Fótbolti

AC Milan fær Robinho

Elvar Geir Magnússon skrifar

Brasilíumaðurinn Robinho verður í dag orðinn leikmaður AC Milan. Hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í morgun og er á leið til ítalska stórliðsins frá Manchester City.

Robinho sagði við ítalska fjölmiðla að hann væri hæstánægður með að vera á leið til AC Milan og stefnan væri einföld: Vinna meistaratitilinn með liðinu.

Robinho hefur ekki fundið sig á Englandi og var lánaður á síðasta tímabili til Santos í heimalandi hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×