhræringar á Reykjanesi. Innlent 5.11.2023 15:32
Segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar Skjálftavirkni jókst á ný í nótt og landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar á svæðinu við komuna í lónið í gær. Innlent 5.11.2023 12:01
Landris heldur áfram Landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn og engin skýr merki eru um að kvika sé að færast nær yfirborði. Gera má ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni vegna kvikuinnskotsins, sem veldur aukinni spennu á svæðinu. Innlent 5.11.2023 10:58
Snarpur skjálfti í morgun Skjálftavirkni jókst upp úr klukkan fimm í morgun við Eldvörp á Reykjanesskaga. Stærsti skjálftinn mældist 4,2 að stærð, rétt fyrir klukkan 6.00 í morgun. Yfir 130 skjálftar hafa mælst síðasta klukkutímann, flestir á um 3-5 kílómetra dýpi. Enginn gosórói er á svæðinu. Innlent 5.11.2023 07:17