Lífskjarasamningurinn á að tryggja láglaunafólki betri kjör Jóhann K. Jóhannsson skrifar 4. apríl 2019 19:12 Skjáskot
Launahækkanir í þeim samningi sem kynntur var í gær eru allar í formi krónutöluhækkanna bæði á taxta og föst mánaðarlaun. Í því á að felast breið sátt á vinnumarkaði um að launafólk með lágar tekjur hækki hlutfallslega meira en þeir sem hærri laun hafa. Samningarnir ná til tæplega hundrað þúsund launþega aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins annars vegar og Landssambands verslunarmanna hins vegar og gilda til ársins 2022. Innlegg ríkisstjórnarinnar í svokallaðan Lífskjarasamning er meðal annars grundvallaður á krónutöluhækkunum.Launahækkanir eins og þær koma fyrir í LífskjarasamningnumSkjáskotÖll laun þessara félaga munu hækka jafnt um sautján þúsund krónur frá 1. apríl en að auki kemur tuttugu og sex þúsund króna orlofsuppbótarauki. 1. apríl 2020 koma taxtalaun til með að hækka um tuttugu og fjögur þúsund þúsund krónur á mánuði á meðan almenn hækkun verði átján þúsund krónur. Árið 2021 hækka taxtar um tuttugu og fjögur þúsund krónur en almenn hækkun verður tæplega sextán þúsund krónur. Í loks samningstímans munu laun á töxtum hækka um tuttugu og fimm þúsund krónur en almenn hækkun verður rúmlega sautján þúsund krónur. Lágmarkstekjutrygging verður strax miðuð við þrjú hundruð og sautján þúsund krónur.Hagvaxtaraukning hefur áhrif á launaumslagiðSkjáskotÞessu til viðbótar á hagvaxtaraukinn í þjóðfélaginu að tryggja að hlutur launafólks í verðmætasköpun haldist stöðugur. Sé 1% hagvöxtur færast 3000 krónur aukalega í launa umslagið. Sé 1,5% hagvöxtur færist 5.500 krónur aukalega í launaumslagið og svo koll af kolli. Hagvaxtar aukinn mun nú fara að fullu á taxtalaun en 75% í almenna hækkun. Þessar sviðsmyndir sýna hvernig hagvöxturinn í landsframleiðslunni getur haft áhrif á hækkun launa. Lágmarkstekjutrygging mun einnig taka breytingum á samningstímanum. Á næsta ári verður hún 335 þúsund krónur, 351 þúsund krónur árið 2021 og tæpar 370 þúsund krónur árið 2022. Þá kemur orlofsuppbót til með að hækka lítillega á milli ára.SkjáskotÞá mun launaþróunartrygging veita taxtahópum hlutdeild í launaskriði á almennum markaði. Frá næsta ári til loka samningsins reiknast ár hver kauptaxtaauki vegna launaþróunar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hækki launavísitalan meira en viðmiðunartaxtinn hækka allir kauptaxtar kjarasamninga um sömu krónutölu. Samningurinn er til fjögurra ára. Hækkun kauptaxta verður 90 þúsund krónur í lok samningstímans. Hagvaxtarauki á að tryggja launafólki hlutdeild í ávinningi sem myndast þegar landsframleiðsla á mann eykst umfram tiltekin mörk. Samningurinn á að tryggja að launafólk sem taki laun samkvæmt umsömdum launatöxtum fylgi almennri launaþróun verði umtalsvert launaskrið á almennum vinnumarkaði.Skjáskot
Kjaramál Tengdar fréttir Hafnar því að Seðlabankanum sé stillt upp við vegg og fagnar mínútunum fjörutíu og fimm Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það af og frá að verið sé að stilla Seðlabanka Íslands upp við vegg þegar komi að forsendaákvæði nýs kjarasamnings vinnumarkaðs og atvinnurekenda. 4. apríl 2019 15:53 Aðkoma stjórnvalda lykilatriði í nýjum kjarasamningum Kjarasamningarnir í gærkvöldi voru gerðir í skugga gjaldþrots WOW air eftir margra vikna þrotlausar samningaviðræður. 4. apríl 2019 18:54 Stytting vinnuvikunnar valkvætt ákvæði í kjarasamningi ASÍ segir þetta mestu breytingu á vinnutíma í hálfa öld en í tilkynningu frá Eflingu segir að ákvæðið feli ekki í sér neina tryggingu fyrir því að vinnutími verði styttur hjá verkafólki. 4. apríl 2019 13:11 „Áhugaverðast og ánægjulegast“ að laun hækki með hagvexti Nýsamþakktir kjarasamningar gefa um margt góð fyrirheit að mati Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs. 4. apríl 2019 11:15 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Sjá meira
Hafnar því að Seðlabankanum sé stillt upp við vegg og fagnar mínútunum fjörutíu og fimm Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það af og frá að verið sé að stilla Seðlabanka Íslands upp við vegg þegar komi að forsendaákvæði nýs kjarasamnings vinnumarkaðs og atvinnurekenda. 4. apríl 2019 15:53
Aðkoma stjórnvalda lykilatriði í nýjum kjarasamningum Kjarasamningarnir í gærkvöldi voru gerðir í skugga gjaldþrots WOW air eftir margra vikna þrotlausar samningaviðræður. 4. apríl 2019 18:54
Stytting vinnuvikunnar valkvætt ákvæði í kjarasamningi ASÍ segir þetta mestu breytingu á vinnutíma í hálfa öld en í tilkynningu frá Eflingu segir að ákvæðið feli ekki í sér neina tryggingu fyrir því að vinnutími verði styttur hjá verkafólki. 4. apríl 2019 13:11
„Áhugaverðast og ánægjulegast“ að laun hækki með hagvexti Nýsamþakktir kjarasamningar gefa um margt góð fyrirheit að mati Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs. 4. apríl 2019 11:15