Fótbolti

Joaquin orðaður við Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Joaquin fagnar hér með David Silva.
Joaquin fagnar hér með David Silva.

Umboðsmaður spænska vængmannsins Joqauin segir að leikmaðurinn sé spenntur fyrir því að færa sig yfir til Juventus á Ítalíu en hann spilar með Valencia sem stendur.

Umboðsmaðurinn segir að það hafi fleiri félög áhuga á leikmanninum sem hefur verið að spila vel í vetur.

Fjárhagsvandræði Valencia gætu aftur á móti gert það að verkum að félagið neyðist til þess að selja sína bestu leikmenn sem margir hverjir vilja hreinlega fara frá félaginu vegna vandræðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×