Fótbolti

Mourinho: Ég mun þjálfa Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Portúgalski þjálfarinn José Mourinho heldur áfram að halda forráðamönnum Inter á tánum en hann hefur nú sagt að hann muni þjálfa Real Madrid fyrr frekar en síðar.

Það hefur verið talað um það í nánast allan vetur að Mourinho muni taka við spænska liðinu og þessi ummæli draga ekki úr sögunum.

„Það sem er skrifað að ég sé með einn fótinn í Madrid og hinn í Mílanó er rangt. Fyrr frekar en síðar mun ég þjálfa Real Madrid. Ég þjálfaði stórt lið á Englandi, er að þjálfa stórt lið á Ítalíu og síðan mun ég þjálfa stórt lið á Spáni.

„Ég hef unnið allt í þeim þremur löndum sem ég hef þjálfað í og þarf ekkert að sanna. Ég hlæ samt alltaf þegar forsetar einhverra félaga bera mig saman við þeirra þjálfara sem hafa kannski aldrei unnið neitt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×