Skoðun

Grundvallarreglur þjóðar eða stjórnarskrá lýðveldisins

Hvaða grundvallarreglur eiga að gilda um íslenskt samfélag, land þess, loft og mið? Á hvaða grunni eiga öll lög, reglur og samskipti þjóðarinnar að hvíla?

Á komandi vikum og mánuðum verður mikið um þetta fjallað því kosið verður til STJÓRN-lagaþings, sem á að skila tillögum um nýja STJÓRNAR-skrá er verður svo lögð í dóm þjóðarinnar eftir umfjöllun og afgreiðslu Alþingis.

Fyrir utan STJÓRNAR-ráðið er stytta af Kristjáni KONUNGI hinum níunda með útrétta hægri hönd sína og í henni er STJÓRNAR-skrá, sem sett var af honum einum árið 1874.

Þessa STJÓRNAR-skrá (með síðari breytingum) ætlum við nú að taka til gagngerrar endurskoðunar, vonandi með auknu tilliti til mannréttinda, atvinnufrelsis og lýðræðis.

Látum það verða okkar fyrsta verk í þessari vinnu að skipta um heiti á grundvallarreglunum, til þess að auka meðvitund okkar um hið helga markmið og tilgang breytinganna.

Það fyrirkomulag sem við ætlum að hafa fyrir grunn laga okkar ætti ekki að bera núverandi heiti heldur miklu frekar „Grundvallarreglur íslensku þjóðarinnar" enda gefur það frekar til kynna að reglurnar eru sóttar til samkomulags meðal þegnanna. Athugum það að þetta orð STJÓRNAR-skrá er mjög gildishlaðið og ber það alls ekki í sér þá hugsun að valdið komi frá þjóðinni heldur miklu fremur frá gamla kónginum, ráðherrum, stjórnarráðum og öðrum valdhöfum.

Því viljum við breyta.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×