Krefst 3,5 milljóna króna eftir hættulega árás með óvenjulegum vopnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. desember 2019 10:15 Moe's Bar í Jafnaseli í Breiðholti. Moe's Bar
Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 11. október árið 2017 veist að fertugum karlmanni fyrir utan veitingastaðinn Moe's Bar grill í Seljahverfinu í Breiðholti í Reykjavík. Er árásarmaðurinn meinti sakaður um að hafa kastað poka með óopnuðum bjórdósum í hinn karlmanninn en pokinn lenti á vinstri öxl og hálsi hans. Í kjölfarið á hann að hafa slegið fórnarlambið í höfuðið með járnröri og eftir það slegið og kastað múrsteini í höfuð hans. Afleiðingarnar voru þær að fórnarlambið hlaut x-laga opinn skurð í hársverði við efsta hluta ennisbeins með hvern arm um sig um sjö sentimetrar. Náði skurðurinn í gegnum höfuðleður og þurfti að sauma hann með fjórtán sporum. Auk þess hlaut hann kúlu á hægri hluta ennisblaðs sem og utarlega á kinnbeini, innankúpublæðingu og sprungu í ennisbeini hægra megin. Fórnarlambið krefst 3,5 milljóna króna í miskabætur vegna árásarinnar en málið verður þingfest í héraði á morgun.
Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Innlent Titringur á Alþingi Innlent Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Erlent Græna gímaldið við Álfabakka: Hvernig gat þetta gerst? Innlent Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Erlent Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Innlent Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Erlent Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Innlent Fólk boðað í sýnatökur vegna fuglaflensu Innlent Handtekinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll og fjársvik Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll og fjársvik Græna gímaldið við Álfabakka: Hvernig gat þetta gerst? Titringur á Alþingi Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Fólk boðað í sýnatökur vegna fuglaflensu Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Heimilislaus eftir brunann og finnst borgin bera ábyrgð Lagðist með hendur fyrir aftan bak eftir að hafa stungið mann Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Sögulegt fuglaflensusmit á Íslandi og Trump ásælist Grænland Fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum vegna þrifa Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Eyddu tundurduflinu á botni Eyjafjarðar Gæsluvarðhald vegna stunguárásar framlengt 333 veðurviðvaranir gefnar út á nýliðnu ári Sárt að vera sakaður um að maka krókinn á ósiðlegan hátt Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Gagnrýna aðbúnað í hjólhýsabyggðinni á Höfðanum Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Sjá meira