Ekki mikill kostnaðarmunur á að reisa nýja höll fyrir 5.000 eða 8.600 áhorfendur Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2020 16:01 Starfshópurinn segir æskilegast að nýr þjóðarleikvangur fyrir inniíþróttir verði í Laugardalnum. Vísir/Vilhelm
Ekki er mikill munur á kostnaði við byggingu þjóðarleikvangs fyrir innanhússíþróttir, sem ætlaður er fyrir 8.600 áhorfendur annars vegar og fimm þúsund áhorfendur hins vegar. Er munurinn áætlaður vera um 800 milljónir króna. Þá þykir æskilegast er að nýr þjóðarleikvangur rísi í Laugardalnum í Reykjavík, en engin íþróttahöll á landinu uppfyllir nú alþjóðlegar kröfur sem gerðar eru til sérsambanda vegna alþjóðlegra keppna eða landsleikja í handbolta og körfubolta. Laugardalshöllin kemst nú næst því, en nauðsynlegt þykir að byggja nýtt mannvirki þar sem breytingar á þeim húsum sem til eru fyrir einstaka viðburði er bæði of kostnaðarsöm og ekki lausn til framtíðar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu starfshóps menntamálaráðherra, með aðkomu borgarinnar, og ætlað var að gera tillögur um þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir. Skýrslan var lögð fyrir borgarráð í gær. Þrjár mögulegar staðsetningar í Laugardal Starfshópurinn kannaði nokkra mögulegar staðsetningar fyrir nýjan þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir – þar á meðal Framsvæðið við Safamýri, Vetrarmýrina í Garðabæ, og Hlíðarenda – en var sammála um Laugardal sem fyrsta val. Mörg svæði í Laugardalnum eru sögð geta borið hús af þessari stærðargráðu og eru þar nefnd svæði vestan við svæði Þróttar og svo lóð sem liggi samhliða Suðurlandsbraut, bæði austan við Laugardalshöll svo og lóð milli Suðurlandsbrautar og Laugardalshallar. Laugardalshöllin var teiknuð af Gísla Halldórssyni arkitekt og reist af Reykjavíkurborg og Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Hún var vígð 6. desember árið 1965.Vísir/Vilhelm Starfshópurinn leggur áherslu á nýtt hús yrði hannað með það að leiðarljósi að það uppfylli þörf fyrir stærri menningarviðburði, svo sem tónleika eða aðra menningarviðburði. Sömuleiðis að húsið gæti nýst sem sýningar- og ráðstefnuhús án mikils auka kostnaðar. Litið til húss í Þrándheimi Starfshópurinn lagði upp með að húsið yrði annaðhvort fyrir fimm þúsund áhorfendur eða rúmlega 8.000 áhorfenda hús sem myndi byggja á fyrirmynd frá Þrándheimi. „Minna húsið fyrir 5.000 áhorfendur uppfyllir í dag allar kröfur til stærðar fyrir keppnishús. Hins vegar ef litið er til framtíðar og þeirrar þróunar sem hefur orðið í auknum kröfum til áhorfendafjölda bendir allt til að sú þróun muni halda áfram. Stærra hús myndi leysa án mikils aukakostnaðar húsnæðisþörf til langrar framtíðar auk þess að gefa meiri möguleika á nýtingu til menningarviðburða. Úr íþróttahöllinni Spektrum í Þrándheimi sem starfshópurinn leit sérstaklega til. Spilaðir voru leikir á EM í handbolta fyrr á árinu í höllinni.Getty Athygli vekur að samkvæmt kostnaðarútreikningi er ekki mikill munur á byggingu húss fyrir 8.600 áhorfendur og fyrir 5.000 áhorfendur eða um 800 milljónir króna,“ segir í skýrslunni. Tekur ekki afstöðu Heildarkostnaður við hús sem tæki 8.600 áhorfendur er í skýrslunni áætlaður 8,7 milljarðar króna, borið saman við 7,9 milljarða króna fyrir hús sem tæki fimm þúsund áhorfendur. Grunnflötur slíkra húsa væri í svipaður í báðum tilfellum, um 19 þúsund fermetrar, en hús sem tæki 8.600 áhorfendur væri fjórum metrum hærra en smærri kosturinn. Rekstrarkostnaður stærra hússins er áætlaður 341 milljónir króna á ári, en rekstrarkostnaður smærra hússins 324 milljónir á ári. „Starfshópurinn tekur ekki afstöðu til þess hvort byggt sé 5.000 áhorfenda hús eða stærra. Hins vegar verður að horfa til þess að aukakostnaður er ekki mikill og fleiri nýtingarmöguleikar felast í stærra húsi. Starfshópurinn leggur jafnframt til að við staðarval, hönnun og byggingu hússins verði gert ráð fyrir mögulegri stækkun síðar til að mæta auknum kröfum,“ segir í niðurstöðukafla skýrslunnar. Aðkoma bæði ríkis og borgar Lilja D. Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóra hafa óskað eftir því að hópurinn starfi áfram og vinni ítarlega rekstar- og tekjuáætlun fyrir verkefnið. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar frá HSÍ, KKÍ, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Reykjavíkurborg og ÍSÍ. Starfshópurinn telur eðlilegt sé að kostnaði og rekstri mannvirkisins yrði skipt á milli ríkis og Reykjavíkurborgar. Ljóst sé að stærstur hluti starfseminnar – almennt íþróttastarf og kennsla – muni verða á vegum eða á kostnað sveitarfélagsins. „Því þykir eðlilegt að sveitarfélagið byggi mannvirkið og taki ákvörðun um rekstrarfyrirkomulag. Hins vegar er um að ræða starfsemi sem tengist íþróttalandsliðum og uppfyllingu alþjóðlegra krafna svo unnt sé að keppa á alþjóðvettvangi hér á landi og því er aðkoma ríkisins nauðsynleg. Aðkoma ríkisvaldsins getur orðið með ýmsum hætti. Ríkisvaldið getur komið beint að byggingu mannvirkisins með beinum fjárframlögum (stofnkostnaði) án eignarhlutdeildar en með kvöð um ákveðna nýtingu mannvirkisins sem og með styrkjum vegna æfingatíma og leikja landsliða. Allt byggir þetta á samtali milli ríkis og borgar um bestu lausnina.“
Reykjavík Skipulag Handbolti Körfubolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram Sjá meira