Markaveisla Mourinho hélt áfram gegn Burnley Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. desember 2019 16:45 Gleðin er við völd hjá Tottenham undir stjórn Mourinho. vísir/getty Tottenham komst aftur á sigurbraut undir stjórn Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar Lundúnarliðið fékk Burnley í heimsókn en Tottenham tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Portúgalans á Old Trafford í miðri viku. Liðsmenn Mourinho voru staðráðnir í að svara tapinu gegn Man Utd á réttan hátt og strax eftir 10 mínútna leik var staðan orðin 2-0, Tottenham í vil. Son Heung-Min skoraði fallegasta mark leiksins þegar hann kom Tottenham svo í 3-0 eftir rúmlega hálftíma leik og úrslitin nánast ráðin. Harry Kane bætti við öðru marki sínu snemma í síðari hálfleik og Moussa Sissoko rak síðasta naglann í kistu lánlausra Burnley manna stundarfjórðungi fyrir leikslok. Lokatölur 5-0 fyrir Tottenham. Það var engan veginn sama fjörið í leik Watford og Crystal Palace sem fram fór á sama tíma en þeim leik lauk með markalausu jafntefli. Enski boltinn