Menning

Leikstjórinn sem smíðar gull

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Erling gullsmiður: "Ég er að leika mér að því að setja það sem ég er að gera í annað samhengi, búa til aðra sögu.“
Erling gullsmiður: "Ég er að leika mér að því að setja það sem ég er að gera í annað samhengi, búa til aðra sögu.“ Vísir/Valli
„Að því er mér skilst er það stefna í Póllandi að þeir sem geta komið á samstarfi út fyrir landamærin njóti forgangs í styrkveitingum. Þar þykir það nefnilega sniðugt að starfa með útlendingum og fá inn nýja strauma,“ segir Erling Jóhannesson, sem er heima í örstuttu hléi frá starfi sínu sem leikstjóri Sögunnar af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason í Gdansk, spurður hvernig það verkefni hafi komið til hans. „Við erum á fullu í æfingaferlinu og það verður frumsýning um miðjan maí þannig að ég fékk bara að skjótast heim til að sinna hlutverki mínu sem gullsmiður á HönnunarMars og halda sýningu.“

Sýningin verður opnuð í dag klukkan 17 á bryggjunni bak við Kaffivagninn á Grandagarði. Erling sýnir nýja skartgripi og er sýningin unnin í samstarfi við Þórarin Blöndal myndlistarmann.

Hvernig kom það samstarf til?

„Við Tóti erum búnir að vinna saman í leikhúsinu í tuttugu ár og partur af hans myndlist eru innsetningar af rýmum sem hann hefur einhverra hluta vegna heillast af. Innbyggðar í þessi rými eru oft alls kyns misskynjanir sem mér finnst mjög skemmtilegt. Ég fékk hann til að sýna með mér og við tökum skartgripina sem ég er að búa til núna og setjum þá á alls konar vinnslustigum inn í þessi rými. Þannig fá skartgripirnir líf sem einhvers konar abstrakt form frekar en beinlínis sem skartgripir. Ég er að leika mér að því að setja það sem ég er að gera í annað samhengi, búa til aðra sögu.“

Þú nærð þá að sameina hlutverk gullsmiðsins og leikstjórans á einu bretti?

„Já, og losna við leikarana, sem er mikill kostur,“ segir Erling sposkur.

Sýningin verður einungis opin fram á sunnudag, milli 14 og 17 alla dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.