Eldgos og jarðhræringar
71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 132 ›
Kvika á leið upp helmingi minni en fyrir síðasta gos Ný gervihnattagögn benda til að kvikan undir Fagradalsfjalli sú núna á um fimmtánhundruð metra dýpi og virðist hún hafa þrýst sér upp um eitthundrað metra á síðustu fimm dögum. Jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu telur enn helmingslíkur á gosi. Innlent 4.1.2022 21:22
Kvikan á uppleið en á enn 1.600 metra eftir Sérfræðingar Veðurstofunnar segja nýja gervitunglamynd, sem barst í dag, benda til að kvikan undir Fagradalsfjalli sé enn á leið til yfirborðs og að hún sé núna á um sextánhundruð metra dýpi. Innlent 30.12.2021 19:59
Skjálfti við Ingólfsfjall í nótt Jarðskjálfti upp á 3 stig reið yfir í nótt, klukkan sextán mínútur yfir fjögur. Í þetta skiptið skalf jörð þó ekki í grennd við Fagradalsfjall, heldur átti skjálftinn upptök sín um átta kílómetra austur af Hveragerði, í Ingólfsfjalli. Innlent 30.12.2021 06:53
Færri skjálftar þýða ekki minni líkur á gosi Nokkuð hefur dregið úr virkninni við Fagradalsfjall undanfarna tvo sólarhringa. Jörð er þó ekki hætt að skjálfa, en engin merki eru um gosóróa enn sem komið er. Í morgun kom einn skjálfti sem fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er enn allt undir smásjá vísindamanna, enda minnkaði virknin töluvert í aðdraganda síðasta goss. Innlent 29.12.2021 12:01
Skjálfti upp á 3,7 fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti 3,7 að stærð fannst nokkuð vel á höfuðborgarsvæðinu og víða á suðvesturhorninu um klukkan tuttugu mínútur yfir tíu. Innlent 29.12.2021 10:27
„Aðeins“ 90 skjálftar mælst frá miðnætti Rólegt hefur verið á slóðum skjálftahrinunnar við Fagradalsfjall. Frá miðnætti hafa tæplega 90 skjálftar mælst, allir í minni kantinum. Innlent 29.12.2021 07:01
Telur eldgos spurningu um næstu daga frekar en vikur Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur telur líklegra að eldgos brjótist út að nýju við Fagradalsfjall á næstu dögum fremur en á næstu vikum. Innlent 28.12.2021 22:08
Skjálfti 3,9 að stærð skammt norðan við Trölladyngju Snarpur jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu á þriðja tímanum í dag. Innlent 28.12.2021 14:33
Skjálfti 3,4 að stærð í morgun Skjálfti 3,4 að stærð varð um fjóra kílómetra norður af Krýsuvík klukkan 6:25 í morgun. Annar skjálfti, rétt rúmlega tveir að stærð, var rúmum tveimur mínútum síðar á sömu slóðum. Innlent 28.12.2021 07:06
Grindvíkingar orðnir þreyttir á skjálftahrinunni Jarðskjálftavirkni er enn mikil á Reykjanesi þó hafa jarðskjálftarnir í dag mælst minni að stærð en síðustu daga. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir segir íbúa ýmsu vana en margir séu þó þreyttir á ástandinu. Innlent 27.12.2021 18:26
Vísindaráð fundar: Undir það búin að eldgos geti hafist hvað úr hverju Jarðskjálftavirkni er enn mikil á Reykjanesskaganum og mun vísindaráð almannavarna funda í dag til að fara yfir stöðuna og meta hverju megi eiga von á. Innlent 27.12.2021 12:17
Jarðskjálfti upp á 3,6 fannst vel á suðvesturhorninu Stór jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu nú laust fyrir klukkan hálf níu. Samkvæmt jarðskjálftatöflu Veðurstofunnar var skjálftinn 3,6 að stærð. Innlent 27.12.2021 08:30
Fjölmargir minni skjálftar frá miðnætti Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi varð jarðskjálfti af stærðinni 3,5 um tvo kílómetra vestan við Kleifarvatn. Innlent 27.12.2021 07:31
„Næstu 100-150 ár verður þetta í gangi“ Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hefur engan bilbug látið á sér finna yfir hátíðirnar. Spennan í efri skorpunni er að sögn eldfjallafræðings að gefa sig vegna þrýstings og líkur eru taldar hafa aukist á öðru gosi. Innlent 26.12.2021 23:57
Skjálfti að stærð 3,5: Skjálftahrinan heldur áfram Enn skelfur jörð á Reykjanesi en nú rétt fyrir klukkan ellefu varð skjálfti að stærð 3,5. Innlent 26.12.2021 23:38
Virkja sms-kerfi vegna óróa við Fagradalsfjall Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa virkjað sms-kerfi sem sendir smáskilaboð á fólk sem fer inn á fyrirframskilgreint svæði vegna jarðskjálfta sem hafnir eru á ný við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Ekki er loku fyrir það skotið að skilaboð berist á fólk að óþörfu. Innlent 26.12.2021 17:34
