Þrír karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna gríðarlega umfangsmikils fíkniefnamáls sem talið er teygja anga sína víða um lönd. Lögreglan verst fregna af því hvaða lönd rannsóknin varðar á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Fyrsti maðurinn var handtekinn eftir að hraðsending sem reyndist innihalda nokkur kíló af hörðum fíkniefnum hafði borist hingað til lands.
Hann var handtekinn 22. maí og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. júní. Gæsluvarðhald var síðan framlengt til 12. júní vegna rannsóknarhagsmuna.
Tveir karlmenn til viðbótar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. júní, grunaðir um aðild að skipulagningu á innflutningi á fíkniefnum til landsins auk peningaþvættis. Þeir eru Ársæll Snorrason, sem er á fimmtugsaldri, og Sigurður Ólason sem er á sextugsaldri. Ársæll var raunar handtekinn í fangelsinu á Litla-Hrauni, þar sem hann afplánar nú fimm ára dóm vegna BMW-málsins svokallaða. Í því máli var reynt að smygla til landsins fimmtán kílóum af amfetamíni og tíu af hassi í bensíntanki BMW-bíls árið 2006. Ársæll hafði áður verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Hollandi fyrir fíkniefnabrot.
Þriðji maðurinn sem situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins er Sigurður Ólason. Hann var fyrir nokkrum árum dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir aðild sína að smygli á þrjátíu kílóum af hassi.
Fjórði maður var einnig handtekinn í aðgerðum lögreglunnar en honum var sleppt að skýrslutöku lokinni.
Hvað þá þrjá menn varðar, sem sitja í gæsluvarðhaldi nú, rannsakar lögregla meðal annars hvort tengsl séu milli þeirra og alþjóðlegs glæpahrings, sem meðal annars hefur staðið fyrir fíkniefnasmygli og öðrum umfangsmiklum afbrotum.
Í aðgerð lögreglu í fyrradag voru fimm menn handteknir og ellefu húsleitir gerðar. Rannsókn lögreglu er liður í rannsókn fleiri landa og unnin í samvinnu við tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol. Hér á landi hafa lögregluembættin á Suðurnesjum og tollyfirvöld komið að málinu.
Þór Þorl.
Valur