Erlent
146 147 148 149 150 151 152 153 154 … 334 ›
Skipa Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum Yfirvöld í Þýskalandi hafa gert Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum þeirra þar í landi. Það er í kjölfar þess að ráðamenn í Rússlandi settu takmark á fjölda starfsmanna sendiráðs og ræðismannsskrifstofa Þjóðverja í Rússlandi. Erlent 31.5.2023 20:27
Ranglega sakaður um þjófnað og skotinn í bakið Eigandi bensínstöðvar í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum elti fjórtán ára dreng, sem hann grunaði ranglega um þjófnað í versluninni, og skaut hann til bana. Hann var ákærður fyrir morð þegar í ljós kom að táningurinn hafði verið skotinn í bakið. Erlent 31.5.2023 17:57
NATO sendir fleiri hermenn til Kósovó vegna óróa Um sjö hundruð hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins verða sendir til Kósovó og önnur liðsveit sett í viðbragðsstöðu vegna vaxandi óróa þar á undanförnum dögum. Tugir NATO-hermanna og heimamanna særðust í átökum í norðanverðu Kósovó á öðrum degi hvítasunnu. Erlent 31.5.2023 15:56
Christie sagður ætla að lýsa yfir framboði Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey og ráðgjafi Donalds Trump, er sagður ætla að lýsa yfir forsetaframboði í næstu viku. Stuðningsmenn Christie hafa hleypti nýrri pólitískri aðgerðanefnd af stokkunum til þess að styðja framboðið. Erlent 31.5.2023 12:05
Utanríkisráðherrann verður næsti forseti Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands, verður næsti forseti Lettlands. Hann tekur við embættinu af Egils Levits sem hafði gegnt því frá árinu 2019. Erlent 31.5.2023 11:44
Ásakandi Bidens leitar skjóls í Rússlandi Kona á sextugsaldri sem sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um kynferðisofbeldi í aðdraganda forsetakosninganna 2020 segist flutt til Rússlands og ætla að sækja um ríkisborgararétt þar. Hún segist upplifa sig öruggari í Rússlandi en heimalandinu. Erlent 31.5.2023 11:33
„Fjölskyldumeðlimur“ Charles Manson á rétt á reynslulausn Áfrýjunardómstóll í Kaliforníu í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona sem myrti hjón að fyrirskipan Charles Manson á 7. áratug síðustu aldar ætti rétt á reynslulausn. Konan hefur setið í fangelsi undanfarin fimmtíu ár og hefur ítrekað verið neitað um lausn gegn reynslu. Erlent 31.5.2023 09:04
Kínverjar þurfi að leiðrétta kynjahalla Sameinuðu þjóðirnar leggja til að Kína setji á kynjakvóta fyrir þingmenn og æðstu embættismenn landsins. Alvarlegur kynjahalli sé á stjórn landsins. Erlent 31.5.2023 07:45
Norður-Kóreumönnum mistókst að koma gervihnetti út í geim Tilraun stjórnvalda í Norður-Kóreu til að koma njósnagervihnetti á loft fóru út um þúfur í nótt. Honum var skotið upp með eldflaug en njósnagervihnötturinn lenti að endingu í hafinu. Erlent 31.5.2023 07:00
McCarthy stendur frammi fyrir uppreisn Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir mótmælum frá hægri sinnuðustu þingmönnum í þingflokki hans vegna samkomulags sem hann hefur gert við Joe Biden, forseta, um skuldaþakið svokallaða. Þingmönnunum þykir hann ekki hafa gengið nógu hart fram gegn Biden og náð fram þeim niðurskurði sem þeir vilja. Erlent 30.5.2023 22:36
Saka kínverskan flugmann um „óþarflega ágenga“ hegðun Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna í Indlands- og Kyrrahafi sökuðu kínverskan flugmann í dag um „óþarflega ágenga“ hegðun yfir Suður-Kínahafi. Kínverskur flugmaður flaug herþotu af gerðinni J-16 í veg bandarískrar eftirlitsvélar af gerðinni RC-135. Erlent 30.5.2023 22:35
Vigta farþega áður en þeir stíga um borð Flugfélag Nýja-Sjálands hyggst vigta alla farþega sem stíga um borð í flugvélar félagsins í júlímánuði. Er það gert til að finna út meðalþyngd farþega. Erlent 30.5.2023 19:49
Segir árásina á Moskvu vera hryðjuverk Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að drónaárás á Mosvku í morgun sé hryðjuverk. Árásinni hafi verið ætlað að hræða Rússa og ögra Rússum til að bregðast við með sambærilegum hætti. Erlent 30.5.2023 18:51
Þungir dómar fyrir að streyma enska boltanum Fimm menn hafa verið dæmdir fyrir að streyma ólöglega leikjum úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Höfuðpaurinn Mark Gould fékk ellefu ára fangelsisdóm. Erlent 30.5.2023 16:56
Bólusetja endur í haust Franska landbúnaðarráðuneytið hefur tilkynnt að bólusetningartilraunir við fuglaflensu á öndum hafi gefið viðunandi árangur. Stefnt er að því að bólusetja aliendur í haust. Erlent 30.5.2023 16:12
