Fótbolti

Beckham heilsaði upp á félaga sína hjá Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham er hann meiddist.
Beckham er hann meiddist.

David Beckham mætti mjög óvænt á æfingu hjá AC Milan í dag en hann mætti þangað til þess að hvetja fyrrum félaga sína til dáða fyrir lokaleik liðsins gegn Juventus.

Beckham er eins og kunnugt er meiddur og hefur ekki spilað fótbolta í tvo mánuði.

Hann heilsaði öllum leikmönnunum fyrir æfingu og fylgdist síðan með henni úr stúkunni. Eftir æfingu fór hann síðan inn í klefa með leikmönnum og spjallað betur við vini sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×