Fótbolti

Leikur Elíasar færður vegna mót­mæla

Andri Broddason skrifar
Elías Rafn Ólafsson er búinn að vera fjarverandi í síðustu leikjum hjá Midtjylland vegna meiðsla
Elías Rafn Ólafsson er búinn að vera fjarverandi í síðustu leikjum hjá Midtjylland vegna meiðsla Getty/Archivio Massimo

Búið er að færa leik Midtjylland í Sambandsdeild Evrópu þar sem liðið mætir albanska liðinu Egnatia. Miklar óeirðir eru í Tirana, höfuðborg landsins, þar sem leikurinn átti að fara fram og verður því leikurinn spilaður í Elbasan.

Elías Rafn Ólafsson er leikmaður Midtjylland og lendir því í þessum óvanalegu breytingum. Í höfuðborg Albaníu eru miklar óeirðir þar sem albanskir nemar eru að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda í landinu.

Midtjylland þurfti að hætta æfingu í gærkvöldi vegna táragass sem fór yfir leikvanginn. Heimaliðið Egnatia náði ekkert að æfa í gær. UEFA tók ákvörðunina með að færa leikinn eftir samtal við sveitarstjórn í Albaníu.

Þetta er vont fyrir danska stuðningsmenn liðsins sem hafa gert sér ferð til Albaníu en það tekur um eina og hálfa klukkustund að ferðast frá Tíran til Elbasan með rútu. Midtjylland ætlar þó að hjálpa þeim stuðningsmönnum sem hafa keypt miða á leikinn að ferðast milli borganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×