Að okkur læðist sú tilfinning að meiningin hafi frekar verið sú að tína til punkta við hæfi og skapa þá ímynd að einn maður ræki í dagvinnu lífeyrissjóð á stærð við allt íslenska lífeyrissjóðakerfið og ávaxtaði iðgjöldin miklu betur, fyrir brotabrot af rekstrarkostnaði okkar sjóða. Svo einfalt er nú málið ekki þegar að er gáð. Þarf ekki annað en að glugga í ársskýrslu sjóðsins og bera saman við gögn um íslenska kerfið. Það gerðum við og sama hefði teymi Kveiks betur gert. Einföld „rannsókn“ okkar á aðgengilegum gögnum leiðir margt áhugavert í ljós:
l Hrein eign Nevadasjóðsins nam um 4.400 milljörðum króna í lok árs 2017 en hrein eign íslenska kerfisins nam þá um 4.000 milljörðum króna. Um 60% eigna sjóðsins eru í hlutabréfum, 30% í skuldabréfum og annað í fasteignum og framtaksfjárfestingum.
l Starfsmenn bandaríska sjóðsins eru alls 78, þar af er einn (Steve Edmundson, viðmælandi RÚV) titlaður forstöðumaður eignastýringar (investment officer).
l Tólf ráðgjafarfyrirtæki koma að fjárfestingarákvörðunum og bein fjárfestingargjöld sjóðsins námu um 5,5 milljörðum íslenskra króna árið 2017, sem er miklu hærra en gerist og gengur í íslenska kerfinu.
l Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður bandaríska sjóðsins er um einn sjötti hluti af því sem gerist í íslenska kerfinu. Sá bandaríski er einfaldlega lífeyrissjóður sem tekur við iðgjöldum, ávaxtar þau og greiðir út lífeyri en hefur ekki til viðbótar á sinni könnu fjölmörg verkefni íslenska kerfisins:
l Hann rekur hvorki séreignardeildir né millifærir iðgjöld inn á lán.
l Hann lánar ekki sjóðfélögum.
l Launagreiðendur eru fáir opinberir aðilar og því hverfandi umsýsla vegna innheimtu.
l Örorkubyrðin er sáralítil og hverfandi umsýsla þar. Engin ákvæði eru um að flýta eða seinka lífeyrisgreiðslum, sem kallar á umtalsverða umsýslu.
l Engin innheimta fyrir endurhæfingarsjóð.
l Ekki er að sjá af ársskýrslu sjóðsins að bandarískir lífeyrissjóðir ríkisstarfsmanna greiði fyrir fjármálaeftirlit þar í landi. Fjármálakerfið á Íslandi borgar hins vegar rekstur Fjármálaeftirlitsins og sá kostnaður nemur 4-5% af rekstrarkostnaði lífeyrissjóða.

Á Íslandi mælir laga- og regluverk fyrir um hvernig brugðist skuli við þegar eignir standa ekki undir skuldbindingum lífeyrissjóða. Það hefði verið fróðlegt að fá svör í Nevada við því hvort til standi að bregðast á einhvern hátt við og þá hvernig. Viðmælandi Kveiks hefur þarna verk að vinna en það passaði sýnilega ekki í þá mynd sem dregin var upp og ætlunin var að draga upp í þættinum.
Vinnubrögðin eru RÚV hvorki til sóma né álitsauka. Ekki er til of mikils mælst að vandað sé til verka í þætti sem vill láta taka sig alvarlega og kennir sig við „rannsóknarblaðamennsku“.
Guðrún Hafsteinsdóttir er stjórnarformaður Landssamtaka lífeyrissjóða og Gylfi Jónasson er framkvæmdastjóri Festu lífeyrissjóðs.