Viðskipti erlent
308 309 310 311 312 313 314 315 316 … 334 ›
Bouton kveður risabankann Daniel Bouton, fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarformaður franska risabankans Societe Generale, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næsta mánuði.Ástæðurnar segir hann vægðarlausa gagnrýni á störf sín. Viðskipti erlent 30.4.2009 04:30
Bjartsýni innan ESB Íbúar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa ekki verið bjartsýnni um horfur í efnahagslífinu í tæp tvö ár, samkvæmt niðurstöðum könnunar á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) og birtar voru í gær. Væntingarvísitala íbúa ESB-landanna fór úr 60,4 stigum í 63,9 stig, sem jafngildir 5,8 prósenta hækkun. Í evrulöndunum jukust væntingar um tæp 3,9 prósent. Viðskipti erlent 30.4.2009 04:00
Ljós í myrkrinu hjá Royal Unibrew Það er ljós í myrkrinu hjá Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðjum Danmerkur. Uppgjör Unibrew fyrir fyrsta ársfjórðung ársins er mun betra en vænst var. Stoðir eru meðal stærstu hluthafa með um fimmtungs hlut. Viðskipti erlent 29.4.2009 15:54
Oliver Stone gerir framhald af myndinni Wall Street Kvikmyndaleikstjórinn Oliver Stone hefur undirritað saming við Fox um að gera framhald af mynd sinni Wall Street frá árinu 1987. Viðskipti erlent 29.4.2009 14:11
Töluverðar sveiflur á álmarkaðinum Töluverðar sveiflur hafa verið á álverðinu í heiminum undanfarna sjö daga. Verðið miðað við þriggja mánaða afhendingu fór hæst í tæplega 1.470 dollara tonnið en í dag er það komið í tæplega 1.430 dollara tonnið. Viðskipti erlent 29.4.2009 13:07
Nasdaq frestar afskráningu deCODE Stjórn Nasdaq-kauphallarinnar í New York hefur ákveðið að fresta afskráningu á deCODE á meðan endurskoðun á stöðu félagsins fer fram. Viðskipti erlent 29.4.2009 11:02
Woodstock fjármálaheimsins haldið um næstu helgi Aðalfundur Berkshire Hathaway, fjárfestingafélags milljarðamæringsins Warren Buffett, verður haldið um næstu helgi en fundir þessir hafa gengið undir nafninu Woodstock fjármálaheimsins. Viðskipti erlent 29.4.2009 09:58
Chrysler bjargaði sér fyrir horn Bílaframleiðandinn Chrysler náði í gær samkomulagi við bandarísk stjórnvöld um enn frekari aðstoð til þess að komast hjá gjaldþroti. Sex komma níu milljarðar dollara af skuldum fyrirtækisins verða að öllum líkindum afskrifaðar nái samkomulagið fram að ganga. Viðskipti erlent 29.4.2009 07:30
Samdráttur í Japan Stjórnvöld í Japan hafa fært efnahagsspá sína fyrir árið úr núlli í samdrátt upp á 3,3 prósent. Fjárlagaárið þar í landi hófst um mánaðamótin. Viðskipti erlent 29.4.2009 05:00
Greitt fyrir uppljóstrun Mary Schapiro, forstjóri bandaríska fjármálaeftirlitsins, segir ekki útilokað að greitt fyrir þær upplýsingar sem leiða til þess að efnahagsbrot verða upprætt. Viðskipti erlent 29.4.2009 04:15
Viðsnúningur til hins verra hjá JJB Sports Mikill viðsnúningur hefur orðið til hins verra hvað varðar verð á hlutum í íþróttaverslanakeðjunni JJB Sports í dag. Eftir mikla hækkun í gær hafa hlutirnir fallið um 8% í dag að því er segir á Reuters. Viðskipti erlent 28.4.2009 16:19
Snekkjum sökkt eða þeim siglt í strand í kreppunni Leiðindasjón blasir nú víða við í höfnum Bandaríkjanna og meðfram ströndum landsins, einkum við Flórída. Það eru snekkjur sem sökkt hefur verið eða þeim siglt í strand af örvæntingarfullum eigendum sem eiga ekki lengur fyrir afborgunum eða rándýrum leguplássum. Viðskipti erlent 28.4.2009 15:18
Svínaflensan gæti minnkað hagvöxt heimsins um 5% Alþjóðabankinn telur að svínaflensan gæti minnkað hagvöxt (landsframleiðslu) heimsins um 5% ef hún verður að heimsfaraldri. Viðskipti erlent 28.4.2009 13:49
SAS flýgur inn í blóðrautt sólarlag SAS skilaði lélegu uppgjöri eftir fyrsta ársfjórðung ársins en tap flugfélagsins nam rúmlega hálfum milljarði danskra kr. eða um 11,5 milljörðum kr. Samkvæmt fregnum í norrænum fjölmiðlum í morgun er tapið nokkuð í takt við væntingar sérfræðinga. Viðskipti erlent 28.4.2009 13:19
Deutsche Bank skilar yfir 200 milljarða hagnaði Deutsche Bank, stærsti banki Þýskalands, skilaði mjög góðu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn reyndist tæplega 1,2 milljarður evra eða rúmlega 200 milljarðar kr. Á sama tímabili fyrir ári síðan var tap á rekstri bankans upp á 131 milljón evra. Viðskipti erlent 28.4.2009 10:36
Svínaflensan lokar Lego verksmiðju í Mexíkó Lego hefur gripið til aðgerða og sent 400 starfsmenn í verksmiðju sinni í Mexíkó heim til sín. Rekstur verksmiðjunnar mun liggja niðri a.m.k. fram til 4. maí n.k. Viðskipti erlent 28.4.2009 10:10
Hlutir í JJB Sports hækka um 41% eftir samninga Hlutir í íþróttavörukeðjunni JJB Sports hækkuðu um 41% á markaðinum í London eftir að tilkynnt var að keðjan hefði náð samkomulagi við leigusala sína um breytingar á húsleigu verslana keðjunnar. Kaupþing er meðal helstu lánadrottna JJB Sports. Viðskipti erlent 28.4.2009 09:04
Pontiac heyrir brátt sögunni til Bílategundin Pontiac heyrir brátt sögunni til en General Motors tilkynntu í dag að framleiðslu Pontiac yrði hætt fyrir árslok á næsta ári. Þetta þýðir að um 21.000 manns muni missa vinnuna. Viðskipti erlent 27.4.2009 14:51
Stjórar Kaupþings í Bretlandi með 3 milljarða í laun Ernst & Young stjórnendur Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hafa fengið tæpar 16 milljónir punda í laun, eða um 3 milljarða kr., á þeim sex mánuðum sem þeir hafa annast málefni bankans. Ofan á þessa upphæð leggst síðan 20% virðisaukaskattur. Viðskipti erlent 27.4.2009 11:13
Nær 140.000 danskar fjölskyldur eru tæknilega gjaldþrota Sökum þess hve fasteignaverð hefur lækkað mikið eru nær 140.000 danskar fjölskyldur nú tæknilega gjaldþrota. Þetta kemur fram á vefsíðunni dinepenge.dk. Þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa fjárfest í nýjum íbúðum/húsum þegar fasteignaverðið náði hámarki í Danmörku árin 2006 og 2007. Viðskipti erlent 27.4.2009 10:47
Óttinn við svínaflensuna veldur niðursveiflu á mörkuðum Flugfélög og félög í ferðamannaiðnaðinum víða um heim verða fyrir barðinu á óttanum við svínaflensuna. Hlutir í þessum félögum hrapa í verði á mörkuðum í dag. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:51
Leigusalar með framtíð JJB Sports í höndunum Breska íþróttavöruverslunarkeðjan JJB Sports mun fara í greiðslustöðvun í dag ef henni tekst ekki að tryggja sér samþykki 75% leigusala sinna við breytingar á húsaleigusamningum verslanna keðjunnar. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:40
Náðarstundin nálgast hjá Chrysler Chrysler-bílaverksmiðjurnar hafa nú aðeins þrjá daga til að ná samkomulagi við starfsfólk sitt og lánardrottna um hagræðingu sem nægir til að halda þeim á floti. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:19
Milljarðamæringum Bretlands fækkar Kreppan hefur gengið nokkuð á auðæfi ríkustu manna Bretlands samkvæmt árlegum lista yfir ríka þar í landi sem birt er í sunnudagsútgáfu Lundúnablaðsins Times í morgun. Viðskipti erlent 26.4.2009 10:25
Kolsvart ár í bókum Nomura Nomura Holdings, umsvifamesta fjármálafyrirtæki Japans, tapaði 709,4 milljörðum jena, jafnvirði 950 milljarða íslenskra króna, í fyrra. Hrun á fjármálamörkuðum og kaup á þrotabúi bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers í Asíu, Evrópu og Mið-Austurlöndum skömmu eftir þrot bankans í september brenndu gat í bækur fyrirtækisins. Viðskipti erlent 25.4.2009 07:00
Enn djúp kreppa í Bretlandi Breska hagkerfið dróst saman um 1,9 prósent á fyrsta fjórungi ársins, samkvæmt gögnum bresku hagstofunnar. Niðurstaðan er 0,4 prósentustigum svartari en spáð var. Til samanburðar nam samdrátturinn 1,6 prósentum á síðasta fjórðungi í fyrra. Viðskipti erlent 25.4.2009 05:00
Hafa tapað 9 milljörðum á Debenhamshlutum Reikna má með að HSBC bankinn hafi tapað um 9 milljörðum kr. á því að bíða ekki tæpan mánuð með að setja rúmlega 13% fyrrum hlut Baugs í Debenhams í sölu. Bankinn setti hlutinn í sölu síðustu mánaðarmót með verðmiðann 40-45 pens. Viðskipti erlent 24.4.2009 10:00
Chrysler hefur viku til að semja um kaup á Fiat Bandaríski bílaframleiðandinn Chrysler hefur nú eina viku til að ná samningum um kaup á ítölsku Fiat-verksmiðjunum til að styrkja stöðu sína. Bandaríkjastjórn hefur veitt frest til mánaðamóta til að ganga frá kaupunum en verði ekki af þeim er hætt við að Chrysler glati opinberum styrkjum sínum sem haldið hafa verksmiðjunum gangandi síðan í fyrra. Viðskipti erlent 24.4.2009 07:25
Bretland ekki í jafnvægi fyrr en 2032 Skuldastaða Bretlands verður ekki komin í eðlilegt horf fyrr en árið 2032, eða eftir 23 ár. Þetta segja hagfræðingar bresku hagfræðistofnunarinnar IFS. Viðskipti erlent 24.4.2009 07:22
Halli á vöruskiptum í Japan Halli var á vöruskiptum Japana í mars, sá fyrsti sem sést hefur þar í landi í 28 ár. Þrátt fyrir þetta voru vöruskipti jákvæð um ellefu milljarða jena í mánuðinum. Það jafngildir 14,6 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 24.4.2009 06:00