Fjölskyldan heima þegar ráðist var á heimili þeirra með hníf Maður vopnaður hnífi réðist á heimili leikarahjónanna Benedict Cumberbatch og Sophie Hunter á dögunum. Cumberbatch og Hunter voru heima með börnum sínum þremur þegar atvikið átti sér stað. Erlent 30.5.2023 11:59
„Njósnamjaldurinn“ skýtur upp kollinum í Svíþjóð Sænsk yfirvöld klóra sér nú í kollinum yfir því hvað þau eigi að gera með mjaldurinn Hvaldímír, grunaðan njósnara í þjónustu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, eftir að hann lét sjá sig við strendur landsins nýlega. Talið er að mjaldurinn sækist enn eftir samskiptum við menn. Erlent 30.5.2023 11:48
Söngvari Rammstein sakaður um byrlun Kona að nafni Shelby Lynn hefur sakað Till Lindemann, söngvara þýsku þungarokkshljómsveitarinnar Rammstein, um byrlun. Í yfirlýsingu hljómsveitarinnar er ásökununum hafnað. Erlent 30.5.2023 11:02
Stofnandi Theranos hefur afplánun Elizabeth Holmes, stofnandi fallna blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, hefur afplánun á ellefu ára fangelsisdómi í kvennafangelsi í Texas í dag. Henni var hafnað um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar dómnum. Erlent 30.5.2023 09:49
Neyddist til að láta soninn fjúka í kjölfar hneykslismáls Fumio Kishida, forsætisráðherra Japan, hefur neyðst til að láta son sinn fjúka eftir að myndir fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem sonurinn og aðrir ættingjar sjást fíflast í forsætisráðherrabústaðnum. Erlent 30.5.2023 09:22
Tugir friðargæsluliða særðust í átökum í Kósovó Um þrjátíu friðargæsluliðar á vegum Atlantshafsbandalagsins særðust í hörðum átökum við Serba í norðanverðu Kósovó í gær. Átökin blossuðu upp þegar hópur manna af serbneskum uppruna reyndi að koma í veg fyrir að nýlega kjörnir fulltrúar af albönskum uppruna kæmust á skrifstofur sínar. Erlent 30.5.2023 09:10
Rússar gefa út handtökuskipun á hendur glaðbeittum Graham Rússar hafa gefið út handtökuskipun á hendur bandaríska öldungadeildarþingmanninum Lindsey Graham, sem virðist í klipptu myndskeiði fagna dauða rússneskra hermanna. Erlent 30.5.2023 07:46
Forseti Cop28 sakaður um „grænþvott“ á Wikipedia Sultan Al Jaber, forseti loftslagsráðstefnunnar Cop28, hefur verið sakaður um að „grænþvo“ upplýsingar um sjálfan sig á Wikipedia, meðal annars síður þar sem fjallað er um störf hans sem framkvæmdastjóri Abu Dhabi National Oil Company (ADNOC). Erlent 30.5.2023 07:05
Drónaárásir á Kænugarð og Moskvu í nótt Drónaárásir voru gerðar á Kænugarð í Úkraínu og Moskvu í Rússlandi í nótt. Einn lést og nokkrir særðust í Kænugarði, þar sem hermálayfirvöld sögðust hafa skotið niður yfir 20 dróna. Erlent 30.5.2023 06:41
Hræðileg afturför fyrir réttindi hinsegin fólks Framkvæmdastjóri Samtakanna '78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland á í þróunarsamstarfi við Úganda, en utanríkisráðherra segir samskipti við ríki þar sem grundvallarmannréttindi eru ekki virt, alltaf vera flókin. Erlent 29.5.2023 23:33
Fimmtán ára stúlka ákærð fyrir nítján morð Fimmtán ára gvæjönsk stúlka hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt átján skólasystur sínar og fimm ára dreng í síðustu viku, með því að hafa lagt eld að heimavistarskóla. Hún gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Erlent 29.5.2023 23:24
Laug til um ástarsamband við mun yngri samstarfsmann Breski sjónvarpsmaðurinn Phillip Schofield hefur hætt störfum hjá sjónvarpsstöðinni ITV eftir að upp komst um ástarsamband hans við mun yngri karlmann, sem vann á stöðinni. Samstarfsfólk segir hann lygara og haldinn ranghugmyndum. Erlent 29.5.2023 15:28
Gröf Vivienne Westwood vanhelguð Gröf hinnar goðsagnakenndu Vivienne Westwood, sem lést á síðasta ári, var vanhelguð þegar stóru blómakeri, sem skreytti grafreit hennar, var stolið. Fjöldi fólks hefur lýst yfir hneykslan sinni vegna þjófnaðarins. Erlent 29.5.2023 14:53
Dauðarefsingar og tuttugu ára dómar við samkynhneigð í Úganda Yoweri Museveni, forseti Úganda, hefur skrifað undir lög sem fela í sér eina mestu skerðingu á réttindum hinsegin fólks í heiminum. Með lögunum geta þeir sem „auglýsa“ samkynhneigð átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi og þeir sem stunda samkynja kynlíf sýktir af HIV geta hlotið dauðarefsingu. Erlent 29.5.2023 10:20
Þrír látnir eftir að bát hvolfdi í stormviðri Þrír hafa verið úrskurðaðir látnir og eins er enn saknað eftir að bát hvolfdi í skyndilegu stormviðri á Maggiore-vatni á Ítalíu í gær. Nítján hefur verið bjargað. Erlent 29.5.2023 08:58