Erlent
167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 334 ›
BBC sýnir ekki Attenborough af ótta við hægrimenn Breska ríkisútvarpið BBC er sagt hafa ákveðið að sýna ekki þátt úr nýrri náttúrulífsþáttaröð Davids Attenborough af ótta við viðbrögð Íhaldsflokksins og hægrisinnaðra fjölmiðla. Þátturinn fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum. Erlent 10.3.2023 15:39
Íranar og Sádar taka aftur upp stjórnmálasamband Fulltrúar Írans og Sádi-Arabíu tilkynntu að ríkin tvö ætluðu að taka aftur upp stjórnmálasamband og opna sendiráð sem var lokað í áralöngum illdeilum þeirra í dag. Kínverjar höfðu milligöngu um samningaviðræður ríkjanna. Erlent 10.3.2023 15:24
Byssumaðurinn sagði skilið við söfnuðinn í illu Karlmaður á fertugsaldri sem skaut sex manns og ófætt barn til bana í ríkissal votta Jehóva í Hamborg í gærkvöldi sagði skilið við söfnuðinn í illu fyrir einu og hálfu ári, að sögn þýska yfirvalda. Lögregla ræddi við manninn í janúar þegar henni barst ábending um að hann hefði sýnt reiði í garð trúaðra. Erlent 10.3.2023 14:23
Vatnið á jörðinni eldra en sólkerfið sjálft Rannsóknir stjörnufræðinga á efnisskífu í kringum fjarlæga frumstjörnu rennir stoðum undir þá tilgátu að vatnið á jörðinni sé enn eldra en sólkerfið sjálft. Talið er að vatnið hafi orðið til í geimnum á milli stjarnanna og á endanum borist til jarðarinnar með halastjörnum. Erlent 10.3.2023 13:29
Trump gæti verið ákærður fyrir að kaupa þögn klámleikkonu Umdæmissaksóknari í New York er sagður hafa tjáð lögmönnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að hann gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir sinn þátt í að greiða klámmyndaleikkona til að þegja um framhjáhald hans. Erlent 10.3.2023 10:34
Gerir Játvarð bróður sinn að hertoga af Edinborg Karl Bretakonungur útnefndi Játvarð bróður sinn hertoga af Edinborg í tilefni af 59 ára afmæli hans í dag. Játvarður tekur við tigninni af Filippusi prins föður sínum sem lést fyrir tveimur árum. Erlent 10.3.2023 10:14
Morðinginn talinn á meðal átta látinna í ríkissal votta Átta eru sagðir látnir eftir að maður hóf skothríð í ríkissal votta Jehóva í Hamborg í Þýskalandi, þeirra á meðal byssumaðurinn sjálfur. Lögregla rannsakar enn tilefni árásarinnar en telur að byssumaðurinn hafi verið einn að verki. Erlent 10.3.2023 09:07
Glæpagengi biðst afsökunar á morðum og mannráni Erlendir miðlar hafa greint frá því að hópur sem klauf sig úr mexíkóska Flóa-fíkniefnahringnum og kallar sig Sporðdrekagengið hafi beðist afsökunar á því að hafa rænt fjórum Bandaríkjamönnum í síðustu viku og myrt tvo þeirra. Erlent 10.3.2023 08:02
Þriðja kjörtímabil Xi Jinping tryggt Xi Jinping forseti Kína hefur nú tryggt þriðja kjörtímabil sitt og styrkt stöðu sína enn frekar sem voldugasti leiðtogi Kínverja í margar kynslóðir. Erlent 10.3.2023 07:47
Robert Blake er látinn Bandaríski leikarinn Robert Blake, sem var á sínum tíma ákærður fyrir morð á eiginkonu sinni en sýknaður, er látinn. Blake varð 89 ára gamall. Erlent 10.3.2023 07:27
Xi vill her í heimsklassa fyrir árið 2027 Xi Jinping, forseti Kína, hefur kallað eftir því að meiri kraftur verði lagður í nútímavæðingu og hernaðaruppbyggingu í Kína, svo herafli ríkisins verði í „heimsklassa“. Þetta sagði forsetinn í ræðu í gær, stuttu eftir að utanríkisráðherra Kína varaði við stríði gegn Bandaríkjunum, breyti Bandaríkjamenn ekki um stefnu gagnvart Kína. Erlent 9.3.2023 23:43
„Blóðbað“ í ríkissal Votta í Hamborg Minnst sjö eru sagðir látnir og átta særðir eftir skotárás í Hamborg í kvöld. Árásin var gerð í ríkissal Votta Jehóva í borginni, samkvæmt fjölmiðlum í Þýskalandi. Erlent 9.3.2023 21:59
Fann föður sinn og nauðgara móður sinnar með DNA prófi Bandarísk kona notaði DNA-próf og vinsælan erfðafræðigagnagrunn til að finna föður sinn og í senn manninn sem nauðgaði fjölfatlaðri móður hennar. Maðurinn vann á þjónustumiðstöð sem konan var vistuð á. Erlent 9.3.2023 20:47
Rússar halda uppi öflugum hryðjuverkaárásum á borgir í Úkraínu Forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir ekki hægt að líða stöðugar sprengjuárásir Rússa á Kjarnorkuverðið í Zaporizhhia sem varð án rafmagns í sjötta sinn í nótt. Að minnsta kosti fimm óbreyttir borgarar féllu í stórfelldum eldflaugaárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Erlent 9.3.2023 19:41
Biden vill hækka skatta á ríka og fyrirtæki Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði í dag fram fjárlagatillögu sína fyrir árið 2024 þar sem hann kallar eftir mikilli útgjaldaaukningu, auk þess að kalla eftir hærri sköttum á eignafólk og fyrirtæki. Tillagan verður aldrei samþykkt þar sem Repúblikanar fara með nauman meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Erlent 9.3.2023 18:35
