Skoðun

Er RÚV dottið úr sambandi?

Ég hef alltaf haldið að fyrirtækjum væri í mun að það sem þau hefðu fram að færa félli fólki í geð. Það virðist sem hjá RÚV sé þessu öfugt farið. Ekki var ég fyrr búin að jafna mig á því að Spaugstofan skyldi vera strokuð út en hafði þó á því ákveðinn skilning vegna of mikils kostnaðar. Dynur þá ekki yfir að þau ætla að skrúfa fyrir einn vinsælasta þáttinn á Rás 1 sem verið hefur um langa hríð. „Orð skulu standa" hafa unnið sér þann sess að fágætt er og hafa stjórnendur gert hann með óvenjulegum ágætum.

Og ekki aðeins þáttinn, heldur settu þau á markað spil sem heitir „Kollgátan" og seldist það upp á skömmum tíma. Ég var svo heppin á fá þetta spil í jólagjöf og síðan þá hefur það verið í stöðugu láni til ungra jafnt sem aldinna, og spilað í öllum sumarbústaðaferðum og fjölskyldumótum hvers konar.

Allt þetta sýnir hve vel tókst með „Orð skulu standa". Það efldi umræðu, vitund og áhuga á málinu okkar svo um munaði.

Því er þessi ráðagerð þeirra á RÚV óskiljanleg ... nema þeim sé illa við að fólk hlusti á útvarpið.

Annar þáttur er Andrarímur á sunnudagskvöldum sem margir sakna mjög. Og ef þið dirfist að segja að þetta sé nú bara gömul kerling að tuða þá er það út af fyrir sig rétt, en ekki flögrar að mér að biðja forláts á því nema síður sé og vitið þið hvað? Ég er meira að segja líka með kosningarétt. Pælið í því!

En nú vil ég gjarnan vera dálítið hjálpleg og legg hér fram sparnaðartillögur sem mætti íhuga áður en vandaðir þættir sem höfða til fólks á öllum aldri eru slegnir af:

Á Rás 2 eru oftlega þættir þar sem tveir ungir menn eru óþreytandi við að gaspra hvor upp í annan, flissandi að eigin aulabröndurum. Getur svona þáttur staðið í tvo eða þrjá tíma. Hvað kostar það? Í sjónvarpi horfa margir á boltann og ekki skal amast við því en er nauðsynlegt að safna saman mörgum mönnum til að „fjalla" um leikina og hvað kostar það?

Útlistanir þeirra eru eflaust mjög djúpvitrar, ég efa það ekki. Eru þetta aðeins tvö dæmi af ýmsum sem gætu hugsanlega sparað stofnuninni töluvert fé. Einnig mætti íhuga sjónvarpslaust kvöld einu sinni í viku eins og tíðkaðist um árabil því betra er að hafa enga dagskrá en lélega.

Ekki dettur mér í hug að minnast á dýra jeppa eða há laun, sei sei nei, en er kannski hægt að ætlast til að ráðsfólk á RÚV stingi sér í samband og skoði hverjum þau eiga að þjóna?






Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×