

Á morgun verður tólf klukkustunda langt verk flutt í Hörpu en gjörningurinn er hluti af Listahátíð Reykjavíkur. Verkið er sviðsverk þar sem þrjátíu og sex einstaklingar úr ólíkum starfstéttum koma saman og verða spurð sex hundruð spurninga. Verkið hefst klukkan tólf í hádeginu og stendur yfir til miðnættis. Aðgangur er ókeypis.
Listahátíð Reykjavíkur stendur nú yfir og eru fjölbreyttar sýningar um allan bæ. Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður leit við í Borgarleikhúsið í kvöldfréttunum á Stöð 2 í kvöld þar sem fór fram æfing á nýju dansverki sem sýnt er á Listahátíð í ár.
Fimmtíu tonnum af sandi hefur verið komið fyrir inni í Listasafni Reykjavíkur þar sem tugir sóla sig á manngerðri baðströnd. Hávaxnar undraverur skálmuðu um miðbæinn í dag í tilefni af opnun listahátíðar.
Heimferð (Moetvi Caravan) er einstæð ör-leikhúsupplifun í húsbíl fyrir lítinn áhorfendahóp í senn, en aðeins átta áhorfendur komast inn á hverja sýningu fyrir sig.
Sviðslistamaðurinn Taylor Mac mun spila á opnunarsýningu Listahátíðar í Reykjavík sem fer fram á morgun. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar telur að þakið muni rifna af Þjóðleikhúsinu þar sem sýningin fer fram.
Erfiðlega gekk að flytja fimmtíu tonn af sandi inn í Hafnarhúsið í dag en þröngar götur miðbæjarins gerðu vörubílstjóra erfitt fyrir. Sandurinn er hluti af listasýningu sem verður opnuð fjórða júní.
Karlmaður pantaði mat á veitingastað í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi en þegar rukka átti manninn gat hann ekki borgað fyrir veitingarnar. Lögregla var kölluð á staðinn og leysti úr málinu.
Einn kunnasti listamaður Íslendinga, Helgi Tómasson, tilkynnti í gær að hann hygðist láta af störfum á næsta ári sem listrænn stjórnandi og aðaldanshöfundur San Francisco-ballettsins. Helgi, sem orðinn er 78 ára gamall, tók við stjórn ballettflokksins fyrir 35 árum eftir farsælan feril sem ballettdansari þar sem hann skapaði sér nafn sem einn besti karldansari heims.
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð leggur til við borgarráð að Myrkir músíkdagar og Reykjavík Dance Festival bætist í hóp borgarhátíða 2020-2022.
Blúshátíð Reykjavíkur var sett í dag með skrúðgöngu sem lúðrasveitin Svanur leiddi frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíginn. Þar fór formleg setning hátíðarinnar fram.
Í verkum Hreins Friðfinnssonar myndlistarmanns sem til sýnis eru í Listasafni ASÍ leikur hann sér með ljós og spegla. Loftsteinar koma líka við sögu. Dalamaðurinn og heimsborgarinn Hreinn svarar símanum í Amsterdam í Hollandi.
Algerlega frábærir djasstónleikar.
Myndlistarkonan Sara Björnsdóttir birtir textaklippiverk, vídeó, ljósmyndir og sögu frá dvöl sinni í London á sýningunni Flâneur í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar má greina sambland frelsis og einmanaleika, ævintýra, vandræða og sérvisk
Sýning Gabríelu Friðriksdóttur Innra líf heysátu í Gallery GAMMA við Garðastræti í Reykjavík teygir sig úr kaffistofu á efri hæð um neðri sal og út í garð. Þar eru teikningar, teiknimyndir, skúlptúrar – og hey.
Terri Lyne Carrington á að baki glæsilegan feril í heimi djassins. Hún er alin upp í heimi djassins, hefur spilað með mörgum af stærstu nöfnunum á síðustu öld og unnið til þrennra Grammy-verðlauna. En á sunnudagskvöldið spilar hún í Hörpu.
Phoenix Reykjavík Edition er einstakur listviðburður í Snarfarahöfn fyrir einn áhorfanda í senn. Gunnar Hansson framkvæmdastjóri segir engu líkt að taka á móti ferðalöngum um minningar og tilfinningar.
Fallegur söngur, en meðleikurinn var upp og ofan.
Nýtt tónleikhúsverk eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem byggt er á Blóðhófni, ljóðabálki Gerðar Kristnýjar, verður flutt í kvöld í Tjarnarbíói. Það er liður í dagskrá Listahátíðarinnar í Reykjavík.
Síminn hringir en það er enginn heima.
Mistakasaga mannkyns er yfirskrift og umfjöllunarefni ferðalags í tali og tónum með valinkunnum listamönnum sem koma úr skemmtilega ólíkum áttum en sameinast í þessum sérstæða viðburði Listahátíðar.
Hin kröftuga kantata La Lucrezia eftir Händel er þungamiðja tónleika sem nýstofnaður barokkhópur, Symphonia Angelica, verður með í Guðríðarkirkju í Grafarholti á morgun.
Færsla er yfirskrift sýningar á verkum Huldu Stefánsdóttur sem var nýverið opnuð í BERG Contemporary.
Gunnar Kvaran sellóleikari heldur á morgun, sunnudaginn 22. maí, tónleika í Laugarneskirkju til minningar um Erling Blöndal Bengtsson fyrrum kennara sinn og meistara
Listahátíð í Reykjavík 2016 hefst í dag með dansgöngu í miðborginni. Gengið verður frá Listasafni Reykjavíkur að Listasafni Íslands þar sem dansinn verður látinn duna.
Sýning á verkum belgísku listakonunnar Berlinde de Bruyckere er opnunarsýning myndlistarinnar á Listahátíðinni í Reykjavík sem hefst í dag. Á sýningunni gefur að líta verk frá síðustu fimmtán árum á löngum og fádæma farsælum ferli þessarar sérstæðu listakonu.
Stjórnmálamenn eru ákaflega mikið fyrir menningu og listir. Sérstaklega á tyllidögum og þá einkum ef margir eru hlusta.
Hanna Styrmisdóttir kynnti í gær glæsilega tón- og sviðslistadagskrá Listahátíðarinnar í Reykjavík sem verður frá og með vorinu tvíæringur. Hanna segir að listin endurspegli alltaf ástand okkar og líðan.
Í vor kemur Helgi Tómasson með San Fransisco Ballet heim til Íslands á Listahátíðina í Reykjavík. Ferill Helga er ævintýri líkastur allt frá fyrstu ballettsporunum á fjölum Þjóðleikhússins til þess að vera einn besti dansari sinnar kynslóðar og að koma San Fransisco Ballettinum í fremstu röð í heiminum.
Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut Eyrarrósina 2016 í gær fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Öflug listastarfssemi hefur verið í Verksmiðjunni allt frá stofnun og það er margt framundan.