Lagerbäck með sama byrjunarlið þriðja leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2013 16:56 Eiður Smári Guðjohnsen er í byjunarliðinu þriðja leikinn í röð. Mynd/Daníel
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir leikinn á móti Noregi sem hefst á Ullevaal-leikvanginum í Ósló klukkan 18.00. Lagerbäck teflir fram sama byrjunarliði og í sigurleikjunum á móti Kýpur og Albaníu. Alfreð Finnbogason, markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar, þarf því að sætta sig við það að byrja enn einu sinni á bekknum en fékk síðustu 24 mínúturnar á móti Kýpur á föstudaginn. Alfreð skoraði eftir að hafa komið inn á sem varamaður í fyrri leiknum á móti Norðmönnum. Eiður Smári Guðjohnsen hafði aldrei verið í byrjunarliðinu hjá Lars Lagerbäck í keppnisleik þegar hann kom inn í byrjunarliðið fyrir Albaníuleikinn en markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi heldur nú sæti sínu þriðja leikinn í röð. Íslenska landsliðið er í öðru sæti riðilsins og tryggir sér með sigri sæti í umspili um laus sæti á HM í Brasilíu 2014. Íslensku strákarnir hafa náð í sjö stig út úr síðustu þremur leikjum sínum og eru á frábæru skriði eftir tvo sigurleiki í röð.Byrjunarlið Íslands á móti Noregi í kvöld:Markvörður: Hannes Þór HalldórssonHægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson Miðverðir: Kári Árnason og Ragnar SigurðssonVinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason Hægri kantmaður Jóhann Berg GuðmundssonMiðjumenn: Aron Einar Gunnarsson (fyrirliði) og Gylfi Þór SigurðssonVinstri kantmaður: Birkir BjarnasonFramherjar: Eiður Smári Guðjohnsen Kolbeinn Sigþórsson
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Martínez hættur með portúgalska landsliðið Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Kaupa George frá Chelsea FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ „Dómararnir á HM eru ekki nógu góðir“ Romário segir frammistöðu Brasilíu sorglega Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Hetjurnar frá 1998 telja að Noregur geti orðið heimsmeistari Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Til Tottenham fyrir sautján milljarða Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fimmti stjóri Forest á einu ári Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Skera niður hjá stelpunum Frækinn sigur Englendinga á Azteca Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Sjá meira