Grunaður um að hafa myrt móður sína og bróður Lögregla í Svíþjóð handtók í morgun ungan karlmann sem grunaður er um að hafa banað móður sinni og bróður í einbýlishúsi í Luleå í norðurhluta landsins. Erlent 9.3.2023 12:20
Dæmdir í fangelsi vegna mannskæða troðningsins Tveir embættismenn knattspyrnuliðs voru dæmdir í fangelsi vegna troðningsins sem myndaðist á leikvangi í Malang í Indónesíu í dag. Á annað hundrað manns lést í troðningnum eftir að lögreglumenn skutu táragasi á aðdáendur sem þustu út á völlinn. Erlent 9.3.2023 11:56
Aldraður leiðtogi repúblikana á sjúkrahúsi Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, var lagður inn á sjúkrahús eftir að hann hrasaði og datt á hóteli í Washington-borg í gærkvöldi. Talsmaður hans upplýsti ekki frekar um ástand hans eða hversu lengi hann verður fjarverandi. Erlent 9.3.2023 09:37
Fengu mun hærra verðmat eftir að hafa „hvítþvegið“ heimili sitt Bandarískt par hefur náð sátt við fasteignamatsfyrirtæki sem parið sakaði um að hafa metið heimili sitt undir markaðsvirði vegna þess að bæði eru svört. Fyrirtækið mat húsið á 900 þúsund dollara en það var seinna metið á 1,5 milljón dollara. Erlent 9.3.2023 08:44
Ákæra ekki sex ára dreng sem skaut kennara Saksóknari í Virginíu í Bandaríkjunums segir ósennilegt að sex ára drengur sem skaut kennara sinn í grunnskóla verði ákærður. Ákvörðun hefur enn ekki verið tekin um hvort fullorðinn einstaklingur verði ákærður vegna málsins. Erlent 9.3.2023 08:44
Fallið frá fyrirhugaðri löggjöf um „erlenda aðila“ Draumaflokkurinn, stærsti þingflokkur Georgíu, hefur ákveðið að draga til baka frumvarp um „erlenda aðila“ eftir hörð mótmæli. Flokkurinn sagðist í yfirlýsingu vilja draga úr átökum í þjóðfélaginu. Erlent 9.3.2023 07:43
Umfangsmiklar loftárásir víðsvegar um Úkraínu Allt að 40 prósent af íbúum Kænugarðs eru án hita eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa á skotmörk víðsvegar í landinu. Árásirnar virðast meðal annars hafa beinst gegn orkuinnviðum og hafa valdið rafmagnsleysi í Kharkív, Odessa og víðar. Erlent 9.3.2023 06:22
Carlson sagðist hata Trump út af lífinu Sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson, sem er einn af stærstu stjörnum Fox News í Bandaríkjunum, hefur nokkrum sinnum talað illa um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, við vini sína og samstarfsmenn. Í eitt sinn sagðist Carlson hata Trump út af lífinu. Erlent 8.3.2023 22:44
Segja rússneska björninn búinn á því Avril D. Haines, æðsti yfirmaður leyniþjónustusamfélags Bandaríkjanna, sagði bandarískum öldungadeildarþingmönnum í dag að rússneski herinn hefði líklega ekki burði til að leggja undir sig mikið meira landsvæði í Úkraínu á þessu ári. Þess í stað séu þeir líklegir til að byggja upp varnir og reyna að halda þeim svæðum sem þeir hafa náð. Erlent 8.3.2023 19:44
Hættu við að skjóta fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni út í geim Starfsmenn fyrirtækisins Relativity Space ætluðu sér að reyna að skjóta fyrstu eldflauginni sem er nánast öll þrívíddarprentuð út í geim. Eldflaugin notar einnig metan sem eldsneyti, sem er ekki hefðbundið. Erlent 8.3.2023 17:37
Móðgaði kónginn með gúmmíandadagatali Taílenskur karlmaður hefur verið dæmur í tveggja ára fangelsi yfir að selja dagatöl með gúmmíöndum sem klæddar voru í konungsgersemar ríkisins. Athæfið telst ærumeiðing gegn konungsfjölskyldu ríkisins. Erlent 8.3.2023 14:35
Repúblikanar og lögregla gagnrýna Carlson og Fox News Öldungadeildarþingmenn úr röðum Repúblikanaflokksins og lögregluyfirvöld í Washington D.C. hafa gagnrýnt Fox News harðlega fyrir að birta myndskeið frá árásinni á þinghúsið, þar sem atburðir eru teknir úr öllu samhengi. Erlent 8.3.2023 12:18
Hyggja á lagasetningu sem ESB segir ósamræmanlega gildum sambandsins Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, í dag til að mótmæla fyrirhuguðum lögum sem gagnrýnendur segja ógna málfrelsi í landinu. Óeirðarlögregla var kölluð til og beitti vatnsbyssum og piparúða gegn mótmælendum. Erlent 8.3.2023 11:03
Síðasta orrusta Wagner? Serhiy Cherevaty, yfirmaður hersveita Úkraínu í austurhluta landsins, segir orrustuna um Bakhmut þá síðustu sem sveitir Wagner málaliðahópsins munu há. Hann segir þúsundir liðsmanna Wagner hafa fallið í átökunum. Erlent 8.3.2023 10:29
Freista þess að takmarka réttinn til þungunarrofs við sex vikur Þingmenn Repúblikanaflokksins í báðum deildum ríkisþings Flórída hafa lagt fram frumvörp sem miða að því að takmarka rétt kvenna til þungunarrofs við sex vikur í stað fimmtán. Erlent 8.3.2023 08:18