Skoðun

Af hverju er MORFÍs ekki sjónvarpað?

Jórunn Þorsteinsdóttir skrifar
Fyrir ári vissi ég ekkert hvað MORFÍs var og í raun og veru var mér alveg sama. Ég vissi að grunnskólinn minn tæki þátt í einhverju MORGRON dóti en mér fannst það ekki skipta jafn miklu máli og þegar hann keppti við Hagaskóla í rökræðukeppni á hinum fræga Való-Hagó degi. Þegar ég var í 10. bekk ákvað ég að prufa mig áfram í þessu ræðustússi, komst í ræðuliðið og áttaði mig á hversu geðveikt það er að vera í Málfundafélagi og ræðuliði! Með þessum áhuga fór ég að horfa á nokkrar MORFÍs-keppnir á síðu sem heitir XTV og áhuginn varð meiri og meiri. Ég fór á úrslit MORFÍs í vor. Það var geðveikt að sjá skólana keppa um þennan mikla titil í Eldborg í Hörpunni og stemningin í stuðningsmönnunum var mögnuð. MORFÍs er frábær leið fyrir framhaldsskólanema að koma sér á framfæri og góður vettvangur til þess að vekja almenning til umhugsunar um ýmis málefni. Þið eruð eflaust að hugsa „Ókei, ég skil alveg að hún vilji að þessu sé sjónvarpað en er ekki alveg nóg að geta horft á þetta í tölvunni eða?" En nei, í ár eru breyttir tímar. XTV er ekki lengur til staðar og þess vegna er eina leiðin til að horfa á keppnina að kaupa sér miða og mæta á staðinn. Til þess þarf maður annað hvort að vera í skólanum sem er að keppa eða með virkilega ástríðu fyrir ræðumennsku. En hvað með fólkið sem væri alveg til í að horfa á keppnina, finnst þetta snilld en er kannski ekki tilbúið til að keyra út á landsbyggð til að sjá næstu viðureign? Og hvað með fólkið sem nennir bara ekki út, vill bara hafa kósýkvöld með kókosbollum og stilla á Verzló–MR?

Það er auðvitað fáránlegt að aðeins tveimur af þremur stærstu framhaldsskólakeppnum á Íslandi sé sjónvarpað. Gettu betur og Söngvakeppni framhaldsskólanna eru auðvitað snilldarkeppnir en MORFÍs er það líka! Ég las á morfis.is að upphaf tíunda áratugarins hafi jafnan verið nefnt gullaldarár MORFÍs en þá naut keppnin gífurlegrar athygli almennings og má sem dæmi nefna að þegar keppt var til úrslita í MORFÍs var reglulega skipt þangað úr ástsælasta sjónvarpsþætti landans til langs tíma: „Á tali hjá Hemma Gunn." Liðsmenn þeirra liða sem langt náðu í keppninni voru landsfrægir og birtust m.a. í auglýsingum og sjónvarpsviðtölum. Já, gullaldarár MORFÍs voru þegar það var sýnt í sjónvarpinu.

Ímyndið ykkur Ísland þar sem allir vita hvað MORFÍs er. Þar sem allir bíða spenntir eftir næstu viðureign. Þar sem allar þrjár stærstu keppnir framhaldsskólanna fái sjónvarpsáhorf, en ekki bara tvær. Ímyndið ykkur Ísland þar sem allir vita hverjir MORFÍs-keppendurnir eru.

Ég veit ekki með ykkur, en það er land sem ég vil búa á.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×