Snarpir skjálftar við Kleifarvatn Snarpir jarðskjálfti fundust víða á höfuðborgarsvæðinu á fjórða tímanum í dag. Fyrstu tölur gefa til kynna að skjálftarnir hafi verið 3,3 að stærð og 2,9 samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Innlent 26.12.2021 15:33
„Þetta er bara stórkostleg tilviljun“ „Þetta er bara stórkostleg tilviljun, það er engin tenging þarna á milli,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, um þá staðreynd að sama dag og hætti að gjósa í Fagradalsfjalli hafi eldgos hafist á La Palma á Kanarí, og að skömmu eftir að það hætti að gjósa á La Palma hafi skjálftahrina hafist að nýju á Reykjanesi. Innlent 26.12.2021 12:32
Tíst um næturskjálftana: „Geðveikt næs að vera andvaka í miðjum heimsendi“ Tveir nokkuð kröftugir jarðskjálftar urðu klukkan 5:10 í morgun, 3,6 og 3,3 að stærð og mældust þeir báðir í grennd við Kleifarvatn á Reykjanesskaga. Svo virðist sem nokkur fjöldi fólks hafi vaknað af værum jólasvefni við skjálftana. Lífið 26.12.2021 09:01
Jörð skalf nærri Kleifarvatni í morgun Skjálfti 3,6 að stærð varð nærri Kleifarvatni á Reykjanesskaga klukkan 5:10 í morgun. Annar skjálfti, 3,3 að stærð, mældist tæpri mínutu síðar á sömu slóðum. Innlent 26.12.2021 05:26
Líkur á gosi aukist með hverjum degi sem virkni helst óbreytt Um þrjú þúsund skjálftar hafa mælst við eldstöðina í Fagradalsfjalli í dag. Það er svipaður fjöldi og hefur mælst dag hvern frá 21. desember. Líkur á eldgosi aukast með hverjum deginum sem líður með óbreyttu ástandi, að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Innlent 25.12.2021 20:44
Skjálftahviða á gosstöðvunum Skjálftahviða mældist við Fagradalsfjall klukkan hálf fjögur og stóð yfir í tæpa klukkustund. Að sögn náttúruvársérfræðings er ljóst að hreyfing er á kviku undir yfirborðinu en erfitt er að lesa nánar í aðstæðurnar. Innlent 25.12.2021 16:47
Eldgosinu á La Palma lokið Yfirvöld á spænsku eyjunni La Palma hafa lýst því yfir að eldgosinu sem hófst á eyjunni í september sé lokið, eftir tíu daga án gosvirkni. Erlent 25.12.2021 15:37
Helst útlit fyrir gos við Meradali Næstum því 1.400 skjálftar hafa verið á Reykjanesi frá miðnætti sá stærsti upp á 4,5. Náttúruvársérfræðingur segir kviku hafa færst norður og nú sé helst útlit fyrir að það gjósi við Meradali. Innlent 25.12.2021 14:16
Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð. Innlent 25.12.2021 08:01
Jarðskjálfti 4,2 að stærð: „Það er búið að skjálfa dálítið vel í nótt“ Jarðskjálfti, 4,2 af stærð, mældist suðsuðaustur af Fagradalsfjalli klukkan 7:25 í morgun en jörð hefur skolfið við Fagradalsfjall síðan á þriðjudaginn síðastliðinn. Ekkert lát virðist vera á jarðskjálftavirkninni en þónokkrir jarðskjálftar mældust yfir 4 að stærð í gær. Sá stærsti mældist á miðvikudaginn en hann var 4,9 að stærð. Innlent 25.12.2021 07:26
Jörð skelfur á Reykjanesi Jarðskjálfti af stærðinni 4,8 varð 2,5 kílómetra norðaustan af Grindavík klukkan 21:38 í kvöld. Skjálftinn varð á fimm kílómetra dýpi en hann er sá næststærsti sem hefur orðið í yfirstandandi skjálftahrinu sem hófst á þriðjudaginn. Innlent 24.12.2021 22:46
Jarðskjálfti af stærðinni 4,7 mældist á Reykjanesskaga Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15.03 í dag og samkvæmt mælingum Veðurstofunnar var hann 4,7 að stærð. Skjálftinn er sá stærsti frá upphafi nýlegrar jarðskjálftahrinu í Fagradagsfalli en hún hófst á þriðjudaginn síðastliðinn. Innlent 24.12.2021 15:06
Skjálftavirkni við Fagradalsfjall: Eitt þúsund skjálftar frá miðnætti Skjálftavirkni tók að aukast við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga í gærkvöldi eftir fremur rólegan gærdag. Um eitt þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti en skjálftahrinan hefur staðið yfir síðan á þriðjudaginn. Innlent 24.12.2021 08:16
Tvö þúsund skjálftar frá miðnætti Skjálftavirkni við Fagradalsfjall mælist enn mikil. Frá miðnætti hafa um tvö þúsund skjálftar mælst á svæðinu og flestir þeirra nærri gosstöðvunum. Innlent 23.12.2021 16:50