Fótbolti

Inzaghi vill vera áfram hjá Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Inzaghi er hér með Kaká í fyrra.
Inzaghi er hér með Kaká í fyrra.

Framherjinn Filippo Inzaghi er bjartsýnn á að fá nýjan samning hjá AC Milan en hann vill hvergi annars staðar spila en þar.

Samningur Inzaghi rennur út í sumar og hann hefur meðal annars verið orðaður við Parma.

„Það er ekki enn komið að því að leggja skóna á hilluna. Ég vil enn slá einhver met og ég vil gera það í treyju Milan fyrir framan fólkið sem hefur alltaf elskað mig," sagði Inzaghi.

Hann er einn af þeim sem mun ekki sakna Leonardo verði hann rekinn sem þjálfari eins og fastlega er búist við. Inzaghi hefur enda fengið lítið að spila hjá honum.

„Það sem er mikilvægast er að forsetinn verði hér áfram. Árangur félagsins er að mörgu leyti honum að þakka."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×