Innlent

Mjólkureftirlitsmaðurinn sagður skaða orðstír Bernharðs bónda

Jakob Bjarnar skrifar
Gísli Tryggvason er nú orðinn talsmaður Sigga og Odds Andra í Hörgárdal.
Gísli Tryggvason er nú orðinn talsmaður Sigga og Odds Andra í Hörgárdal.

Parið Sigurður Hrafn Sigurðsson og Oddur Andri Thomasson Ahrens, eða þeir Siggi og Oddur Andri í Hörgárdal, vilja fá að njóta friðar að sínu heimili að Hörgártúni. Þeir vilja ekki beita sér að sinni í nýrri vendingu í deilumálum þeirra sem snýr að Kristjáni Gunnarssyni fyrrverandi mjólkureftirlitsmanni. Þeir segja að það sé á ábyrgð Kristjáns ef orðstír bænda að Auðbrekku 1 sem mjólkurframleiðendur hefur beðið hnekki.

Siggi og Oddur Andri í Hörgárdalnum hafa fengið sér lögmann til að annast sín mál í þeim harðvítugu deilum sem þeir nú standa í við nágranna sína á Auðbrekku 1; bændurna Bernharð Arnarson og Þórdísi Þórisdóttur. Sá er Gísli Tryggvason sem hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna síðustu vendinga í málinu, sem voru þær að Kristján Gunnarsson fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður upplýsti að Oddur Andri og Siggi hafi sent ábendingu um að sitthvað gæti verið athugavert við ástandið í fjósi þeirra hjóna, sem vert væri að athuga. En, með því braut Kristján trúnað við þá félaga og vinnureglur MS; ekki er talið verjandi að eftirlitsmenn upplýsi um hvaðan þeim berist ábendingar um eitthvað sem hugsanlega má betur fara.

Vísir greindi frá málinu en Kristján sér ekkert athugavert við það þó þetta megi heita trúnaðarbrot; réttlætiskennd hans bauð honum að stíga fram.

Gísli vill taka eftirfarandi fram fyrir hönd Odds Andra og Sigga:

„Kvörtun sú, sem umbjóðendur mínir komu á framfæri við forstjóra MS fyrir rúmu ári er deilum

nágranna óviðkomandi - enda var hún ekki upphaf málsins sem hófst í kjölfar þess að umbjóðendur mínir fluttu að Hörgártúni í ágúst 2012. Kvörtunin var send í góðri trú og í þeim trúnaði sem ætlast má til af fyrirtækjum á markaði fyrir viðkvæmar neysluvörur. Forstjóri MS svaraði umbjóðendum mínum sem treysta því að málið hafi fengið faglega úrlausn. Þótt fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður virðist hafa rofið þann trúnað ætluðust umbjóðendur mínir ekki til þess að kvörtunin kæmi fyrir almenningssjónir enda til þess fallin að skaða orðstír framleiðenda sem ekki var ætlun umbjóðenda minna,“ segir Gísli sem hefur tekið að sér að annast mál þeirra:

„Umbjóðendur mínir hafa falið mér að leita lausnar í málinu í því skyni að þeir geti notið þess heimilisfriðar sem allir borgarar hafa stjórnarskrárvarinn rétt á.“


Tengdar fréttir

Harkalegar nágrannaerjur í Hörgárdal

Draumur Sigga og Odds Andra um friðsælt líf í sveitinni breyttist í martröð þegar bóndinn á næsta bæ hóf, að þeirra sögn, að ofsækja þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×