Segir að fótboltakonur ræði aldrei barneignir í klefanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2020 11:00 Guðbjörg Gunnarsdóttir í marki íslenska landsliðsins á síðasta Evrópumóti sem fór fram í Hollandi 2017. Getty/Catherine Ivill
Sif Atladóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir hafa ekki verið að spila með liðum sínum, Kristianstad og Djurgården. Sif Atladóttir er ólétt af sínu öðru barni og Guðbjörg eignaðist tvíbura í janúar síðastliðnum. Guðbjörg er þó farin að æfa aftur. Sif Atladóttir er komin í stjórn leikmannasamtakanna í Svíþjóð þar sem hún ætlar meðal annars að berjast fyrir réttindum þungaðra knattspyrnukvenna. Sif fór í viðtal við Expressen vegna þessa en nýja tvíburamamman, íslenski landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir, var lika tekin í viðtal. Óttaðist það að fá ekki tækifæri aftur Guðbjörg Gunnarsdóttir ræddi við blaðamann Fotboll Sthlm um erfiðleika sína tengdum barnsburðinum og því að byrja að æfa aftur á nýjan leik. Gudbjörg Gunnarsdottir har börjat träna efter sin tvillingfödsel. Djurgårdens målvakt efterlyser mer kunskap och debatt inom elitidrotten.https://t.co/l3pzGJXOkp— Fotboll Sthlm (@FotbollSthlm) May 24, 2020 „Ég óttast það smá að ég fengi ekki tækifærið aftur og að klúbburinn minn fjárfesti í öðrum leikmanni. Ég skil það líka. Tvíburarnir eru í fyrsta sæti hjá mér núna og það eru mikilvægari hlutir heldur en fótboltinn,“ sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir við sænsku fótboltavefsíðuna Fotboll Sthlm. Guðbjörg reyndi í þrjú ár að verða ófrísk en þorði ekki að segja félaginu sínu, Djurgården, frá því. Á síðasta ári tókst Guðbjörgu að verða ófrísk en hún er orðin 35 ára gömul. Hún er nú móðir tvíburanna Williams og Oliviu. „Það gengur allt vel og foreldrarnir eru í skýjunum með nýju fjölskyldumeðlimina,“ skrifaði Guðbjörg á Instagram síðu sína. Það var samt ekki allt dans á rósum og Guðbjörg hefur nú opnað sig um um vandamálin sem afreksíþróttakonur lenda í þegar þær vilja verða foreldrar. Guðbjörg hefur fengið aðstoð frá sjúkraþjálfara Djurgården en það eru engar leiðbeiningar til. Hún er nú byrjuð að æfa að nýju með liði sínu. Ræða ekki barneignir í búningsklefanum Guðbjörg segir að sænsku knattspyrnukonurnar ræði ekki barneignir í búningsklefanum og að margar knattspyrnukonur bíði með það að eignast börn, þar til eftir ferilinn, af ótta um það að missa starfið sitt. "Man vet inte vad som är farligt eller vad man får göra. Det har verkligen varit utmanande." https://t.co/SD7qGHz0zZ— SportExpressen (@SportExpressen) May 25, 2020 „Þegar þú verður ófrísk sem afreksíþróttakona þá er það eins og þú meiðist og félagið nær í einhvern annan í staðinn fyrir þig. Þú getur ekki spilað og enginn hefur áhuga á þér,“ sagði Guðbjörg. „Ég held það sé miklu betra líkamlega fyrir þig að eignast barn fyrr á ævinni en þú þorir því ekki. Þú vilt eiga eins langan feril og þú getur. Flestar í Damallsvenskan bíða því þar til að ferill þeirra er á enda,“ sagði Guðbjörg. Guðbjörg ætlaði sér að ná landsleiknum á móti Svíþjóð í undankeppni EM sem átti að fara fram í haust. Kórónuveirufaraldurinn hefur breytt leikjadagskránni og hefur létt á pressunni á Guðbjörgu að koma til baka. „Núna þegar ég er komin með tvö börn þá er erfitt að plana hlutina. Þú veist ekki hvernig tímabilið lítur út og þá er erfiðara að setja sér markmið. Þangað til að framhaldið skýrist betur þá ætla ég að halda áfram að mæta á æfingar og reyna að undirbúa mig eins vel og ég get,“ sagði Guðbjörg. Ekki vinsælt hér í Svíþjóð að koma með börnin á æfingar Nú þarf hún að redda barnapíu á meðan hún og Mia Jalkerud fara á æfingar hjá Djurgården. Þær njóta hins vegar góðs að því að fjölskylda kærustunnar býr við hliðina á þeim og þau hafa hjálpað þeim mikið. „Ég veit það að á Íslandi er fólk opið fyrir því að mæta með börnin á æfingar og vera með þau í búningsklefanum. Ég held að það yrði ekki vinsælt hér í Svíþjóð,“ sagði Guðbjörg. En sér hún framfarir í þessum málum? „Ég veit það ekki. Það eru svo fáar í deildinni sem eru ófrískar og ég held að félögin sjái þetta ekki sem vandamál,“ sagði Guðbjörg en það má lesa allt viðtalið við hana hér.
Sænski boltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira