Tvær bækur hafa fundist við uppgröft á Skriðuklaustri í Fljótsdal. Er þetta í fyrsta skipti sem vitað er til að bækur hafi fundist við fornleifauppgröft hérlendis en bækurnar fundust ásamt beinum tveggja manna.
"Þetta er mjög merkilegur fundur. Við teljum að þarna séu á ferðinni sálmabækur og mögulegt að þetta séu bækur sem Jón Arason lét gera fyrir siðaskipti og voru prentaðar á Hólum," segir Steinunn Kristjánsdóttir, sem stjórnar uppgreftrinum.
Bækurnar, sem fundust í tveimur gröfum, lágu ofan á brjóstkassa beinagrindanna og héldu þær um bækurnar. Forvörður er nú að vinna með bækurnar en þeim verður síðan komið í vörslu Þjóðminjasafnsins þar sem þær verða rannsakaðar frekar.
Þetta er fimmta sumarið sem grafið er í rústum klaustursins sem var starfrækt í Fljótsdal á miðöldum. Um þúsund gripir hafa fundist í uppgreftrinum nú í sumar, en þar á meðal eru kirkjulykill, saumnálar og fingurbjargir.