Ísland aldrei sokkið neðar á FIFA-listanum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. apríl 2012 10:15 Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari. Mynd/Vilhelm
Íslenska knattspyrnulandsliðið er í 131. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland féll um tíu sæti frá síðasta lista. Ísland hefur aldrei verið neðar á listanum. Gamla metið var 122. sæti en landsliðið var þar í júní í fyrra. Styrkleikalisti FIFA hefur verið tekinn saman síðan í ágúst 1993. Liðið hefur ekkert spilað frá því að síðasti listi var gefinn út en stig eru reiknuð út frá árangri liðsins í landsleikjum síðustu fjögurra ára. Sigurleikir gegn Slóvakíu og Færeyjum í mars 2008 eru því dottnir út og skýrir það fallið að þessu sinni. Lars Lagerbäck tók við landsliðinu um áramótin og hefur liðið spilað tvo leiki undir hans stjórn - gegn Japan og Svartfjallalandi í febrúar síðastliðnum. Báðir þeir leikir töpuðust. Næstu leikir verða vináttulandsleikir gegn Svíþjóð og Frakklandi í lok maí. Spánn er í efsta sæti listans eins og áður en Holland féll niður í fjórða sætið. Þýskaland er í öðru sæti og Úrúgvæ í því þriðja. Sjá listann í heild sinni á heimasíðu FIFA.
Fótbolti Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Fleiri fréttir Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Sjá meira