Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar 23. október 2026 07:02 Í framhaldsnámi mínu í afbrotafræði við bandarískan háskóla tók ég refsirétt við lagadeild skólans. Í einu námskeiðanna tókum við fyrir mál sem rifjaðist upp fyrir mér í kjölfar nýlegs sýknudóms í Landsrétti. Málið gekk undir heitinu Regina vs Morgan dæmt 1975 við breskan dómstól. Kynferðisbrotamálið Fjórir félagar fóru út á lífið þar sem áfengi var haft um hönd. Eftir lokun barsins vildu þeir halda gleðskapnum áfram. Einn þeirra (yfirmaður í hernum) sagði að kona sín væri til í fjörugt kynlíf (e. kinky) og bauð mönnunum (undirmenn hans) heim til sín. Rétt áður en þeir stigu inn sagði karlinn að ekki láta sér bregða þó konan sýndi mótspyrnu – bara til að auka spenninginn. Karlinn neitaði reyndar síðar að hafa viðhaft þessi ummæli en vitnisburður félaga hans metinn trúverðugur. Konan vaknaði upp með andfælum sýndi mótspyrnu en allir karlarnir náðu fram vilja sínum með aðstoð eiginmannsins. Undirréttur dæmdi þremenningana seka um nauðgun og eiginmanninn fyrir hlutdeild í brotinu. Við áfrýjun taldi meirihluti æðra dómstigs lagalegan grundvöll fyrir sýknu án þess þó að breyta niðurstöðu undirréttar. Hvers vegna sýkna? Einlæg trú geranda á samþykki (huglægt mat) House of Lords taldi að þremenningarnir hefðu í einlægni trúað á samþykki konunnar og þess vegna ekki sýnt refsiverðan ásetning (mens rea) til að fremja nauðgunina. Ekki unnt á þessum tíma að dæma eiginmann fyrir nauðgun á eiginkonu sinni. Fram kom í reifun málsins að hjónin stóðu í skilnaði en það virtist ekki hafa áhrif á dómsniðurstöðu. Málið vakti mikla athygli og gagnrýni á sínum tíma. Varð kennslubókardæmi við lagadeildir víða um heim. Sýkna samkvæmt refsilöggjöfinni. Skynsamt mat geranda á samþykki (hlutlægt mat) Í framhaldi var vakin athygli á því að gera þurfi greinarmun á tvenns konar samþykki. Annars vegar einlægri trú geranda á samþykki þolandans (e. honest belief in consent) jafnvel þótt það mat væri ekki skynsamlegt. Meirihluti House of Lords taldi löggjöfina byggja á þessum skilningi á samþykki. Aftur á móti var bent á að samþykki þolanda þyrfti að byggja á skynsömu mati á aðstæðum (e. reasonable belief in consent) eins og það lítur út fyrir þriðja óháðum aðila. Ef stuðst hefði verið við þennan skilning á samþykki hefði túlkun meirihluta House of Lords á sýknu því væntanlega orðið önnur. Í dag þarf samþykki þolanda að vera byggt á skynsömu mati í Bretlandi. Landsréttur Landsréttur sýknaði nýlega í nauðgunarmáli þar sem beitt var mjög grófu ofbeldi. Spurningin sem vaknar er hvort einlæg trú geranda á samþykki þolanda hafi verið grundvöllur sýknunnar – þótt sú niðurstaða hafi ekki verið byggð á skynsömu mati á aðstæðum? Höfundur er prófessor í félags- og afbrotafræði við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dómsmál Kynbundið ofbeldi Bandaríkin Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun