Viðskipti
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? Viðskiptagreining Landsvirkjunar stendur fyrir opnum fundi um raforkuöryggi í Grósku sem hefst klukkan 9. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Viðskipti innlent 21.11.2024 08:58
Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Það reyndist erfiðara fyrir Grace Achieng frá Keníu að fá gott starf við hæfi á Íslandi, en að vera uppgötvuð af Vogue fyrir íslensku fatalínuna sína, Gracelandic. Atvinnulíf 21.11.2024 07:01
„Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út á fasteignamarkaðnum. Viðskipti innlent 21.11.2024 06:29
Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Þar var ákveðið að lækka útsvarsprósentuna í 14,97 prósent og álagið afnumið. Frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins. Viðskipti innlent 20.11.2024 22:53
Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Minna magn af klementínum er flutt til landsins og gæðin eru verri vegna náttúruhamfara á Spáni. Forstöðumaður innkaupa hjá Krónunni segir eðlilegt að landsmenn furði sig á klementínuskorti, enda sé ávöxturinn partur af jólunum. Neytendur 20.11.2024 21:01
Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Tilboðið er valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Viðskipti innlent 20.11.2024 15:41
Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins er í skýjunum með vaxtaákvörðun morgunsins og segir að nú sé þjóðin að uppskera eftir aðhaldssama ríkisfjármálastefnu frá 2022. Formaður Samfylkingarinnar talar aftur á móti um skort á festu í ríkisfjármálum sem hafi bitnað á millistéttinni, vextir séu ennþá allt of háir. Viðskipti innlent 20.11.2024 14:28
Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sat sinn síðasta kynningarfund peningastefnunefndar í morgun en hún lætur af störfum þegar skipunartími hennar rennur út um áramótin. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri nýtti tækifærið við lok fundarins til að þakka Rannveigu fyrir sitt framlag en enginn hefur lengri reynslu en Rannveig af vettvangi peningastefnunefndar. Viðskipti innlent 20.11.2024 13:00
Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna. Viðskipti innlent 20.11.2024 12:03
Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu og Einar Örn Ævarsson sem framkvæmdastjóri Sólstaða ehf. Viðskipti innlent 20.11.2024 12:02
Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur farið fram á það að hagnaðardrifinn hluti Sorpu verði færður í hlutafélag. Þannig muni ólögmæt ríkisaðstoð í formi undanþágu tekjuskattskyldu falla niður. Viðskipti innlent 20.11.2024 11:51
Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 9% og niður í 8,5%. Viðskipti innlent 20.11.2024 09:02
Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Íslandsbanki ætlar að lækka óverðtryggða vexti á útlánum sínum um allt að 0,5 prósentustig í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti sína. Tilkynning Íslandsbanka var send út innan við stundarfjórðungi eftir að ákvörðun Seðlabankans var kynnt. Viðskipti innlent 20.11.2024 08:53
Stýrivextir halda áfram að lækka Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu. Viðskipti innlent 20.11.2024 08:31
Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska,“ segir Athena Neve Leex, stjórnarkona í UAK, félagi Ungra athafnakvenna, í samtali um mikilvægi fjölmenningar og inngildingar en í byrjun þessa mánaðar stóð félagið fyrir viðburði þessu máli tengt. Atvinnulíf 20.11.2024 07:01
Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Útboð Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) á myndgreiningarþjónustu hefur verið stöðvað. Verulegar líkur hafa verið leiddar að brotum gegn lögum um opinber innkaup með útboðinu. Viðskipti innlent 19.11.2024 23:48
Samtökin '78 selja slotið Samtökin '78 hafa sett bækistöðvar sínar að Suðurgötu 3 á sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Viðskipti innlent 19.11.2024 15:58
Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Algjör skortur á vinsælli grískri sósu á Bretlandseyjum er orðið að umfjöllunarefni stærstu fjölmiðla þar í landi. Skortinn er talinn mega rekja til verkfalls starfsfólks í einni af verksmiðjum Bakkavarar í bænum Spalding. Viðskipti erlent 19.11.2024 14:15
Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Gluggarnir frá BYKO hafa verið leiðandi á markaði í 33 ár og hefur BYKO komið að mörgum stórum og flóknum verkefnum um allt land. Gluggarnir eru framleiddir til að þola íslenskt veðurfar auk þess að vera á mjög hagstæðu verði. Fyrir vikið standast þeir helstu kröfur HMS og byggingarreglugerðir ásamt kröfum viðskiptavinar um góða þjónustu og trausta vöru. Framleiðsla þeirra hófst hér á landi en hefur frá árinu 2002 að mestu leyti farið fram í gluggaverksmiðju BYKO í Lettlandi. Samstarf 19.11.2024 13:05
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49
Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Þeir sem selt hafa hús sín í Grindavík til Þórkötlu geta frá og með deginum í dag gert samning um afnot af húsinu, gegn greiðslu. Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning sem byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík og snýr að umhirðu, viðhaldi og eftirliti með húsunum. Viðskipti innlent 19.11.2024 11:50
Flóðin á Spáni hafa áhrif á jólahefð Íslendinga Vegna hamfaraflóðanna í Valensía á Spáni í október kemur miklu minna af klementínum til landsins fyrir jólin. Fyrsti klementínugámurinn frá spænska framleiðandanum Robin kemur til landsins á mánudaginn en landsmenn eiga aðeins von á fjórðungi þess magns sem vanalega kemur. Neytendur 19.11.2024 11:50
Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Úrval á bókum í verslunum Samkaupa (Nettó, Kjörbúðum og völdum Krambúðum utan höfuðborgarsvæðisins) verður meira en nokkru sinni fyrr í aðdraganda jóla. Viðskipti innlent 19.11.2024 10:42
Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Stólpi Gámar hefur ráðið Rúnar Höskuldsson sem nýjan framkvæmdastjóra sölusviðs fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19.11.2024 10:05
Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Starfshópur um stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi mun halda kynningu á niðurstöðum sínum í dag klukkan 10:40. Viðskipti innlent 19.11.2024 10:01
Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Samorka stendur fyrir kosningafundi í Kaldalóni í Hörpu í dag undir yfirskriftinni Grænt Ísland til framtíðar: Hver er leiðin áfram? Fundurinn hefst klukkan 9 og verður í beinu streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 19.11.2024 08:32
Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið Óheppinn viðskiptavinur Nettós var rukkaður um 542 þúsund krónur fyrir 380 grömm af hreindýrakjöti á sjálfsafgreiðslukassa. Að sögn forsvarsmanna Nettó má rekja þetta til þess að rétt strikamerki hafi dottið af vörunni og erlent strikamerki skannað þess í stað. Neytendur 19.11.2024 07:00
Sektuð vegna fullyrðinga um aukinn hárvöxt og minni hrukkur Félagið X20 Lausnir ehf. hefur verið gert að greiða hundrað þúsund króna stjórnvaldssekt vegna fullyrðinga sem birtust á vefsíðunni lifsbylgja.is. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að umræddar fullyrðingar teldust undir öllum kringumstæðum óréttmætar, en þær vörðuðu vörur undir merkinu Lifewave. Neytendur 18.11.2024 16:38
EasyJet lengir flugtímabil frá London til Akureyrar Breska flugfélagið easyJet tilkynnti í dag að það muni bæta við flugferðum frá London Gatwick til Akureyrar í apríl 2025, og í október 2025. Áður stóð til að fljúga út mars á næsta ári, og hefja flugin að nýju í nóvember. Flugfélagið verður því mánuði lengur með flug í boði þennan vetur og að auki næsta haust. Neytendur 18.11.2024 15:54
Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Fimmtíu manns hefur verið sagt upp hjá Controlant og hefur Trausti Þórmundsson verið ráðinn forstjóri félagsins. Félagið verður því með tvo forstjóri en Trausti mun stýra félaginu ásamt Gísla Herjólfssyni, forstjóra og meðstofnanda. Viðskipti innlent 18.11.2024 13:34