Vilja umhverfismat mun fyrr 28. júlí 2006 05:00 Þeistareykir Þingflokkur Vinstri grænna mótmælir stórfelldu jarðraski á viðkvæmum landsvæðum vegna rannsóknarborana án þess að næg umræða hafi farið fram um áhrif þeirra.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála í rannsóknar- og nýtingarleyfum til virkjana í vatnsafli og jarðvarma. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flokknum sem blaðinu barst í gær. Svandís Svavarsdóttir, sem skrifar undir yfirlýsinguna sem framkvæmdastjóri flokksins, segir að mönnum bregði í brún þegar stórfellt jarðrask sé hafið á viðkvæmum landsvæðum án þess að næg umræða hafi farið fram um áhrif rannsóknaborana. Hún segir flokkinn vilja að mat á umhverfisáhrifum hefjist fyrr en nú sé áskilið, þannig að allt ferlið verði matsskylt, líka rannsóknarstigið. Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um rannsóknarboranir Landsvirkjunar í Suður-Þingeyjarsýslu. Bjarni Pálsson, verkfræðingur Landsvirkjunar, segir jarðrask af völdum könnunarborana við Þeistareyki nánast ekkert og reynt sé eftir fremsta megni að afmá ummerki um rannsóknarboranir þegar svæðið sé yfirgefið. Bjarni segir svæðið á Þeistareykjum ekki hafa verið matsskylt, en á boranasvæðinu við Kröflu hafi farið fram ítarlegt umhverfismat áður en rannsóknarboranir hófust.
Innlent Mest lesið Foreldrar barna á Brákarborg langþreyttir á fáliðun og reglulegum lokunum Innlent Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Erlent Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Erlent Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Erlent Vilja rektor sem afþakkar „illa fengið fé“ Innlent „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Innlent „Þetta er mjög slæmt fyrir samfélagið í heild sinni“ Innlent Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Innlent Tilkynningum um barnaníð fjölgaði verulega Innlent Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir „Þetta er mjög slæmt fyrir samfélagið í heild sinni“ „Þetta skilgreinir þorpið“ Stefnir allt í verkfall slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna Viðvarandi glitský yfir höfuðstað Norðurlands Þrjátíu ár liðin frá harmleiknum í Súðavík Vilja rektor sem afþakkar „illa fengið fé“ Reikna með 8,4 milljónum farþega Tilkynningum um barnaníð fjölgaði verulega Varað við ísingu með umskiptum í veðri Almennir starfsmenn geti verið leið inn fyrir tölvuþrjóta Foreldrar barna á Brákarborg langþreyttir á fáliðun og reglulegum lokunum Þrjátíu ár liðin frá snjóflóðunum á Súðavík Ráðherra segir dóm um Hvammsvirkjun áhyggjuefni „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Stjórnsýslan í kringum sjókvíaeldi sé gölluð Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Ákærður fyrir að drepa móður sína Vopnahlé á Gaza, brúin sem klúðraðist og tvöfaldar greiðslur Nýskipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu Brýnt að endurskoða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Brottvísuninni frestað fram yfir aðgerð Auglýsa skipulag fyrir 180 íbúðir á Árstúnshöfða Dómurinn valdi vonbrigðum og hafi neikvæðar afleiðingar Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ógilt Kjörnir fulltrúar þurfi að huga að ímynd sinni Lítil virkni frá hrinunni Handritin öll komin á nýja heimilið Sjá meira