Fótbolti

Sinisa Mihajlovic dreymir um Inter

Elvar Geir Magnússon skrifar

Sinisa Mihajlovic, þjálfari Catania, viðurkennir að hann eigi sér þann draum að taka við Inter. Líklegt er talið að Jose Mourinho haldi annað eftir tímabilið.

Mihajlovic hefur gert frábæra hluti með smáliðið Catania síðan hann tók við liðinu í byrjun árs. „Ég á enn ár eftir af samningi mínum og hugmyndin er að vera hér áfram þó stórlið sýni áhuga," segir Serbinn.

„Mitt markmið er að koma liðinu í Evrópukeppni. Í framtíðinni vil ég stýra Inter til meistaratitilsins. Ég veit ekki hvenær en ég mun grípa tækifærið um leið og það gefst." Mihajlovic segist einnig eiga sér þann draum að þjálfa Rauðu Stjörnuna og landslið Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×