Skoðun

Og Sannmælinn hlýtur...

Guðni Már Harðarson. skrifar

Suma hluti látum við ekki bjóða okkur. Ef barnið þitt væri að keppa í 100 metra hlaupi og þú kæmist að því að barnið, ásamt helmingi keppenda, hefði verið látið byrja hlaupið 7 metrum fyrir aftan ráslínuna myndir þú vitanlega reiðast. Þú myndir krefjast þess að hlaupið yrði endurtekið þar sem helmingur keppenda naut ekki sannmælis.

Fáum stæði jafnframt á sama ef þau fyndu út að vísvitandi væri búið að rífa úr 14 af 200 blaðsíðum í kennslubók hjá börnum þeirra.

Ekkert okkar myndi heldur svara því til í skoðanakönnun að okkur þætti ásættanlegt að öll börn í O-blóðflokki (sem um helmingur þjóðarinnar tilheyrir) þyrftu í framtíðinni, blóðflokksins vegna, að sætta sig við 7% lægri laun fyrir sömu störf en börn í öðrum blóðflokkum.

Það stafar óréttlæti af þessum dæmum. Blóðflokkabundinn launamunur væri fáránleg hugmynd, óhugsandi della. Engu að síður búum við við þá staðreynd að rannsóknir staðfesta kynbundinn launamun á Íslandi.

Hagstofan gerði rannsókn á launum 185 þúsund einstaklinga á almennum vinnumarkaði á árunum 2000-2007 sem leiddi í ljós 7.3% óútskýrðan launamun á milli kynjanna. Í árlegri launakönnun VR var niðurstaðan fyrir árið 2009 að „með 95% vissu megi segja að meðal fólks á svipuðum aldri, með sama starfsaldur, í sömu starfsstétt, með sambærilegan vinnutíma og sambærilega menntun séu konur með á bilinu 8,5% til 11,7% lægri heildarlaun en karlar.“

Athugum að hér er búið að taka út þætti eins og meiri yfirvinnu karla í ákveðnum starfsstéttum, möguleg áhrif menntunar eða aðrar eðlilegar skýringar. Eftir stendur sú fáránlega staðreynd, óhugsandi della, að konur gjalda fyrir kyn sitt þegar kemur að útborguðum launum.

Kynbundinn launamun getum við ekki látið bjóða okkur. Mætti gæðavotta eða verðlauna fyrirtæki sem tryggja að allir njóti sannmælis í launum, óháð blóðflokkum, kyni eða háralit? Veita slíkum vinnustöðum Sannmælinn - tákn um að þar sé tryggt að þar njóti allir sannmælis í launum? Það væru góð skilaboð til barnanna minna að velja að versla við þannig fyrirtæki.







+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.






Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×