Olaf Mellberg er tekinn við liðinu en aðeins eru rúmir tveir mánuðir síðan hann tók við danska úrvalsdeildarliðinu Fremad Amager. Hann sagði hins vegar upp störfum þar þegar Helsingborg falaðist eftir kröftum hans.
Líkt og Henrik Larsson átti Olaf Mellberg farsælan feril sem leikmaður þar sem hann lék lengst af með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni auk þess að spila með Juventus, Olympiakos og Villarreal og fleiri liðum.
| Vi hälsar Olof Mellberg varmt välkommen till HIF!Akureyringurinn Daníel Hafsteinsson er á mála hjá Helsingborg en hann gekk í raðir félagsins um mitt sumar. Hann mun því leika undir stjórn tveggja af þekktustu leikmönnum í sögu Svía á fyrsta tímabili sínu með liðinu.
Läs mer https://t.co/UdsW120DTp
Anna Berg pic.twitter.com/WpxObHBR8s
— Helsingborgs IF (@HelsingborgsIF) September 3, 2019
Mellberg er fimmti leikjahæsti landsliðsmaður Svíþjóðar en hann lagði skóna á hilluna 2014 og er þetta hans þriðja þjálfarastarf en hann var þjálfari sænska liðsins Brommapojkarna 2016-2017.
Helsingborg situr í 10.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og er fimm stigum frá fallsvæðinu þegar átta umferðir eru eftir af mótinu.