Lars Lagerbäck: Við spiluðum ekki illa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2012 20:43 Lars Lagerbäck. Mynd/Vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta endaði landsleikjaárið með því að vinna 2-0 sigur á Andorra í vináttulandsleik í kvöld. Liðið vann fjóra af tíu leikjum sínum á árinu. „Það var mikilvægt að við unnum leikinn og þetta var ágætis leikur. Við spiluðum ekki illa og stjórnuðum leiknum vel. Þeir fengu engin alvöru marktæki færi þannig að þetta var allt í lagi leikur," sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck eftir sigurinn í Andorra í kvöld. „Það var gott fyrir leikmenn sem hafa ekki verið að spila mikið með félögum sínum að fá að heilan leik og ég get þá nefnt menn eins og Sölva Geir Ottesen og Birki Bjarnason. Þeir ættu að njóta góðs af því að hafa klárað 90 mínútur í kvöld," sagði Lagerbäck en Sölvi hefur verið mikið á bekknum hjá FC Kaupmannahöfn alveg eins og Birkir hjá Pescara á Ítalíu. „Við áttum góð færi í leiknum sem við nýttum ekki og ef annaðhvort liðið átti að skora fleiri mörk í þessum leik þá vorum það við. Ég get verið örlítið vonsvikinn með að við vorum ekki skilvirkari í sóknarleiknum. Við stjórnuðum hinsvegar leiknum vel og liðið hélt einbeitingunni allan tímann. Þeir vörðust með níu mönnum þannig að það var erfitt að brjóta þá á bak aftur," sagði Lars. „Ég er nokkuð sáttur með árið fyrir utan þessi stig sem ég vildi fá til viðbótar í undankeppninni. Að öðru leyti var þetta gott ár fyrir íslenska landsliðið," sagði Lars.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið María kom sænsku meisturunum í bobba en þær björguðu sér Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Diljá þurfti aðeins þrjár mínútur til að leggja upp mark Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Sjá meira