Erlent
215 216 217 218 219 220 221 222 223 … 334 ›
Þarf að greiða fjölskyldum fórnarlamba tæpan milljarð dollara vegna samsæriskenninga Bandaríski fjölmiðlamaðurinn og samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones hefur verið dæmdur til að greiða fjölskyldum barna sem myrt voru í skotárásinni í Sandy Hook í Bandaríkjunum tæpan milljarð dollara í skaðabætur. Erlent 12.10.2022 20:22
Lögðu hald á margar þrívíddarprentaðar byssur og íhluti Lögregluþjónar í Lundúnum lögðu nýverið hald á magar þrívíddarprentaðar byssur og mikið magn skotfæra, sem talið er að sé stærsti slíki fundur í sögu Bretlands. Vopnin og íhlutir til að framleiða fleiri vopn fundust í íbúð í borginni en lögreglan telur að umfangsmikil framleiðsla slíkra skotvopna hafi átt sér stað þar. Erlent 12.10.2022 16:43
Heitir Sádum afleiðingum vegna skerðingar á olíuframleiðslu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hét því í gær að ákvörðun OPEC+ ríkjanna svokölluðu um að draga verulega úr olíuframleiðslu myndi hafa afleiðingar fyrir Sádi-Arabíu, sem leiða samtökin og eiga að heita bandalagsríki Bandaríkjanna. Þingmenn Demókrataflokksins hafa kallað eftir því að Bandaríkin frysti allt varnarsamstarf með einræðisríkinu. Erlent 12.10.2022 15:49
Telur það slæma hugmynd að skipta kjarnorku út fyrir kol Sænski umhverfisverndaraðgerðarsinninn Greta Thunberg varar við því að þýsk stjórnvöld loki kjarnorkuverum og framleiði í staðinn raforku með kolum. Til stendur að loka þremur þýskum kjarnorkuverum fyrir árslok á sama tíma og gömul kolaorkuver eru vakin upp frá dauðum. Erlent 12.10.2022 14:54
Lögregluþjónn ákærður eftir skothríð á tvo táninga Saksóknarar í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum ákærðu í gær lögregluþjón sem skaut sautján ára dreng á bílastæði við McDonalds um þar síðustu helgi, 2. október. James Brennand, lögregluþjóninn, skaut hinn sautján ára gamla Erik Cantu, sem liggur á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi. Erlent 12.10.2022 13:46
Bosnía fær stöðu umsóknarríkis hjá ESB Bosnía hefur fengið formlega stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Þetta staðfestir Oliver Varhelyi, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá ESB í dag. Erlent 12.10.2022 13:19
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði. Erlent 12.10.2022 11:36
Fær tvo daga til viðbótar til að sauma saman nýja stjórn Forseti sænska þingsins hefur veitt Ulf Kristersson, formanni hægriflokksins Moderaterna, tveggja daga frest til að setja saman ríkisstjórn borgaralegra flokka. Tveggja vikna frestur, sem þingsforsetinn Andreas Norlén veitti Kristersson til stjórnarmyndunar í síðasta mánuði, rann út í dag. Erlent 12.10.2022 10:36
Forseti Perú ákærður fyrir spillingu Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu. Erlent 12.10.2022 09:05
Adnan Syed hreinsaður af sök Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan. Erlent 12.10.2022 08:00
Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. Erlent 12.10.2022 07:12
Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. Erlent 12.10.2022 06:48
NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. Erlent 11.10.2022 21:09
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. Erlent 11.10.2022 19:46
Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. Erlent 11.10.2022 17:57
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. Erlent 11.10.2022 13:59
Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. Erlent 11.10.2022 13:01
Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar. Erlent 11.10.2022 11:22
Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil. Erlent 11.10.2022 10:52
Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri. Erlent 11.10.2022 08:40
Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. Erlent 11.10.2022 08:38
Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. Erlent 11.10.2022 08:35
Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. Erlent 11.10.2022 08:16
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. Erlent 11.10.2022 07:49
Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum. Erlent 11.10.2022 06:33
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. Erlent 10.10.2022 22:23
Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi. Erlent 10.10.2022 21:33
Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“ Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum. Erlent 10.10.2022 21:16
Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024. Erlent 10.10.2022 16:32
Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. Erlent 10.10.2022 16:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent